Reykjalundur - 01.06.1964, Side 49

Reykjalundur - 01.06.1964, Side 49
hann skuldaÖi honum. Og svo kom nokkuð fyrir. Þessi hefðarmaður tók aftur að aka í sínum skrautlega og stóra vagni með gúmmíhjólbörð- um, svo sem sæmir þeim manni, sem lent hefur í gjladþroti og komizt upp aftur, en nú var það ekki Bontsha, sem var vagnstjóri hans, heldur nýr maður, en Bontsha var orðinn burðarkarl eins og áður. Og hann varð fyrir þessum vagni, troðinn fótum af hestunum, marinn af hjólunum. En þó hann væri kvalinn af meiðslum, þagði hann. Hann sagði lögreglumanninum ekki frá því, hver að þessu var valdur. Og jafnvel á spítalanum, þar sem öllum leyfist að hljóða, þagði hann einnig. Hann lá einmana og aðhlynningarlaus í bóli sínu, og læknarnir og hjúkrunarkonurnar sinntu honum ekki, því hann átti lítið til að borga með sér, en ekki möglaði hann. Hann þagði á þeirri voðalegu stund, sem fór næst á undan dauðanum, og í andlátinu þagði hann. Aldrei möglaði hann, hvorki gegn mönnum né guði!“ Nú fer Bontsha aftur að titra af hræðslu. Því hann veit, að nú muni saksóknarinn rísa upp og höfða móti sér sakargiftir. Sjálftsagt mundi vera nóg tilefni til þess. Því þegar Bontsha var á jarð- ríki niðri, gleymdi hann ævi sinni jafnótt og hún leið. Verjandinn hafði leitt hana fram fyrir hug- skotssjónir hans og stutt hann til að rifja upp at- vikin, og mundi nú ekki saksóknarinn hafa af nógu að taka, að benda á allt hið illa, sem hann hafði framið? Saksóknarinn stendur upp. „Herrar mínir!“ segir hann hörðum og höstum rómi, en þagnar svo. „Herrar mínir,“ segir hann aftur, og er nú röddin orðin eitthvað mildari, en aftur rekur hann í vörðurnar. Og í þriðja sinn lýkur hann upp munni, og er nú öll harka horfin úr rödd- inni: „Herrar mínir, hann þagði alltaf, ég ætla líka að þegja.“ Það slær þögn yfir hinn mikla dómssal himna- ríkis en síðan heyrist rödd dómarans úr dómara- sætinu, þýð og ástúðleg: „Bontsha, sonur minn,“ — röddin eykst að magni eins og harpa sé sleg- in, „sonur minn elskulegur ...“ Þá fer sálin í Bontsha að gráta. Hann ætlar að opna augun, líta upp, en getur það ekki. Það er svo sælt að gráta. Aldrei fyrr þótti honum sælt að gráta. „Sonur minn, Bontsha minn . ..“ Enginn hefur talað svona til hans síðan móðir hans dó, enginn með þvílíkri rödd. „Sonur minn,“ segir dómarinn aftur, „þér hef- ur alltaf liðið illa, og þú hefur aldrei sagt neitt. Allur líkami þinn er kaunum sleginn, þér blæðir úr ótal sárum, og hvergi í sál þinni er sá blettur, sem ekki er særður og blóði drifinn. Og þú mót- mæltir aldrei. Þú sagðir aldrei neitt. Þarna niðri í hinum heiminum, tók enginn tillit til þín, og þú kunnir ekki sjálfur að taka tillit til þín. Þér skildist aldrei að þú þyrftir ekki að þegja, að þú hefðir vel mátt hrópa, svo að hróp þitt hefði rof- ið himininn kringum þig. Þú þekktir aldrei þau öfl, sem í þér bjuggu blundandi. Þarna í hinum heiminum, lygaheiminum, fékkstu engin laun fyr- ir að þegja, en hér í himnaríki er veröld sann- leikans, og hér skal þér verða launað. Þér, sem hvorki er unnt að dæma né saka um neitt. Nú færðu hlutdeild í himnaríki, og það ekki neina smámuni. Nei, allt er þitt! Hvað sem þú óskar þér. Allt er þitt!“ Þá lítur Bontsha upp í fyrsta sinn. Augun blindast af ljósinu. Alls staðar er þessi ljómandi birta, á veggjunum, á þessu mikla lofti, og engl- arnir skina í ljósi, dómarinn líka. Hann lokar augunum aftur. „Er þetta satt?“ segir hann hálfringlaður. „Það er satt,“ segir dómarinn. „Ég segi þér satt, þú átt þetta allt. Allir hlutir í himnaríki eru þín eign. Kjóstu! Taktu! Hvað sem þú óskar þér! Því þú átt allt!“ „Já, það er þá satt?“ segir Bontsha, og er nú röddin miklu styrkari, öruggari. Og dómarinn og allt lið himnaríkis svarar: „Það er satt! Satt! Satt!“ „Fyrst svo er,“ — og nú brosir Bontsha í fyrsta sinn — „fyrst svo er, þá langar mig til að biðja um, að mér verði gefinn volgur snúður með nýju smjöri á hverjum morgni.“ Þá slær þögn á allt himnaríki, skelfilegri þögn en þögn Bontsha’s nokkru sinni var, og dómarinn Reykjaujndur 47

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.