Fréttablaðið - 12.05.2015, Síða 32
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Söru
McMahon
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
BAKK 5, 8, 10:10
AGE OF ADALINE 8, 10:20
AVENGERS 2 3D 7, 10
MALL COP 2 5
ÁSTRÍKUR 2D 6
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Skandínavíski mjólkurrisinn Arla hóf nýverið að markaðs-
setja „Icelandic styled skyr“ í
Bretlandi. Maður hefði haldið
að Íslendingar yrðu glaðir að
deila skyrinu sínu með heims-
byggðinni líkt og heims-
byggðin hefur deilt mozz-
arella-osti, hráskinku og
cheddar með okkur, en svo
var ekki. Þess í stað jusu
Íslendingar skömmum yfir
risann á Facebook-síðu
Arla Skyr og fannst fyrir-
tækið heldur ósvífið að
ætla sér að koma skyrinu
á erlenda markaði. Meira
að segja markaðsstjóri
Mjólkursamsölunnar lagði
orð í belg.
REYNDAR fór það nokkuð fyrir
brjóstið á sumum að Arla hafi
haldið því fram á samfélags-
miðlum að skyrið væri framleitt
á Höfn í Hornafirði, og er það
vel skiljanlegt því fyrirtæki eiga
auðvitað ekki að ljúga að neyt-
endum. En hitt er annað mál að
Arla má framleiða og selja skyr,
alveg eins og við framleiðum brie
eða fetaost – sem, ólíkt skyrinu,
er lögverndað vöruheiti með upp-
runa- eða staðarvísun (fetaost-
ur má aðeins kallast fetaostur
sé hann framleiddur á tilteknum
svæðum í Grikklandi og úr grísku
hráefni).
ÞAÐ eru reyndar nokkur ár
síðan uppi voru umræður um
hvort íslenska skyrið ætti að njóta
lögverndunar sem landfræðileg
merking og hvort gera ætti tví-
hliða samning við Evrópusam-
bandið þess efnis, skyldi Ísland
ganga í sambandið. En ekkert
virðist hafa orðið úr því. Hefðu
slíkir samningar verið gerðir
mættu aðeins íslensk fyrirtæki
framleiða og selja skyr. En á móti
hefði MS til dæmis þurft að hætta
notkun vöruheita á borð við feta,
sem hefur verið lögvernduð afurð
frá árinu 2002.
SÉ litið á björtu hliðarnar, þá
getur þjóðin loks státað sig af því
að eiga vöru sem öðrum en okkur
þykir bragðgóð. Er ekki sagt að
stæling sé einlægasta lofið?
Skyrið mitt, skyrið þitt
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
VARIETY CHICAGO SUN TIMES
„Ég hef alltaf átt erfitt með rað-
greiðslur og Visa-reikninga, en
ég hef ekki getað notað vörurn-
ar fyrr en þær eru greiddar að
fullu,“ segir Eva Hrund Kjerúlf,
sem á dögunum lét gamlan draum
rætast er hún fjárfesti í sinni
fyrstu hrærivél, eftir fimmtán
ára sleitulausa söfnun.
Eva hefur safnað fyrir hræri-
vélinni síðan árið 2000, eða síðan
hún eignaðist eldri dóttur sína.
„Hugmyndin kom þegar ég sat
eina andvökunóttina með hana
og horfði á bíómynd á Stöð 2 þar
sem sögupersónan safnaði mikl-
um peningum með litlum fjár-
hæðum. Mér datt í hug að þetta
gæti ég líka gert og hóf þegar í
stað að setja tíu krónur í tíkalla-
krukkuna mína,“ útskýrir hún.
Eva segir ekki hafa verið erfitt
að standa við að setja í krukkuna
dag hvern: „Ég hélt bókhald, og ef
ég gleymdi að setja í krukkuna,
sá ég það svart á hvítu og bætti
upp.“
Eva segist hafa verið gríðar-
lega stolt þegar hún fór loks og
keypti sér Kitchenaid-hrærivél-
ina sem hana hafði alltaf langað
í. „Það var virkilega gaman, og
ef til vill skemmtilegra en ella,“
bendir Eva á og segir fólk í dag of
upptekið af að eiga flottari hluti
en næsti maður. „Það er ekkert
mál að safna fyrir hlutunum,
maður verður bara að setja sér
markmið. Ég veit reyndar ekki
um neinn sem gerir þetta í dag,
það er svo auðvelt að draga upp
Visa-kortið.“
Eva segir þetta aldrei hafa
staðið tæpt hjá henni og hún hafi
alls ekki freistast til að seilast
ofan í tíkallakrukkuna og spreða
í eitthvað annað. En ætli hafi
þá ekki verið erfitt að láta sjóð-
inn fara? „Nei, alls ekki. Það var
bara virkilega skemmtilegt. Ég
er þegar byrjuð að safna aftur
og nú ætla ég að setja tuttugu,
eða jafnvel þrjátíu krónur á dag í
söfnunina, ég hef nefnilega aldrei
átt nýtt sófasett,“ segir þessi sam-
viskusami safnari að lokum. - ga
Tíkall í krukkuna hvern dag
Eva Hrund Kjerúlf lagði tíu krónur fyrir á hverjum einasta degi í fi mmtán ár og safnaði sér fyrir hrærivélinni
sem hana langaði alltaf í. Hún segist ekki vita um neinn annan sem tileinki sér viðhorfi ð í nútíma samfélagi.
SKYNSÖM Eva með gripinn góða sem
hún safnaði sér fyrir, tíkall fyrir tíkall.
FRÉTTABLAÐIÐ
Uppáhaldsheimilisgestur
margra, Sofia Vergara, var verð-
launuð af bransanum á dögunum.
Hinni blóðheitu Modern Family-
leikkonu hlotnaðist sá mikli
heiður að fá nafnið sitt skrifað í
götuna The Hollywood Walk of
Fame. Hefur það löngum þótt
aldeilis rós í hnappagat leikara
vestanhafs að fá nafnið hripað
þar.
Leikkonan lék á als oddi við
afhjúpunina og ef marka má
Instagram-myndir skvísunnar
þá var aldeilis slegið upp ærlegri
veislu.
Kærastinn, Joe Manganiello,
var með í för, en hann er nú ekki
óvanur sviðsljósinu, hafandi leik-
ið í True Blood og Magic Mike.
Sofi a afh júpar
stjörnuna sína
TVÆR STJÖRNUR Sofia lét útbúa fyrir
sig eftirlíkingu í formi köku.
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Íslandsbanki auglýsir til sölu allt að 22,85% hlut í Nýjum Norðurturni hf., eiganda nýrrar
15 hæða skrifstofubyggingar að Hagasmára 3 í Kópavogi.
Framkvæmdir við húseignina eru á lokastigi og áætlað er að verktaki afhendi bygginguna tilbúna
til innréttingar í október á þessu ári. Á fyrstu og annarri hæð hússins er fyrirhugað að hafa
verslunarhæðir en þær eru beintengdar við verslunarmiðstöðina Smáralind.
Allar helstu upplýsingar um félagið má nálgast á vefsíðu þess, www.nnt.is. Nánari upplýsingar veitir
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, fyrirtaekjaradgjof@islandsbanki.is.
Hlutur í Nýjum Norðurturni hf.
til sölu
Húseignir
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
E
-7
6
0
C
1
7
5
E
-7
4
D
0
1
7
5
E
-7
3
9
4
1
7
5
E
-7
2
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K