Fréttablaðið - 12.05.2015, Qupperneq 4
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
50.000
MANNS
eða svo eru í VR, LÍV og
félögum Flóabandalagsins
sem nú kjósa um boðun
verkfallsaðgerða, sem hefjast
myndu með tveggja daga
vinnustöðvun
28. MAÍ
80%
AF
LAUNUM
verða greidd til félagsmanna
VR úr verkfallssjóði vegna
tveggja daga verkfalls sem
ráðgert er að verði undir lok
mánaðarins.
180
ÞÚSUND
KRÓNUR
er hámarksgreiðsla á mánuði
úr verkfallssjóði til félags-
manns VR í fullu starfi komi
til ótímabundins verkfalls 6.
júní, að því er fram kemur á
vef stéttarfélagsins.
3.000
MILLJÓNIR
króna, eða þar um bil, eru í
verkfallssjóði VR, eftir tilfærslu
úr aðalsjóði, sem félagsstjórnin
lagði til um daginn.
23,5%
HÆKKUN
dagvinnulauna á þriggja
ára samningstíma segja
Samtök atvinnulífsins að
séu á borðinu. Innifalin er
í hækkuninni er breyting á
vinnutilhögun með lengingu
dagvinnutíma og lækkun
yfirvinnuálags.
17
AÐILDAR-
FÉLÖG
Bandalags háskólamanna
(BHM) eru með lausa
samninga við ríkið. Hluti
félaganna hefur nú verið í
ótímabundnu verkfalli í fimm
vikur.
NOKKRAR STÆRÐIR TENGDAR VERKFALLSAÐGERÐUM OG KJARABARÁTTU
VERKALÝÐSBARÁTTAN
Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerðum. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum,
eða miður skemmtilegum, sögum með því að senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is.
KJARAMÁL Með því að allir aðilar
vinnumarkaðarins kæmu að kjara-
samningum nú, bæði almenni og
opinberi geirinn, þá gætu stjórnvöld
betur komið að því að mæta þörf-
um tekjulægstu hópanna, segir Þor-
steinn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins (SA).
Meðal úrræða sem ríkið gæti
komið með að borðinu segir hann
vera breytingar á félagslega íbúða-
kerfinu, húsaleigubætur og mögu-
legar breytingar á skattkerfinu
sem myndu hjálpa til við að takast
á við kröfuna um sérstaka hækkun
lægstu launa. Tilboð sem SA hafi
lagt fram í samningunum núna fari
þó langleiðina í að mæta kröfum
verkalýðsfélag-
anna og sé hæsta
tilboð sem sam-
tökin hafi lagt
fram í samning-
um, 23,5 prósent
á þremur árum.
„Lágmarkstekju-
trygging í fullri
dagvinnu væri
þá komin í um
280 þúsund krónur í lok samnings-
tímans,“ segir hann. Almennar pró-
sentubreytingar myndu svo gagnast
millitekjuhópunum líka.
Breytingu á vinnufyrirkomulagi
sem kveðið sé á um í tilboði SA, átta
prósenta viðbótarhækkun, sé fyrst
og fremst ætlað það hlutverk að
auka framfærslugetu af dagvinnu-
launum og leiði vonandi á endanum
til styttri vinnutíma. „Það ætti strax
að stuðla að einhverri styttingu og
yfir lengri tímabil að geta stuðlað
að því að við kæmumst í sambæri-
legt umhverfi og nágrannalöndin
hvað þetta varðar.“ Hér sé hlutfall
dagvinnu ekki nema 75 prósent af
heildarlaunum, meðan það sé um
90 prósent á Norðurlöndum. „Þá er
alveg ljóst að hækkun dagvinnu-
launa kemur þeim langbest sem
eingöngu vinna dagvinnu og eru
yfirleitt tekjulægsti hópurinn. Jafn-
framt ætti þetta að draga úr ójafn-
vægi í launum kynja á markaði.“
Þorsteinn segir valið snúa að því
að vinna sameiginlega að einhverri
lausn í þessa veru, sem takmarki
líkur á að verðbólga fari hér af stað
að nýju, eða halda inn í sveiflu-
umhverfi ósjálfbærra hækkana
sem ljóst sé að gangi til baka. Til-
boð SA reyni engu að síður á þanþol
efnahagslífsins og gæti jafnvel þýtt
verðbólguskot upp á einhver fjögur
prósent. „En við ættum að ná tökum
á því ástandi aftur.“
SA hafa áður talað fyrir norrænu
vinnumarkaðslíkani og ramma-
samningi um vinnubrögð í kjara-
málum, bæði á almenna og opinbera
vinnumarkaðnum. Þessa lexíu hafi
Svíar lært eftir bankakreppu þeirra
á níunda áratugnum og horfið frá
miklum hækkunum sem litlum
kaupmætti hafi skilað á endanum.
(Sjá töflu hér til hliðar.)
„Við gætum núna í þessari erfiðu
stöðu búið til umtalsvert verðmæt-
an samning sem ætti að skila launa-
fólki raunverulegum ávinningi og
myndarlegri kaupmáttaraukningu
á dagvinnulaunum, en um leið lág-
marka áhættuna á efnahagslegum
skakkaföllum.“ olikr@frettabladid.is
KJARAMÁL „Ríkið kom með ákveðna tillögu sem við erum
bara að skoða og fara yfir,“ sagði Páll Halldórsson, for-
maður samninganefndar BHM, að loknum tveggja tíma
fundi með samninganefnd ríkisins í Karphúsinu í gær.
Hann bjóst við því að svara tilboðinu í dag, en boðaður
hefur verið fundur í deilunni klukkan tvö.
Páll vill ekkert upplýsa um innihald tilboðsins. „Þetta er kannski ekk-
ert voðalega mikil nýjung en þó er það betra en það sem við höfum séð
áður,“ segir hann.
Í gær hafði ekki verið fundur í deilunni í viku og lítið þokast. - lvp, óká
Ætlaði að sofa á nýju tilboði samninganefndar ríkisins:
Betra en það sem áður hefur sést
„Við verðum að bíða og sjá hvað verður með framvinduna,“
segir Gunnar Bergmann, eigandi Hrefnuveiðimanna. Hann
segir allt til reiðu að halda til veiða, en hrefnuveiðitímabilið
hefur oft hafist um þessar mundir, hins vegar setji yfirstand-
andi verkfall dýralækna þó líklega ákveðið strik í reikninginn.
„Maður áttar sig svo sem ekki alveg á hvað er í upp-
siglingu, en það er ljóst að dýralæknaverkfallið sem núna
er í gangi hefur áhrif á okkur,“ segir hann, en reglur í kring
um hrefnuveiðarnar séu á þann veg að í raun sé litið á báta
þeirra eins og sláturhús. „Við þurfum að kalla til dýralækni til
að stinga hitamæli í kjötið þegar það kemur inn til vinnslu.“
Gunnar segir Hrefnuveiðimenn ekkert byrjaða að veiða
enn sem komið er, þeir séu þó alveg klárir í að byrja hvenær
sem er, en veiðar hafi alla jafna hafist í fyrrihluta maímán-
aðar.
Á meðan á verkfalli dýralækna
stendur er því hrefnukjöt í hópi
þeirra afurða sem ekki enda á
grillum landsmanna með hækk-
andi sól og betra veðri.
Önnur áhrif segir Gunnar
líkast til lítil á starfsemina.
Flutningar á afurðum séu
ekki meiri en svo að þeir geti
annast þá sjálfir. „Við þurfum
ekki á þjónustu annarra að
halda, þannig séð. Starfsfólk hjá
okkur er ekkert að fara í verk-
fall, sjómenn eða aðrir.“
- óká
REYNSLUSÖGUR ÁHRIF YFIRSTANDANDI VERKFALLSAÐGERÐA
Þurfa dýralækni með hitamæli
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
Svíþjóð 1980-1992 Svíþjóð 1993-2014
■ Launakostnaður ■ Verðlag ■ *Kaupmáttur
Svíþjóð fyrir og eftir bankakreppu
*árleg meðalhækkun.
Heimild: Samtök atvinnulífsins
2,2%
1,4%
3,6%
8,2%
0,4%
7,8%
Telja kröfu mætt um
hækkun lægstu launa
Með mögulegum skattkerfisbreytingum sem gagnast myndu tekjulægstu hópum
telja SA kröfum verkalýðsfélaga um hækkun lægstu launa mætt. Tilboð SA sé upp
á 23,5 prósenta hækkun á þremur árum með áherslu á hlut dagvinnulauna.
ÞORSTEINN
VÍGLUNDSSON
VERSLAÐ Í STOKKHÓLMI
SA tala fyrir norrænni leið í
kjarasamningum. Í óstöðug-
leika 9. áratugarins hafi
38,2% meðalhækkun launa
á ári skilað Íslendingum
0,1% kaupmáttaraukningu.
Lægri hækkanir hafi skilað
nágrannaþjóðunum meiru.
NORDICPHOTOS/GETTY
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Verð frá 4.190.000 kr.
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA (BHM)
Ótímabundið verkfall hjá hluta aðildarfélaga | Stendur enn yfir
Í DAG ER 36. DAGUR Í VERKFALLI FIMM ÞEIRRA:
1 Félag geislafræðinga Hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítal-
ans. Ekki er hægt að framkvæma margvíslegar rannsóknir sem krefjast
röntgenmyndatöku.
2 Félag lífeindafræðinga
Áhrif á framkvæmd rann-
sókna á Landspítalanum.
Lífeindafræðingar starfa
á rannsóknastofum
sjúkrahúsa og fyrirtækja
í erfðagreiningu og lyfja-
iðnaði, auk stofnana sem
þjóna landbúnaði.
3 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala Koma að frumu- og
sameindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og
líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði,
meinafræði, faralds fræði, tölfræði og kerfislíffræði.
4 Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala | ÞRI., MIÐ. OG FIM.
Raskar starfi kvennadeildar, en undanþágur hafa verið veittar, svo sem
vegna keisaraskurðaðgerða.
5 Stéttarfélag lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu Ekki er hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjald-
þrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og fleiri hlutum.
● Ljósmæðrafélag Íslands á Sjúkrahúsinu á Akureyri Ótímabundið
verkfall hófst 9. apríl. Verkfall á mánudögum og fimmtudögum. Aðgerðir
eru því á 34. degi.
VERKFALL HJÁ EFTIRTÖLDUM FÉLÖGUM FRÁ 20. APRÍL
1 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun Meðal annars
áhrif á eftirlit með plöntu heilbrigði, matvælaöryggi og neytendavernd.
2 Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Mat-
vælastofnun Raskar margvíslegu eftirliti og rannsóknum.
3 Dýralæknafélag Íslands Stórfelld áhrif á matvælaframleiðslu. Uppáskrift
dýralækna og eftirlit þarf við slátrun og einnig vegna innflutnings.
Í PÍPUNUM: SGS Verkfall 19.-20. maí og ótímabundin vinnustöðvun frá 26.
maí. Hjúkrunarfræðingar Ótímabundið verkfall hefst 27. maí. VR, LÍV og
Flóabandalag 28.-29. maí er verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum, 30.-31. maí
er verkfall á hótelum, gisti- og baðstöðum, 31. maí-1. júní er verkfall í flugaf-
greiðslu, 2.-3. júní er verkfall hjá skipafélögum og í matvöruverslunum, 4.-5. júní
er verkfall hjá olíufélögum, 6. júní hefst ótímabundið verkfall félagsmanna.
VERKFALLSAÐGERÐIR Í GANGI
LESIÐ Í STÖÐ-
UNA 90,65 pró-
sent hjúkrunar-
fræðinga voru
fylgjandi boðun
verkfalls frá og
með 27. maí
næstkomandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
E
-7
6
0
C
1
7
5
E
-7
4
D
0
1
7
5
E
-7
3
9
4
1
7
5
E
-7
2
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K