Reykjalundur - 01.06.1964, Blaðsíða 4

Reykjalundur - 01.06.1964, Blaðsíða 4
Heffur S.I.B.S. lokið hlutverki sfriu Rilnefnd Reykjalundar hefur lagt þessa spurningu jyrir tvo þjóðkunna menn og birtast svör þeirra við henni hér á eftir. STEINDÓR STEINDÓRSSON yjirkennari: Ef svara skal þessari spurningu verður hugan- um fyrst hvarflað um aldarfjórðung aftur í tím- ann, þegar S.l.B.S. var að rísa á legg. Fáir hefðu þá hugsað, að slíkri spurningu yrði nokkru sinni varpað fram í alvöru. Berklaveikin var þá enn í algleymingi og þær fj ölskyldur ótrúlega fáar, sem ekki áttu um sárt að binda af völdum hennar. Þótt vasklega hefði verið barizt gegn þessum vá- gesti, skorti traust vígi til varnar og bakhjarl til sóknar. Vinnu- og hressingarhæli fyrir berkla- sjúka. Það varð viðfangsefni og hlutverk S.Í.B.S. að reisa og reka slíkt hæli. Kalla má hlutverk þess tvíþætt: annars vegar að þjálfa þá, sem dvalizt höfðu á heilsuhælum til starfa, áður en þeir legðu út í lífið á ný, en hins vegar að skapa varanlegum öryrkjum af völdum herklaveiki starfsmöguleika. Finna störf við þeirra hæfi og gera þá virka þjóð- félagsþegna eftir því sem orka þeirra leyfði. Þetta hefur S.Í.B.S. leyst með þeim ágætum, sem kunn- ugt er og notið til þess trausts og stuðnings al- þjóðar. Svo vel hefur unnizt, að menn láta sér í alvöru til hugar koma að verkefnin séu þrotin og hlutverk samtakanna á enda leikið. En fált er f j arstæðara. Þótt berklaveikin sé ekki lengur sá ógnvaldur sem fyrr, skýtur hún sí og æ upp kollinum, svo að ljóst er, að hvergi má sofa á verðinum né veikja víglínurnar enn um skeið. Margt hefur lagzt á eitt til að ná fengnum sigrum, ríkisvaldið, heilbrigðisstjórn og læknavísindi og bætt afkoma þjóðarinnar, en allt um það hefur S.Í.B.S. verið traustasta varnarvirkið, og þaðan rekin harðasta sóknin. Ef þau samtök létu af störfum, væri hætt- unni boðið heim rétt eins og ef Hollendingar létu sjóvarnargarða sína falla, af því hafið hefði ekki unnið Iandinu grand um skeið. Enginn mundi spyrja hversu þá færi. Annað mál er að S.Í.B.S. hefur byggt starf- semi sína upp af þeim stórhug, að hún rúmar nú fleiri en berklasjúklinga eina, enda njóta hennar nú ótal margir öryrkjar aðrir en þeir. Þannig hafa samtökin sýnt alþjóð, að þau eru trausts hennar verðug og reiðubúin að koma til hjálpar hvar og hvenær, sem þörfin krefur. Aldarfjórðungsstarf S.Í.B.S. hefur ótvíræðlega sýnt hæfni og rétt sam- takanna til forystu í því að „styðja sjúka til sjálfs- bjargar“. Þeim hefur tekizt að skapa skjólstæð- ingum sinum ekki einungis bætta beilsu, heldur einnig gætt þá nýrri trú á lífið. Þau hafa skapað von úr vonleysi, þrótt úr vanmætti og veitt hinum vanmegna hlutdeild í blessun starfsins. En þó að þjóðfélag vort þróist í fulkomið vel- ferðarríki, þó að berklaveikin láti enn undan síga, verða samt óteljandi verkefni að leysa, sjúk- um til sjálfsbjargar. Þrátt fyrir alla sigra lækna- visindanna verða alltaf til sjúkir menn og öryrkj- ar. Ekkert fær betur rétt þá við en að þeir finni, að þeir eigi sjálfir þann neista, sem þeim nægir til að skapa þeim lífsvon og lífstrú, ef hann að- eins er glæddur. Það hefur verið, er og verður hlutverk S.Í.B.S. að glæða þennan neista, taka í hina veiku hönd, styðja hinn lamaða fót, blása lífsþrótti í hið veika brjóst og senda ljós í myrkr- ið. Af þessum sökum verður hlutverki S.Í.B.S. aldrei lokið meðan sjúkdómar og örorka er til meðal þjóðarinnar. Steindór Steindórsson jrá Hlöðum. 2 Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.