Fréttablaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 24
14. maí 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Elskuð systir okkar, mágkona og frænka, INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR NIELSEN hjúkrunarfræðingur, andaðist á Roskilde-sjúkrahúsinu í Danmörku 1. maí sl. Hún hvílir nú við hlið manns síns í Vest Broby-kirkjugarðinum í Sorö. Sigríður Ólafsdóttir Hildigunnur Ólafsdóttir Hilmar Sigurðsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA K. ÓLAFSDÓTTIR (GAUJA FRÁ FAGRADAL) áður til heimilis að Vallargötu 6 í Vestmannaeyjum, lést á Dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal, laugardaginn 9. maí. Jarðarförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á að láta Hollvinasjóð Hjallatúns (kt.: 430206-1410, banki 0317 – 13 – 300530) njóta þess. Sigrún Ósk Ingadóttir Guðmundur Sigurðsson Ingi S. Ingason Katrín Þorbjörg Andrésdóttir Ólafur Erlendsson Gunnhildur V. Kjartansdóttir Kjartan Erlendsson Rikke Kiil Erlendsson barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu. Fósturfaðir okkar og bróðir, ALF WILHELMSEN Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. maí síðastliðinn. F.h. aðstandenda, Bjarni F. Einarsson Halldór E. Faust Olga Vatle Körfuknattleiksmaðurinn Earvin „Magic“ Johnson hætti iðkun körfuknattleiks þennan dag fyrir nítján árum. Johnson greindist með HIV-smit árið 1991 og lagði þá skóna á hilluna, sem reyndist svo vera tímabundið. Hann lék hinn svokallaða Stjörnuleik árið 1992 og hugðist aftur láta staðar numið í iðkun körfubolta eftir Ólympíuleikana það sumar. En 36 ára að aldri tók hann skóna fram að nýju og lék 32 leiki með félagi sínu Los Angeles Lakers, áður en hann hætti endanlega. Johnson er einn besti leikmaður í sögu NBA. Hann varð fimm sinnum meistari með LA Lakers, hann var þrisvar sinnum valinn mikilvægasti leikmaður ársins, lék tólf sinnum í stjörnuleikjum og lék með Draumaliðinu svokallaða á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992. Síðan Johnson hætti að leika körfubolta hefur hann gegnt ýmsum störfum. Hann var um stund í þjálfun og hefur verið áberandi í fjölmiðlum. Hann er í hópi eigenda kvennakörfuboltaliðsins LA Sparks og hafnaboltaliðsins LA Dodgers. Johnson hefur einnig verið talsmaður HIV-smitaðra og barist ötullega fyrir rétt- indum þeirra. ÞETTA GERÐIST 14. MAÍ 1996 „Magic“ hætti endanlega að spila MERKISATBURÐIR 14. MAÍ 1643 Loðvík XIV. tekur við völdum í Frakklandi fjögurra ára gamall. 1811 Paragvæ fær sjálfstæði frá Spáni. 1919 Átta klukkustunda vinnudagur er lögfestur í Danmörku. 1922 Fimm skip farast og með þeim 44 sjómenn í ofsaveðri sem gengur yfir norðan- og austanvert landið. 1939 Lína Medina eignast son einungis fimm ára að aldri og verður þar með yngsta móðir sem vitað er um í heiminum. 1948 David Ben-Gurion forsætisráðherra lýsir yfir stofnun Ísraels ríkis. 1955 Varsjársamningurinn er formlega undirritaður. 1959 Pétur Ottesen, sem verið hafði þingmaður lengur en nokk- ur annar, hættir þingmennsku eftir 43 ár. 1965 Fokker Friendship-flugvél Flugfélags Íslands, sú fyrsta sinnar tegundar, kemur til landsins. 1973 Fyrsta bandaríska geimstöðin, Skylab, er send á sporbaug. 1998 Jóhanna Sigurðardóttir talar samfellt í fimm og hálfa klukkustund á Alþingi. 2000 Rúta með fjörutíu eldri borgurum veltur í Hvalfirði. 2004 Friðrik, krónprins Dana, giftist Mary Donaldson í Kaup- mannahöfn. „Þetta er stór stund fyrir mig og Ísland,“ segir Ámundi Ámundason útgefandi hlæjandi. Hann á afmæli í dag, er sjötugur, og er fullur af kímni í tilefni dagsins: „Við sjáum hvað afmæl- ið mitt skiptir þjóðina miklu máli. Hún fékk meira að segja frí í vinnunni og hér er víða flaggað.“ Ámundi á viðburðaríka starfsævi að baki og er enn í fullu fjöri. Hann gefur út tólf blöð í gegnum útgáfuna Fótspor. „Ég byrjaði að vinna níu ára gamall. Ég var farinn á sjóinn 13 ára gamall og hef alltaf verið að frá því að ég man eftir mér. Ég man til dæmis vel eftir því þegar ég réð mig á Elliða árið 1962. Við veiddum þorsk og síld fyrir utan sunnanvert landið. Þar var Árni Gíslason skipstjóri.“ Með sjómennskunni sinnti Ámundi öðru starfi; hann var umboðsmaður margra íslenskra hljómsveita. „Þetta voru Hljómarnir, Dúmbó og Steini, Haukarnir og fleiri góðar hljóm- sveitir. Ég ákvað svo að hætta í sjó- mennskunni, því ég var farinn að hafa meiri tekjur af umboðsmennskunni.“ Ámundi rifjar upp skemmtilegar tón- leikaferðir sem farnar voru víða um land. „Ég skipulagði tónleika í nán- ast hverju bæjarfélagi landsins.“ Auk umboðsmennskunnar gaf Ámundi út hljómplötur. „Ég gaf út 57 plötur. Og þetta eru margar af perlum íslenskr- ar tónlistar. Ég er mjög stoltur af því.“ Reynslan af skipulagningu tónleika kom sér vel í öðru starfi sem Ámundi gegndi. Hann starfaði sem fram- kvæmdastjóri Alþýðuflokksins um tíma og átti í miklu samstarfi við vin sinn Jón Baldvin Hannibalsson. „Ég skipulagði fundaferð um allt land með Jóni og enduðum við í Laugardalshöll þar sem fimm þúsund manns mættu.“ Ámundi var í miklu samstarfi við fjöl- marga stjórnmálamenn og á enn góða vini úr þeim geira. „Össur Skarphéð- insson hringdi í mig og tilkynnti mér að hann ætlar að gefa mér dýra gjöf í tilefni dagsins. Ég vil meina að ég hafi komið honum til manna þegar ég dró hann úr Alþýðubandalaginu yfir í Alþýðuflokkinn á sínum tíma,“ segir Ámundi og skellir upp úr. Ámundi segir að engin veisluhöld séu skipulögð í tilefni afmælisins. „Ég býð börnunum og barnabörnunum bara út að borða á einhverjum dýrum veitingastað. Ég hélt nefnilega svaka- legt „game“ þegar ég varð fimmtugur. Og maður á ekki að endurtaka gott partí!“ Ámundi segir annars að það standi til að skrifa ævisöguna, þar sem farið verður yfir góðar sögur og skemmti- lega tíma. „Ég er sannfærður um að stórir aðilar í þjóðfélaginu muni berj- ast um bókina, sem mun bera titilinn Í námunda við Ámunda.“ kjartanatli@365.is Ætlar að skrifa bókina Í námunda við Ámunda Ámundi Ámundason útgefandi er sjötugur í dag. Hann ætlar sér að halda upp á daginn með fj ölskyldunni. Ámundi rifj ar upp skemmtilegar minningar í tilefni dagsins. SÁTTUR Á AFMÆLISDAGINN Ámundi Ámundason er sjötugur í dag. VINIRNIR TVEIR Ámundi Ámundason og Jón Baldvin Hannibalsson eru góðir vinir. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 3 -5 2 4 C 1 7 6 3 -5 1 1 0 1 7 6 3 -4 F D 4 1 7 6 3 -4 E 9 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.