Reykjalundur - 01.06.1964, Side 42

Reykjalundur - 01.06.1964, Side 42
mína ekki bitna á íslenzku þjóðinni, — rétt eins og þegar Abraham sálugi var að semja við hann um Sódómu og Gómorru forðum, — heldur halda verndarhendi sinni yfir litlu skipunum okk- ar. Og þarna á hólnum gerði ég þá einu heit- strengingu, sem ég hef gert á ævinni, — annað mál með efndirnar. Eg hét sjálfri mér því, að reyna að gæta þess að lasta aldrei mat né van- þakka, þó að ég neydidst til að búa við fábreytt- an kost og fátæklegan, á meðan ég þyrfti ekki að líða algeran skort, heldur reyna að bera saman kjör mín og þeirra, sem ekkert hefðu til bjargar. Hvort mér hefur tekizt að halda það heit, má guð vita. Okkur mönnunum hættir of oft til að gleyma að bera virðingu fyrir verðmæti hinna nytsömu hluta, verðgildi gjaldsins og hinu dag- lega brauði. Sérstaklega finnst mér ég of oft gleyma því, er ég geng að hlöðnu vistaborði, að ennþá, — árið 1964, — er heimurinn þannig á vegi staddur, að til er fjöldi barna, sem aldrei verða menn, sökum fæðuskorts. Lítil börn, sem tína sorann af götunni í fæðu stað, rétta betliskál að vegfaranda — eða leggjast hreinlega fyrir og deyja úr hungri. Væri það nógu hugfast, yrði síður aðfinnsla á munni, þó að eilthvað kynni að skorta á fjölbreytni og gæði þeirra vista, sem við eigum kost á að neyta. Framh. á 64. bls. 40 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.