Morgunblaðið - 11.04.2015, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Bað um hönd Helga Hrafns
2. Banaslys á Biskupstungnabraut
3. Karlmaðurinn var frá Rúmeníu
4. Stefán sigurvegari Biggest Loser
Tveir íslenskir myndlistarmenn,
Katrín Sigurðardóttir og Ólafur Elías-
son, eru í hópi ellefu listamanna sem
eiga verk á sumarsýningunni Pano-
rama sem verður opnuð á sumardag-
inn fyrsta í hinum vinsæla garði High
Line, sem er á aflögðum lestarteinum
hátt yfir götunum á vestanverðri
Manhattan-eyju. Verk Katrínar er
skúlptúr sem byggist á hinni jökul-
skrýddu Bouvet-eyju og mun hann
hanga umsnúinn neðan úr stálgrind
High Line. Verk Ólafs er hins vegar
stór innsetning úr tveimur tonnum
LEGO-kubba, sem sýnir ímyndaða
borgarmynd, en síðan geta gestir
leikið sér að því að kubba og breyta
verkinu í sumar.
Katrín og Ólafur á
High Line í New York
Söngkonurnar Anna Jónsdóttir
sópran og Þóra Passauer kontraalt
flytja ásamt Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna hið þekkta verk Pergo-
lesis, Stabat Mater, í Seltjarnar-
neskirkju í dag, laugardag, klukkan
16. Stjórnandi á tónleikunum er
Oliver Kentish.
Í þessu kunna verki
segir af Maríu mey
þar sem hún stendur
við kross Jesú Krists
og syrgir son sinn.
Verkið þykir lýsa
afar vel þján-
ingu, sorg og
harmi.
Flytja Stabat Mater í
Seltjarnarneskirkju
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðan 18-23 m/s á Norðvesturlandi með talsverðri snjó-
komu. Heldur hægara og stöku él fyrir sunnan og kólnar í veðri.
Á sunnudag Suðvestan og vestan 8-13 m/s og víða bjartviðri, en dálítil él úti við strönd-
ina á Norður- og Vesturlandi. Frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan. Vaxandi sunnanátt
og þykknar upp síðdegis, 10-15 m/s á Suður- og Vesturlandi og snjókoma eða slydda um
kvöldið, en rigning við sjóinn og hlýnar. Á mánudag Sunnan og suðvestan 10-15 m/s.
Bandaríkjamaðurinn ungi Jordan
Spieth er á góðri leið með að
eyðileggja alla spennu varðandi
Masters-mótið í golfi þetta árið.
Er þetta vissulega mjög neikvæð
nálgun á frábæra frammistöðu
kappans en var þó tónninn í
mörgum fjölmiðlamönnum vest-
anhafs á Twitter á netmiðlum í
gær. »1
Á góðri leið með að
eyðileggja Masters
Afturelding er komin í und-
anúrslitin á Íslandsmóti
karla í handknattleik en Ís-
lands- og bikarmeistarar
ÍBV eru úr leik. Afturelding
vann annan leik liðanna í
Eyjum í gærkvöld, 22:21, og
mætir ÍR eða Akureyri í
undanúrslitum. Akureyr-
ingar knúðu fram oddaleik
með því að skora þrjú síð-
ustu mörkin og sigra ÍR,
23:20. »2
Afturelding kom-
in í undanúrslitin
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur aldrei staðið eins vel í
riðlakeppni stórmóts og um þessar
mundir og stuðningurinn við það hef-
ur aldrei verið meiri. Framundan
eru tveir stórleikir heima og erlendis
og Tólfan, stuðningsmannafélag
landsliðsins, hefur þegar opnað fyrir
pantanir á sérstökum Tólfutreyjum
vegna leikjanna.
Kristinn Hallur Jónsson, gjaldkeri
Tólfunnar, segir að meðlimir stuðn-
ingsmannafélagsins bíði spenntir
eftir næstu átökum og séu fullir til-
hlökkunar að styðja landsliðið í kom-
andi leikjum. Liður í samheldninni sé
að vera í eins treyjum og þegar hafi
verið útbúnar um 400 treyjur frá
2013. Hins vegar megi búast við að
enn fleiri vilji fá treyjur fyrir leikinn
á móti Tékkum á Laugardalsvelli
föstudaginn 12. júní og á móti Hol-
lendingum í Amsterdam 3. sept-
ember. „Við vorum um 700 stuðn-
ingsmenn í Tékklandi í haust og ætla
má að KSÍ fái 4.000 til 5.000 miða á
leikinn í Amsterdam þannig að það
þarf að útbúa ansi margar treyjur á
stuttum tíma,“ segir Kristinn.
Mikil eftirspurn eftir treyjum
Styrmir Gíslason stofnaði Tólfuna
2007 og haustið 2013 var ákveðið að
breyta henni í félagasamtök, halda
aðalfund árlega og kjósa stjórn.
Þetta gerðist samfara góðum ár-
angri landsliðsins í undankeppni
heimsmeistaramótsins og auknum
stuðningi við liðið. Ákveðið var að fá
Halldór Einarsson í Henson til að
hanna sérstakar stuðningsmanna-
treyjur og til að byrja með voru út-
búnar um 70 til 80 treyjur fyrir fé-
lagsmenn. Síðan hefur Tólfan heldur
betur látið til sín taka. „Eftirspurn
eftir treyjum hefur verið miklu meiri
en við bjuggumst við og talan er
komin upp í um 400,“ segir Kristinn.
Hann bætir við að allir stuðnings-
menn landsliðsins geti að sjálfsögðu
pantað stuðningsmannatreyju og
valið nafn á bakið að vild. „Auðvitað
viljum við sjá sem flesta í þessum
treyjum á landsleikjum íslenska liðs-
ins og til að dreifa álaginu höfum við
opnað fyrir pantanir.“
Þegar er byrjað að auglýsa ferðir
á leikinn í Hollandi. Kristinn bendir
á að auk þess búi margir Íslendingar
úti í Evrópu og því sé stutt fyrir þá
að fara á leikinn. Stuðningsmenn bú-
settir erlendis geti líka pantað treyj-
ur á heimasíðu Tólfunnar (www.tolf-
an.is/treyjur/), greitt fyrir í heima-
banka og fengið þær sendar. „Þegar
búið er að panta og greiða fara treyj-
urnar í framleiðslu og svo mæta allir
í stuðningsmannatreyju á landsleik-
ina,“ segir Kristinn. „Þetta eykur
stemninguna og stuðningsmanna-
menninguna.“
Stuðningsmannamenning
Tólfutreyjur
komnar í sölu
fyrir stórleikina
Morgunblaðið/RAX
Klæðskerasniðnar treyjur Kristinn Hallur Jónsson segir að Henson útbúi treyjurnar og merki þær eftir pöntunum.
Morgunblaðið/Golli
Tólfan Stuðningsmennirnir hafa haft sitt að segja á landsleikjum.
Tindastóll er kominn í afar vænlega
stöðu í undanúrslitum Íslandsmóts
karla í körfuknattleik eftir sannfær-
andi sigur á Haukum í Hafnarfirði í
gærkvöld, 86:74. Sauðkrækingar eru
með 2:0 forystu og eiga
þriðja leikinn á sínum
heimavelli á Sauð-
árkróki á mánudags-
kvöldið, en þar geta
þeir tryggt sér
réttinn til að
spila til úrslita
um Íslands-
meistaratit-
ilinn. »3
Tindastóll kominn í
mjög vænlega stöðu