Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2014, Blaðsíða 10

Ægir - 01.04.2014, Blaðsíða 10
10 lands. Öðru hvoru var líka siglt til Englands. Mjög oft voru farn- ir tveir og jafnvel þrír túrar án þess að komið væri í heimahöfn. Vegna siglinganna höfðu togarasjómenn aðgang að ýmsum vörum sem aðrir gátu ekki nálgast. Það var keyptur fatnaður á alla fjöl- skylduna, niðursoðnir ávextir, skinka og svo auðvitað bjórinn. Það voru viss forréttindi að fá að sigla og mjög skemmtilegt. En það eru breyttir tímar í dag og nú eru frystitogararnir orðnir eins og hver önnur matvæla- verksmiðja,“ segir Ægir. Komið að kynslóðaskiptum Ægir gekk í Stýrimannaskólann og varð sér úti um full skip- stjórnarréttindi eftir tveggja ára nám. Síðan þá hefur hann starf- að sem stýrimaður eða skip- stjóri á ýmsum skipum. Hann var 28 ára gamall þegar hann fór sinn fyrsta túr sem skipstjóri á Ingólfi Arnarsyni, sem var einn af stærri Spánartogurun- um. Hann heitir nú Freri RE. „Á þessum árum voru kyn- slóðaskipti í skipstjórastéttinni og nú eru þau að koma aftur. Á milli 1970-1980 voru þeir skip- stjórar sem höfðu verið á síðu- togurunum að hverfa frá störf- um og við yngri mennirnir að taka við. Núna eru aftur að verða kynslóðaskipti í skip- stjórastéttinni. Mín kynslóð er hægt og bítandi að draga sig í hlé,“ segir Ægir. Björgunarafrek undir Grænuhlíð Á löngum sjómannsferli hefur Ægir lent í ýmsu en það sem stendur upp úr í huga hans er björgunin á Örfirisey í nóvem- ber 2001. Í atvikalýsingu Rann- sóknarnefndar sjóslysa um þennan atburð segir: „Hinn 10. nóvember 2001 var Örfirisey RE 4 á leið í var vegna veðurs undir Bol- ungarvík. Veður: VSV 30-35 m/ sek og mikill sjór. Um kl. 02:50 þegar skipið var statt um 4 sml. VNV af Galtar- vita kúplast skrúfan út og varð það vélarvana. Skipið tók að reka í stefnu átt að Grænuhlíð með 4-5 hnúta hraða og miðað við rekhraða mátti ætla að það tæki um 4 klst. að reka þar upp. Talið var í fyrstu að viðgerð myndi taka um 1-1,5 klst. en síðan kom í ljós að bilunin var alvarlegri en búist hafði verið við í fyrstu. Haft var þá samband við Snorra Sturluson RE, sem var þá í um 8 sml. fjarlægð, sem og önnur skip á svæðinu og látið vita um stöðu mála. Skipstjóri hafði samband við Landhelgis- gæsluna um kl. 03:40 þegar ljóst var hversu alvarleg bilunin var og aðstoðar þyrfti við. Snorri Sturluson RE var þá kom- inn að Örfirisey. Varðskipið Ægir var statt við Arnarnes í Ísa- fjarðardjúpi, þegar beiðni um aðstoð kom, hélt þegar af stað og var komið að Örfirisey kl. 05:18. Á meðan hafði skipstjóri Örfiriseyjar reynt að stöðva rek skipsins með því að láta bæði akkeri skipsins fara. Þau náðu ekki festu og slitnuðu síðan báðar keðjurnar. Eftir að fyrra akkerið slitnaði frá voru uppi áform um að Snorri Sturluson RE myndi reyna að slæða hitt akkerið upp og gera tilraun til að draga skipið frá landi. Áður en til þess kom slitnaði það einnig. Eftir að Ægir kom að skipinu hófust aðgerðir við að koma taug á milli skipanna. Kl. 05:21 var skotið úr línubyssu varð- skipsins en á leið milli skipanna sundraðist skotflaugin og féll í sjóinn. Aftur var skotið kl. 05:37 en þá flæktist línan og flaugin fór í sjóinn. Þriðja skotið náði yfir í Örfirisey kl. 05:50. Þegar verið var að draga tildráttar- taugina yfir í Örfirisey slitnaði línan. Aftur var reynt að skjóta línu milli skipanna kl. 06:10 en þá virkaði ekki línubyssan hjá varðskipsmönnum en kl. 06:24 var skotið línu sem lenti fyrir framan Örfirisey. Þá var ákveðið að skjóta línu úr Örfirisey yfir í varðskipið og var það gert kl. 06:32. Varðskipsmönnum tókst að ná línunni og hófst þá dráttur á tildráttartauginni milli skipanna. Kl. 06:58 þegar hluti tildráttartaugarinnar var kom- inn um borð í Örfirisey misstu skipverjar hana og fór hún fyrir borð. Þar sem skipverjar á varð- skipinu þurftu tíma til að ná inn því sem komið var út af dráttar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.