Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 50

Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 50
FÓLK|HELGIN Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu býður alla fatlaða, fjölskyldur þeirra og vini velkomna í Krika við Elliðavatn í dag. Þar verður þeim boðið að róa út á Elliðavatn án endur- gjalds. Kjartan Jakob Hauksson og Árni Saló monsson hafa veg og vanda af deg- inum og hafa skipulagt hann í áratug. „Hugmyndin vaknaði þegar ég reri í kringum landið fyrstur manna í árabát árið 2005. Þá notaði ég tækifærið og safnaði í sjóð sem veitir ferðastyrki fyrir aðstoðarmenn fatlaðra sem gerir fötluðum kleift að fara í frí. Á þessum tíma kynntist ég mörgum í Sjálfsbjörg, þar á meðal Árna. Ég ákvað í fram- haldinu að bjóða upp á þennan báta- dag á hverju sumri og gerði það fyrst sumarið 2006,“ segir Kjartan Jakob. Hann segir gefandi og skemmtilegt að geta boðið upp á slíkan skemmti- dag. „Það eru æði margir sem segja mér að þetta sé einn stærsti viðburð- urinn hjá þeim á hverju sumri. Fólkið öðlast enda áður óþekkt frelsi þegar það kemst í bátana og getur róið um vatnið.“ Kjartan Jakob segir suma hafa áhyggjur af því að slík bátsferð geti verið hættuleg, sér í lagi fyrir fatlaða. „En ég legg mikla áherslu á að öryggis- gæslan sé í lagi og hef mikla reynslu í þessum málum.“ „Bátadagurinn hefur verið vinsælasti viðburðurinn í Krika á hverju ári en það mæta iðulega 90 til 120 manns,“ segir Árni. Kriki er sumarhús og úti- vistarsvæði Sjálfsbjargar á höfuðborg- arsvæðinu. Það stendur við suðaust- urenda Elliðavatns, rétt hjá bænum Elliðahvammi. „Þar er mjög fín aðstaða og gaman að koma,“ segir Árni. Bátarnir sem eru notaðir eru af ýmsu tagi. „Við erum með kajaka, bæði opna og lokaða, sem við fáum að láni frá Siglunesi, og stundum fáum við hjólabát frá Kríunesi. Við erum með þannig báta að allir, sama hvaða fötlun þeir eru með, geti prófað,“ segir Árni en ýmislegt annað húllumhæ verður í gangi í Krika þennan dag. Til dæmis munu Krikavinir sjá um að baka vöfflur og grilla pylsur fyrir gesti og gangandi. Eins og áður sagði er frítt í bátana og veitingar verða seldar á vægu verði. Opið verður í Krika frá 12.30 til 18 en bátarnir verða í gangi frá klukkan 13 til 17. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á Facebook, sjá: Kriki við Elliðavatn. BÁTADAGURINN Í TÍUNDA SINN UPPLIFUN Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu stendur fyrir árlegum bátadegi fyrir fatlaða og fjölskyldur þeirra í dag. Kjartan Jakob Hauksson aðstoðar fólk við að komast í bátana og leggur mikla áherslu á öryggi. GAMAN SAMAN Gleðin skín úr andlitum þeirra sem sigla út á Elliðavatn. FÉLAGAR Þeir Kjartan og Árni hafa haldið utan um bátadaginn saman. ÖRYGGI Í FYRIRRÚMI Kjartan leggur mikla áherslu á að fyllsta öryggis sé gætt. KAFFISALA Frítt er í bátana en veitingar eru seldar á vægu verði í Krika. Hér er skemmtilegur og sumarlegur réttur. Svínakjöt með pestói. Uppskriftin miðast við fjóra. Það sem þarf: 800 g svínahnakki Salt og pipar Ítölsk kryddblanda Smávegis ólífuolía Penslið kjötið með olíu og kryddið vel. Grillið í um það bil 6 mínútur á hvorri hlið. Pestó 1 búnt basilíka 2 msk. furuhnetur 3 hvítlauksrif 1 dl góð ólífuolía, meira ef þarf 50 g parmesan Salt og pipar Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Bætið olíu við ef með þarf. Með kjötinu er gott að hafa bakaða kartöflu en ef hún er stór þarf hún klukkustund á grillinu. Einnig er gott að hafa blandað grænmeti. 2 paprikur, rauð og gul 1 kúrbítur 1 laukur 1 hvítlauksrif Salt og pipar Olía Skerið niður grænmetið og setjið í álpappír. Skvettið olíu yfir og kryddið. Setjið „álbakkann“ á grillið og látið vera þar í 15-20 mínútur. SVÍNAKJÖT MEÐ PESTÓI OG GRÆNMETI GIRNIRLEGT Svínakjöt með pestói, bakaðri kartöflu og grænmeti. Góður og sumar- legur réttur. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 8 0 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 7 -F 1 2 C 1 7 5 7 -E F F 0 1 7 5 7 -E E B 4 1 7 5 7 -E D 7 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 8 0 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.