Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 56

Fréttablaðið - 04.07.2015, Síða 56
Ferðir LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 20154 Öruggustu borgirnar Fimm öruggustu borgir heims til að heimsækja þetta árið eru að mati EIU (The Economist Intelligence Unit) þessar: Á ferðalögum er mikilvægt að vera vel nestaður – sérstaklega þegar börnin eru með í för. Hér koma nokkur ráð sem gott er hafa í huga þegar skipuleggja á ferðanestið. ● Fyrir bíltúrinn er sniðugt að setja matinn í lítið kælibox. Gott er að setja matinn sjálfan í lítil box eða poka sem hægt er að loka. ● Takið með vatnsflöskur, eina á mann. Það er sniðugt að setja flöskurnar í frysti kvöldið fyrir brottför, þannig helst vatnið kalt þótt líði á ferðalagið. ● Geymið allan saltan mat, börnin verða þyrst af honum. ● Pítubrauð eru sniðug á ferðinni, áleggið helst inni í þeim. Forðist aftur á móti snakk, popp og annað sem mylst niður. ● Aðrar góðar hugmyndir að nesti á ferðinni eru niðurskorið grænmeti og ávextir, ostateningar og þurrk- aðir ávextir. Sniðugt er að úða smá sítrónusafa yfir ávaxtabitana svo þeir verði ekki brúnir. ● Það er alltaf vinsælt að vera með ídýfu til að hafa með kexi, pítubrauði, gúrkum eða blómkáli. Passið bara að hafa ídýfuna í góðu boxi svo hún sullist ekki um allt. ● Gott er að taka með plastglös og nóg af servíettum. OSAKA Í JAPAN Osaka er ásamt Tókýó talin öruggasta borg í heimi. Þar skilja heimamenn óhikað persónuleg verð- mæti eftir á borðum meðan þeir panta á barnum. Langt fram eftir kvöldi er fólk í lestum á leið heim úr vinnu og íbúarnir eru vinsamlegir og skraf- hreifnir. AMSTERDAM Afslappað viðhorf íbúanna til lífsins gerir það að verkum að gestum líður vel í borginni. Þar er fólk hreinskiptið og seinþreytt til vandræða. Borgin er einnig tiltölulega lítil, með innan við milljón íbúa. SYDNEY Þessi stærsta borg Ástralíu þykir afar vinaleg en þar segjast heimamenn passa upp á náungann. Um borgina er stöðug umferð gangandi fólks og því meira sem fólk þræðir göturnar í Sydney líður því eins og það tilheyri samfélaginu. SINGAPÚR Singapúr er örugg borg þar sem lög og reglur eru í hávegum höfð. Lögregla borgarinnar er sögð fá ríf- legar fjárveitingar og getur því sinnt bæði íbúum og gestum borgarinnar vel. Þá þykja íbúar Singapúr heiðarlegir eða fremja í það minnsta sjaldan glæpi þar sem miklar líkur eru á refsingu. STOKKHÓLMUR Barnvæn og vel lýst borg, þar eru fá skuggasund en leikvellir og grónir garðar víða. Andrúmsloftið þar er einnig afslappaðra en í mörgum stórborgum. www.bbc.com Amsterdam er ein af öruggustu borgum heims. EIN AF PERLUM LANDSINS Skammt vestan Kirkjubæjarklausturs liggur Fjaðrárgljúfur sem að margra mati er einn fegursti staður landsins. Þrátt fyrir fegurð sína hafa margir lands- menn ekki heimsótt gljúfrið en þó er auðvelt að komast að því á einkabíl. Fjaðrárgljúfur er um 100 metra djúpt og tveir kílómetrar að lengd með bratta veggi sem eru fjölbreyttir í lögun. Bæði er hægt að ganga eftir göngustíg uppi á gljúfurbarminum og njóta þannig útsýnisins yfir það en enn meiri upplifun er þó að ganga inn eftir gljúfrinu sjálfu. Þá þarf að vaða ána nokkrum sinnum en stór hluti hennar er fær flestu fólki. Við enda gljúfursins eru fossar sem loka leið þess þannig að ganga þarf til baka, nema farið sé upp bratta veggina sem ekki er við hæfi lofthræddra. Til þess að komast að Fjaðrárgljúfri er keyrt inn vegamót vestan við Kirkjubæjarklaustur. Þaðan liggur vegur upp að Hunku- bökkum á Síðu en þaðan eru um tveir kílómetrar að gljúfrinu. Flestir heimsækja Fjaðrárgljúfur yfir sumartímann en það er þó fallegt á öllum árstímum, t.d. í fallegum haustlitum eða í snjó og vetrarmyrkri. M Y N D /Æ G IR L Ú Ð V ÍK SS O N BORÐAÐ Á FERÐINNI iStoreKringlunni 103 Reykjavik Sími 566 8000 istore.is Sérverslun með Apple vörur Kringlunni Við gerum vel í að þjónusta viðskiptavini okkar með skjótum og sveigjanlegum vinnubrögðum. Þegar þú kemur með tölvu, síma eða iPad í ábyrgðarþjónustu þá lánum við þér sambærilegt tæki á meðan þjónustu stendur, endurgjaldslaust. Catalyst Stealth Nýju Catalyst iPhone hulstrin eru vatns-, högg- og veðurhelt. Fullkomin vörn fyrir alla þína afþreyingu og uppátæki. Örþunn hönnunin fórnar hvorki útliti né stíl símans. Fyrir iPhone 5, 5s, 6 og 6 plus 11.900 kr. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 7 -4 E 3 C 1 7 5 7 -4 D 0 0 1 7 5 7 -4 B C 4 1 7 5 7 -4 A 8 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 8 0 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.