Fréttablaðið - 12.05.2015, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. maí 2015 | FRÉTTIR | 11
ÞÝSKALAND Það voru ekki bara
sovéskir hermenn sem nauðg-
uðu þýskum konum við lok seinni
heimsstyrjaldarinnar og á tím-
anum þar á eftir, heldur einnig
bandarískir. Þetta kemur fram
í nýútkominni bók, Als die Sol-
daten kamen (Þegar hermenn-
irnir komu), eftir þýska sagnfræ-
ðiprófessorinn og blaðamanninn
Miriam Gebhardt.
Í viðtali við sænska blaðið
Dagens Nyheter kveðst Gebh-
ardt hafa fundið gögn í Bæjara-
landi um nauðganir bandarískra
hermanna. Það hafi vakið for-
vitni hennar þar sem áður hafi
eingöngu verið skrifað um nauðg-
anir hermanna í Rauða hernum.
Bandaríkjamenn hafi hins vegar
ekki bara verið frelsarar.
Gebhardt segir að í kalda stríð-
inu hafi nauðganir Rauða hers-
ins verið notaðar í pólitískum til-
gangi. Ekki hafi verið um að ræða
samúð með konunum.
Það er mat sagnfræðiprófess-
orsins að um 860 þúsundum
þýskra kvenna hafi verið nauðg-
að á fyrrgreindu tímabili. Mat
hennar er byggt á vitneskjunni
um þann fjölda barna sem þýsk-
ar konur eignuðust með hermönn-
unum og að fimm prósent þeirra
hafi fæðst í kjölfar nauðgunar.
Að sögn Gebhardt var ekki um
skipanir að ofan að ræða. Hún
kveðst hafa fundið dæmi um
harða dóma yfir hermönnum.
Flestir hafi þó sloppið. - ibs
Bæði bandarískir og sovéskir hermenn beittu konur í Þýskalandi kynferðislegu ofbeldi í lok stríðsins:
Hundruðum þúsunda kvenna nauðgað
Í LOK STRÍÐSINS Sovéskir hermenn í
Þýskalandi.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Velferðarráðu-
neytið styrkir geðsvið Sjúkra-
hússins á Akureyri um 10 millj-
ónir króna og starfsaðstöðu
sálfræðings, samkvæmt sam-
komulagi sem Eygló Harðar-
dóttir félagsmálaráðherra
og Bjarni Jónasson, forstjóri
sjúkrahússins á Akureyri,
skrifuðu undir fyrir helgi.
Markmiðið er sagt að aðstoða
í auknum mæli þolendur ofbeld-
is. Skrifað var undir í Seli, dag-
og göngudeild geðsviðs sjúkra-
hússins. - srs
Koma til móts við þolendur:
Styrkja geðsvið
sjúkrahússins
UNDIRRITUNIN Ráðuneytið styrkir
geðsvið FSA um 10 milljónir.
MYND/VELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ
DÝR Umhverfisráðuneytið aug-
lýsir eftir umsóknum um styrki
vegna hrossaræktunar.
Markmið styrkveitingarinnar
er að efla markaðssókn og rækt-
un íslenska hestsins og fylgja
eftir þeirri fagmennsku sem
hefur hlotist í þjálfun hestsins.
Lögð er áhersla á að styrkja
nýsköpunarstarfsemi sem getur
orðið sjálfbær eftir þróunar-
tímabil. Sjóðurinn mun hafa
rúmar sex milljónir til ráðstöf-
unar í ár.
Umsóknarfrestur vegna styrk-
veitinga rennur út 3. júní. - srs
Styðja við þjálfun hrossins:
Styrkja nýsköp-
un í hrossarækt
ÍSLENSKA HROSSIÐ Efla á markaðs-
sókn hestsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
STJÓRNSÝSLA Ríkisskattstjóri er
stofnun ársins samkvæmt könn-
un SFR stéttarfélags í almanna-
þágu.
Könnunin fór nú fram í tíunda
sinn og er gerð í samstarfi við
Gallup og fjármálaráðuneytið.
Ríkisskattstjóri hefur áður
verið tilnefndur sem stofnun árs-
ins og hlaut annað sætið í könn-
uninni í fyrra.
Valið byggist á svörum 12
þúsund manna á almennum og
opinberum markaði en 50 þúsund
fengu könnunina senda. - srs
Voru í öðru sæti í fyrra:
Ríkisskattstjóri
stofnun ársins
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýjum vörum. Allt að 50% afsláttur af eldri heimilistækjum.
Hér fyrir neðan má sjá nokkur sýnishorn af freistandi afmælistilboðum.
Freistandi afmælistilboð
Kæliskápur,
KGV 36UW20.
Afmælistilboð: 79.900 kr.
Fullt verð: 102.600 kr.
Örbylgjuofn,
HMT 75M421.
Afmælistilboð: 17.900 kr.
Fullt verð: 21.900 kr.
20% afsláttur af
Múmín-vörum.
20% afsláttur af
Babell-kökudiskum.
Expressó-kaffivél,
TCA 5309.
Afmælistilboð: 64.900 kr.
Fullt verð: 79.900 kr.
Þvottavél,
WAQ 24461SN.
Afmælistilboð: 89.900 kr.
Fullt verð: 122.400 kr.
Afmæli
Bosch-búðarinnar
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
D
-F
F
8
C
1
7
5
D
-F
E
5
0
1
7
5
D
-F
D
1
4
1
7
5
D
-F
B
D
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K