Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2015, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 12.05.2015, Qupperneq 30
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 22 Lax 600 g lax (eða blanda af laxi og þorski) sólþurrkaðir tómatar í olíu, magn eftir smekk 1 hvítlauksrif gróft salt 10 kartöflur klettasalat Hitið ofninn í 225°C. Afhýðið kart- öflurnar, skerið í bita og dreifið úr þeim á ofnplötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Setjið hálfan desilítra af olíunni af sólþurrkuðu tómötunum í skál og pressið hvítlauksrifið í olíuna. Hellið olíunni yfir kartöflurnar og setjið í ofninn í um 20 mínútur. Skerið laxinn (og þorskinn sé hann notaður) í bita sem eru um 2×2 cm að stærð. Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í 20 mínútur er laxinum bætt á ofnplötuna, nokkrum matskeiðum af olíunni af sólþurrkuðu tómötunum skvett yfir ásamt grófu salti og sett aftur í ofninn í 10 mínútur til við- bótar. Þegar laxinn og kartöflurnar koma úr ofninum er hökkuðum, sólþurrkuðum tómötum stráð yfir ásamt klettasalati. Setjið réttinn á fallegt fat og berið fram með fetaostasósu. Fetaostsósa 1 dl sýrður rjómi 100 g fetakubbur ½ hvítlauksrif, pressað Salt Ítalskt salatkrydd Myljið fetaostinn og hrærið saman við sýrða rjómann. Pressið hvítlauk- inn saman við og smakkið til með salti og ítölsku salatkryddi. Geymið í ísskáp þar til sósan er borin fram. Ítalskur lax með fetaostsósu Uppskrift fengin af Ljufmeti.com. „Þetta er svakalega viðeigandi og current á okkar tíma. Free the Nipple nýbúið að vera í umræðunni og Free the Pussy að koma upp á yfirborðið og við erum nákvæm- lega að fjalla um þessi málefni,“ segir Sveinbjörg Þórhallsdóttir, lektor og fagstjóri samtímadans- brautar Listaháskóla Íslands. Hún, ásamt Steinunni Ket- ilsdóttur, er danshöfund- ur samtímadansverks- ins #PRIVATEPUSSY, annarrar sýningar útskriftarnema af samtíma- dansbraut LHÍ, en útskriftar- hópurinn setur einnig upp sýn- inguna A life in Muscle eftir Tony Vezich. „Þetta er rosalega sterkur hópur samtímadansara, sterk- ar konur,“ segir Svein- björg stolt en þetta er jafnframt þriðja verkið sem Svein- björg og Steinunn vinna saman að og fjallar um baráttu- mál konunnar. #PRIVATEPUSSY spyr spurninga um birt- ingarmynd konunnar og kvenlíkamans í nútíma- samfélagi og fjallar um stöðu og birtingarmynd hennar í poppmenn- ingu. Free the Nipple- byltingin átti sér stað á Twitter á sama tíma og verkið var í vinnslu en þar birtu íslenskar konur myndir af brjóstum sínum meðal annars til þess að mót- mæla kynvæðingu brjósta. „Free the Nipple kemur bara inn í mitt tímabil hjá okkur þar sem við erum að fjalla um þessi málefni. Við vorum að gera senu þar sem þær voru allar berar að ofan og þetta átti svona vel við,“ segir hún og bætir við að það hafi enn frekar styrkt að verkið væri í takt við tímann. Talsverð hugmynda- og rann- sóknarvinna liggur að baki dans- verkum og er engin undantekn- ing þar á í #PRIVATEPUSSY, en Sveinbjörg segir þær Steinunni og dansarana í verkinu meðal annars hafa lagst yfir poppmenningu og skoðað þekktustu poppstjörnur samtímans nánar. „Við tókum til dæmis Beyoncé og allar þessar poppdrottningar. Rannsökuðum hreyfingarnar og tilvitnanirnar,“ segir hún og bætir við: „Þær hafa svo ofboðslega mótandi áhrif á samfélagið sitt og þau geta verið misgóð og misvísandi skilaboð,“ segir Sveinbjörg, en hún segir meðal annars mikið hafa verið unnið með twerk og aðrar hreyf- ingar sem áberandi eru í tónlist- armyndböndum. Tónlistin í sýningunni er eftir Áskel Harðarson og er það útskriftarverk hans úr tónsmíð- um. Ókeypis er inn á báðar sýn- ingarnar en panta þarf miða á midisvidslist@lhi.is. Verkin verða sýnd í Gamla bíói á fimmtudag og föstudag klukkan fimm og átta. gydaloa@frettabladid.is Skoðuðu twerk og Beyoncé fyrir verkið #PRIVATEPUSSY Samtímadansverkið #PRIVATEPUSSY, sýning útskrift arnema af samtímadansbraut LHÍ, spyr spurninga um birtingarmynd konunnar og kvenlíkamans í nútímasamfélagi og í poppmenningu. Verkið er sýnt í vikunni. SKOÐUÐU BEYONCÉ Sveinbjörg Þórhallsdóttir, lektor og fagstjóri samtímadansbrautar Listaháskóla Íslands, er annar danshöfunda #PRIVATEPUSSY. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við tókum til dæmis Beyoncé og allar þessar popp- drottningar. Rannsökuðum hreyfingarnar og tilvitnanir. Leikkonan Jennifer Lawrence hefur skrifað upp á samning þess efnis að hún fái 20 milljónir Bandaríkjadala fyrir hlutverk sitt í myndinni Passengers. Auk Lawrence hefur verið til- kynnt að Chris Pratt fari einnig með aðalhlutverk í myndinni en Lawrence fær tvisvar sinnum hærri laun fyrir framlag sitt. Samningurinn hefur komið leikkonunni í hóp leikara á borð við Leonardo DiCaprio, Bradley Cooper og Robert Downey Jr. sem allir þiggja dágóðar summ- ur fyrir verkefni sín. Þessi tíðindi koma stuttu eftir umræðu um launamun kynjanna í Hollywood þegar tölvupóstar frá Sony láku á internetið og kunngert var að Lawrence og Amy Adams fengju lægri laun en karlkyns mótleikarar þeirra í myndinni American Hustle. Framleiðsla á Passengers er ekki hafin en myndinni verður leikstýrt af Susanne Bier. Lawrence launahá FÆR GÓÐA SUMMU Leikkonan Jennifer Lawrence er sjálfsagt einna best þekkt fyrir hlutverk sitt í Hunger Games-myndunum. NORDICPHOTOS/GETTY LÍFIÐ 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 D -F F 8 C 1 7 5 D -F E 5 0 1 7 5 D -F D 1 4 1 7 5 D -F B D 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.