Fréttablaðið - 12.05.2015, Side 31
ÞRIÐJUDAGUR 12. maí 2015 | LÍFIÐ | 23
Rapparinn, upptökustjórinn og
tónlistarmógúllinn Kanye West
vakti athygli fjölmiðla vestanhafs
um helgina þegar hann sást brosa
á körfuboltaleik. West, sem þykir
ekkert sérstaklega brosmildur,
var þá staddur á leik Chicago
Bulls og Cleveland Cavaliers.
West var að tala við Scottie Pipp-
en, fyrrverandi leikmann Bulls,
og brosti yfir því sem stjarnan
gamla sagði. En á myndbandi
sem gengur um netheima virðist
West horfa í myndavélina og átta
sig á því að hann er brosandi. Við
það verður hann mun alvarlegri
og telja fjölmiðlar hann einfald-
lega ekki hafa viljað brosa fram-
an í myndavélina.
Kanye West
sást brosandi
KÁTUR KANYE Rapparinn brosti sínu
blíðasta á körfuboltaleik.
Hollywood-leikarinn og sjarmatröll-
ið Channing Tatum lenti hér á landi
í gærmorgun. „Það tók enginn eftir
því að þetta var hann og því var eng-
inn að ónáða hann,“ segir Marteinn
Pétur Urbancic, starfsmaður á bíla-
leigu á Keflavíkurflugvelli, en hann
varð vitni að því þegar Tatum lenti
hér á landi.
„Við vorum að ná í vinkonu okkar
upp á flugvöll sem var að koma
frá New York og þegar hún kom út
vildi hún bíða aðeins á flugvellinum
vegna þess að hún sá að Channing
Tatum var með henni í flugvél-
inni,“ bæti Marteinn við. Tatum
er best þekktur fyrir leik sinn í
kvikmyndum á borð við, 21 Jump
Street, Magic Mike og Step up.
Vinkona Marteins, Kait-
lyn Culotta, fékk mynd af
sér með Tatum og náði hún
einnig að spjalla við stjörn-
una sem henni þótti einkar
viðkunnanleg. „Hann var
víst mjög al menni leg ur.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ætlar Tatum að dvelja
hér á landi í tíu daga. „Hann er
hér ásamt nokkrum félögum
sínum og þeir ætla skoða nátt-
úruna og jökla,“ bætir Mar-
teinn við. Einn af félögum
Tatums sem er hér með
honum er leikarinn
Adam Rodriguez, en
hann lék ásamt Tatum
í myndinni Magic
Mike og þá hefur
hann meðal annars leikið í þáttum
á borð við CSI: Miami og Law &
Order. „Vinkona mín sat fyrir aftan
Rodriguez í flugvélinni og rak upp
stór augu þegar hún sá hann og fékk
mynd af sér með honum. Á meðan
sú mynd var tekin, rak hún upp enn
stærri augu þegar hún sá að Tatum
var einnig í vélinni,“ bætir Marteinn
við.
Tatum sást á vappi í miðbæ Reykja-
víkur í gærdag og leyfði fólki að taka
myndir af sér með honum. - glp
Hollywoodstjarna í heimsókn hér á landi
Hollywood-leikarinn Channing Tatum er staddur hér á landi ásamt félögum sínum og ætlar að skoða
náttúru fegurð landsins. Hann naut lífsins í miðbæ Reykjavíkur í gær og þótti einkar viðkunnanlegur.
GAMAN SAMAN Kaitlyn Culotta var
alsæl með að fá mynd af sér með leikar-
anum flotta. MYND/KAITLYN CULOTTA
MIÐBORGARVAKA
DKNY
BY MALENE BIRGER
GERARD DAREL
BRUUNS BAZAAR
BLANK
SAMSOE & SAMSOE
COMME DES GARCONS
KRISTENSEN DU NORD
STELLA NOVA
‘S MAXMARA
DIESEL
CONDITIONS APPLY
ROSEMUNDE
VENTCOUVERT
LOT78
STRATEGIA
FREE LANCE
PLEASE
BILLI BI
CANDICE COOPER
Laugavegi 26 | s.512 1715 | ntc.is | / verslunin.eva | / verslunineva
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM VÖRUM
OPIÐ TIL 22:00
í miðbænum
15%
Á MORGUN 13. MAÍ
Kim Kardashian West gaf á dög-
unum út bókina Selfish sem er
safn af sjálfsmyndum, en hún
hefur einkar gaman af því að taka
slíkar myndir.
Af nógu var að taka en ein-
hverjar myndir fóru fram hjá
Kardashian við vinnslu bókar-
innar og tilkynnti Kardashian á
Twitter-reikningi sínum að hún
væri alveg miður sín yfir því að
hún hefði fundið frábærar sjálfs-
myndir frá því hún keyrði systur
sína Khloe í fangelsi sem ekki
hefðu ratað í bókina.
Kardashian sagðist mjög leið,
þetta væru frábærar myndir
og leitaði hún ráða hjá aðdáend-
um sínum um hvað hún ætti til
bragðs að taka, hvort hún ætti að
birta þær á netinu eða bæta þeim
við í endurprenti af bókinni, þær
væru einfaldlega of góðar til þess
að þær fengju ekki að líta dagsins
ljós og auk þess vektu þær upp
minningar.
Áhugasamir geta fjárfest í bók-
inni á vefsíðunni Amazon.com.
Kim fann fl eiri
sjálfsmyndir
GAF ÚT BÓK Kim Kardashian gaf út
heila bók með sjálfsmyndum en bókin
ber nafnið Selfish. NORDICPHOTOS/GETTY
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
E
-3
F
B
C
1
7
5
E
-3
E
8
0
1
7
5
E
-3
D
4
4
1
7
5
E
-3
C
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K