Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2014, Blaðsíða 6

Ægir - 01.04.2014, Blaðsíða 6
6 Framundan er lögboðinn frídagur sjómanna, hátíðisdagur fyrir íslenska sjómenn þegar almenningur samfagnar þeim og fjölskyldum þeirra. Fyrsti sjómannadagurinn var haldinn árið 1938 og þó í áranna rás hafi hátíðarhöld tekið breytinum eins og annað í þjóðfélaginu hefur dagur- inn eftir sem áður nokkurt gildi. Eitt er að efla samhug meðal sjómanna, þétta raðir þeirra, minna á eðli starfs þeirra og baráttu fyrir ýmsum þáttum sem starfið snerta. Við minnumst líka sjómanna sem hafa farist við störf sín og er mikilvægt að við berum ætíð fulla virðingu fyrir þeim hættum sem sjómönnum eru búnar í sínum daglegu störfum. Öryggis- mál sjómanna eru enda alltaf fyrirferðarmikil í tengslum við sjómanna- dagshátíðina, fögnuður yfir hverjum áfanga sem næst til aukins öryggis og vettvangur til að krefjast úrbóta þar sem þörf er á. Sá dagur mun lík- ast til aldrei renna upp að of mikið verði gert í þeim málaflokki. Sjómannsstarfinu fylgja miklar fjarverur frá heimilum og fjölskyld- um, staðreynd sem oft vill gleymast þegar rætt er um launamál stéttar- innar. Þetta hefur engu að síður breyst á seinni árum, orðið „mann- eskjulegra“ svo notað sér orðalag háseta sem er í viðtali í Ægi að þessu sinni. Hér blaðinu segir fyrrum síldarskipstjóri einnig frá tíðaranda síld- aráranna þegar bátarnir voru á vertíð á vetrum, fjarri heimilum og sjó- menn voru í burtu frá sínum nánustu svo mánuðum skipti, allt upp í sjö mánuði í senn. Það þættu langar fjarverur í dag. Fjarlægðin hefur líka í öðrum skilningi gjörbreyst. Fjarskiptatækni á sjó er á fullri ferð, líkt og annars staðar og það opnar sjómönnum af- þreyingarmöguleika í frítíma sínum, gerir þeim jafnvel kleift að stunda nám samhliða störfum sínum, líkt og landverkafólk margt hvert á möguleika á, og síðast en ekki síst geta sjómenn nú verið í mun betra sambandi við fjölskyldur sínar en áður var. Í þessu sem mörgu öðru hafa íslenskrar útgerðir verið framsæknar og samanlagt gera þættir eins og þessir störf sjómanna á vissan hátt léttari. Eftirtektarvert er hvernig hugsunarhátturinn hefur breyst hjá sjó- mönnum í áranna rás. Fyrir ekki ýkja löngu töldu sjómenn það góðan afla þegar stór hol fengust á togurunum og fullt var upp í lestarlúgur. Í dag tala menn um góðan afla þegar næst að hámarka gæðin úr hverju kílói. Með öðrum orðum eru það ekki kílóin sem skipta máli heldur það sem út úr þeim fæst. Það eru beinharðir hagsmunir sjómanna - og um leið okkar hinna. Hvers vegna eru sjómenn ekki taldir með þegar talað er um stéttir matvælaframleiðenda? Því það eru þeir svo sannarlega - og hvað sem sem hver segir þá eru sennilega fáar stéttir jafn meðvitað- ar um nauðsyn góðrar umgengni um auðlindir landsins og sjómenn. Hér verður ekki skilið við umræðu um sjómannastéttina í tilefni sjó- mannadags án þess að nefna stöðu kjarasamninga. Samningar sjó- manna og útgerðarmanna hafa verið lausir um margra ára skeið. Horft á stöðu aðila beggja vegna samningsborðsins er ljóst að stjórnvaldsað- gerðir síðustu ár hafa haft veruleg áhrif á kjaraviðræður; bæði afnám sjómannaafsláttar og hins vegar hækkun veiðileyfagjalda sem hlýtur að hafa áhrif á launagreiðendur í greininni. Eftir stendur samt að það er óviðunandi staða að launþegar og launagreiðendur í jafn stórri at- vinnugrein og raun ber vitni ljúki ekki þessari vinnu með samningum. Engin kjaradeila getur verið svo flókin að hún verði ekki leyst ef vilji beggja er til þess. Gleðilegan sjómannadag. Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar Breyttir tímar Út gef andi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) Sími 515-5220. GSM 899-9865. Net fang: johann@athygli.is Aug lýs ing ar: Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206. GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is Suðurlandsbraut 30. Reykjavík. Hönnun & umbrot: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 30. Reykjavík. Sími 515-5200. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5100 kr. Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205 ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið. MAKING MODERN LIVING POSSIBLE Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is Danfoss stjórnbúnaður fyrir íslenskan iðnað Rofabúnaður • Mjúkræsar • Segullokar Hitastillar • Hitanemar Stjórnbúnaður með áratuga reynslu við íslenskar aðstæður Hitaliðar • Þrýstiliðar • Þrýstistillar • Þrýstinemar R itstjórn a rp istilll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.