Fréttablaðið - 12.05.2015, Qupperneq 12
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
MENNING Skáksamband Íslands hefur fengið 25
milljóna króna styrk frá ríkisstjórninni til að standa
straum af kostnaði við Evrópumót landsliða í skák
sem verður haldið hér á landi 12. til 22. nóvember
næstkomandi.
Frá þessu er greint í fréttabréfi sambandsins.
Árið 2012 voru áform SÍ um að sækjast eftir því
að halda Evrópumót landsliða í skák hér á landi
kynnt. Þá var veittur tveggja milljóna króna styrk-
ur af ráðstöfunar fé ríkisstjórnarinnar til undirbún-
ings og jafnframt vilyrði um styrkinn sem nú er í
hendi.
„Þetta er einn stærsti viðburður sem Skáksam-
band Íslands hefur staðið fyrir og mun eflaust efla
áhuga almennings á íþróttinni auk þess að vera
afar hvetjandi viðburður fyrir okkar sterkustu
skákmenn. Okkar hlutverk er að búa til umgjörð í
heimsklassa og þessi styrkur gerir okkur það kleift.
Skákhreyfingin er ríkisstjórninni afar þakklát fyrir
stuðninginn,“ segir Gunnar Björnsson, forseti SÍ, í
fréttabréfinu. - shá
Evrópumót landsliða í skák á Íslandi stærsti viðburður sem SÍ hefur annast:
SÍ fær 25 milljónir í mótshaldið
REYKJAVÍKURSKÁKMÓT Stórmót í skák á Íslandi eru engin
nýlunda. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STJÓRNMÁL Björt Ólafsdóttir, þing-
maður Bjartrar framtíðar, lagði
fram skriflega fyrirspurn til heil-
brigðisráðherra á Alþingi í gær
um fyrirkomulag vegna aðgerða á
inter sex-börnum.
Björt spyr um upplýsingagjöf
til foreldra um inter sex og hvern-
ig læknisfræðilegum meðferð-
um er háttað. Þá spyr hún hvers
konar ráðgjöf og fræðslu foreldr-
ar inter sex-barna fái við greiningu
og í hverra höndum hún sé. Einnig
hversu mörgum hefur verið boðin
fóstureyðing á grundvelli þess að
fóstur sé með intersex-breytileika
og um fjölda aðgerða á ári á börnum
til þess að „leiðrétta“ kyn.
„Ég legg þetta fram vegna þess
að ég hef ástæðu til að ætla að
læknismeðferð og aðgerðir fari
fram án þess að það sé nokkur laga-
rammi í kringum það. Það er því á
valdi lækna hvernig þeir meðhöndla
þessi börn, því er hætt við að við-
horf þeirra og persónuleg skoðun á
málefni barnanna geti haft áhrif,“
segir Björt Ólafsdóttir - kbg
Þingkona Bjartrar framtíðar telur persónuleg viðhorf lækna geta haft áhrif:
Spyr um málefni intersex-barna
VILL UPPLÝSINGAR Björt vill vita hvort
það hafi verið framkvæmdar fóstureyð-
ingar á grundvelli þess að fóstur sé með
intersex-breytileika. Þá vill hún vita um
fyrirkomulag á aðgerðum.
VIÐSKIPTI SAH afurðir ehf. á
Blönduósi hafa náð samningum
við fyrirtæki í Hong Kong um sölu
á 160 tonnum af lambakjöti og 70
þúsund gærum. Markmiðið er að
senda kjötið og gærurnar úr landi
fyrir maílok. Verkfall dýralækna
gæti sett strik í reikninginn.
Gunnar Tryggvi Halldórsson,
framkvæmdastjóri SAH afurða,
segir samninginn skipta miklu máli
fyrir innlenda framleiðslu. „Allt í
allt er þetta 21 gámur af lambakjöti
og gærum. Samkomulagið snýr að
sölu á 160 tonnum af lambakjöti og
70.000 gærum. Þessi samningur er
mjög mikilvægur bæði fyrir SAH
afurðir sem og aðra á innlendum
markaði,“ segir Gunnar Tryggvi.
SAH afurðir eru í meirihlutaeigu
Sölufélags Austur-Húnvetninga og
Kjarnafæðis. Að mati Gunnars
Tryggva er verðið sem félagið fær
fyrir afurðirnar gott og í samræmi
við verð á innanlandsmarkaði. Virði
samningsins, sem undirritaður var
í Asíu í síðustu viku, er allt að fjög-
ur hundruð milljónir króna.
„Þetta minnkar spennu á inn-
lendum markaði. Margir eiga bæði
kjöt og gærur frá síðustu sláturtíð
og því er þetta kærkomið fyrir alla
aðila að finna erlenda markaði fyrir
framleiðsluna sem tilbúnir eru að
greiða gott verð fyrir afurðirnar,“
segir Gunnar Tryggvi. „Það er
alveg ljóst að þetta er hagstæðasti
samningur sem við höfum náð hjá
SAH afurðum um útflutning á kjöti.
Þarna erum við að selja kjöt út á
sama verði og á innanlandsmarkað
sem er nýlunda hvað útflutning á
lambakjöti snertir.“
Verkfall dýralækna hjá Mat-
vælastofnun gæti sett strik í reikn-
inginn. Allur útflutningur á kjöt-
afurðum verður að fara í gegnum
stofnunina og dýralæknar þurfa að
votta afurðir sem fara úr landi. Sú
stétt hefur nú verið í verkfalli í yfir
mánuð og skiptir miklu fyrir aðila
á markaðnum að kjaradeilan leysist
sem fyrst. „Við þurfum að geta sent
út gærurnar sem fyrst og vonumst
eftir því að geta sent allt út í þess-
um mánuði. Það sem gæti stöðvað
það er verkfall dýralækna því það
þarf hleðslustaðfestingu og vottorð
frá dýralæknum Matvælastofnunar
til þess að við getum flutt afurðirn-
ar út. Það er mjög mikilvægt fyrir
þjóðarbúið að tryggja útflutning
á afurðum sem þessum og hagur
allra.“ sveinn@frettabladid.is
Selja 160 tonn af
lambakjöti til Asíu
SAH afurðir á Blönduósi hafa samið um sölu á lambakjöti og gærum til Asíu.
Virði samningsins allt að 400 milljónir. Gætu flutt meira út eftir sláturtíð í haust.
„Sambærilegt verð og á innanlandsamarkaði,“ segir framkvæmdastjóri SAH.
SAMNINGUR HANDSALAÐUR Gunnar Tryggvi Halldórsson og fulltrúi asíska fyrir-
tækisins eftir undirritun í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND MYND
SAH Fyrirtækið er í eigu Sölufélags
Austur-Húnvetninga og Kjarnafæðis á
Svalbarðseyri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þarna erum við að
selja kjöt út á sama verði
og á innanlandsmarkað
sem er nýlunda hvað
útflutning á lambakjöti
snertir.
Gunnar Tryggvi Halldórsson,
framkvæmdastjóri SAH afurða.
Lífeyrissjóður starfsmanna
Kópavogsbæjar
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
verður haldinn fimmtudaginn 28. maí kl. 16.00
í Bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar, Fannborg 2, Kópavogi.
Allir sjóðsfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi
stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og
tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Kópavogi, 5. maí 2015
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Önnur mál löglega upp borin
Yfirlit yfir afkomu árins 2014
Efnahagsreikningur 2014 2013
Verbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðskuldabréf
Bankainnistæður
Kröfur
Aðrar eignir
Skuldir
Hrein eign til greiðslu lífeyris
1.087.529.020
2.528.040.606
52.023.578
59.344.864
19.202.830
18.861.408
(7.174.407)
3.757.827.899
1.120.689.657
2.710.448.938
45.819.972
3.839.742
41.134.861
8.326.735
(13.166.031)
3.917.093.874
Breyting á hreinni eign 2014 2013
Iðgjöld
Lífeyrir
Fjárfestingatekjur
Fjárfestingagjöld
Rekstrarkostnaður
Aðrar tekjur
Hækkun á hreinni eign á árinu
Hrein eign frá fyrra ári
Hrein eign til greiðslu lífeyris
240.568.235
(304.694.518)
222.711.303
(9.058.207)
(13.587.311)
23.326.473
159.265.975
3.757.827.899
3.917.093.874
227.599.641
(286.320.039)
378.162.021
(8.786.864)
(13.180.296)
22.750.661
320.225.124
3.437.602.775
3.757.827.899
Kennitölur 2014 2013
Nafnávöxtun
Raunávöxtun
Raunávöxtun 5 ára meðaltal
Skuldir umfram áfallnar skuldbindingar
Fjöldi sjóðsfélaga
Fjöldi lífeyrisþega
5,4%
4,3%
4,1%
(58,0%)
112
289
10,4%
6,5%
4,6%
(56,1%)
118
277
Starfsemi sjóðsins á árinu
Starfsemi sjóðsins var með hefðbundnum hætti á árinu 2014. Rekstrarkostn-
aður ársins 2014 var 13,6 m.kr. en var 13,2 m.kr. á árinu 2013 og var
kostnaðurinn um 0,4% af hreinni eign í árslok. Fjárfestingagjöld námu um
9,1 m.kr. en 8,8 m.kr. árið á undan. Enginn starfsmaður var á launaskrá hjá
sjóðnum, en Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur frá 1. apríl 2010
annast daglegan rekstur sjóðsins.
Sjóðsfélagar
Í júlí 1998 var sjóðnum lokað fyrir nýjum sjóðfélögum. Þeim einum sem
greiddu til sjóðsins í júní 1998 er heimilt að greiða áfram til hans, enda hafi
iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma. Þetta eru þeir sem
greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Kópavogsbæ, stofnunum bæjarins, sjálfs-
eignastofnunum eða félögum skrásettum í Kópavogi sem sveitarfélagið á
aðild að og voru iðgjaldaskyldir til sjóðsins.
Ársfundur 2015
Í stjórn sjóðsins eru: Gunnlaugur Júlíusson, formaður, Ása Richardsdóttir,
Helga E. Jónsdóttir, Kristinn Sverrisson og Ragnar Snorri Magnússon.
Framkvæmdastjóri er: Gerður Guðjónsdóttir.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
E
-0
E
5
C
1
7
5
E
-0
D
2
0
1
7
5
E
-0
B
E
4
1
7
5
E
-0
A
A
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K