Fréttablaðið - 26.01.2015, Page 12
26. janúar 2015 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Orkustofnun hefur lagt fjölda orkukosta
fyrir verkefnisstjórn rammaáætlunar
til umfjöllunar. Sumir umræddra kosta
eru lagðir fram að frumkvæði orkufyrir-
tækja, aðrir að frumkvæði Orkustofnunar.
Mörgum kostanna hefur áður verið raðað
í nýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk
í ferli rammaáætlunar, aðrir koma nú nýir
til umfjöllunar í verkefnisstjórn.
Orkustofnun hefur hlotið talsverða
gagnrýni fyrir þetta verklag, að láta kosti
sem þegar hefur verið raðað í verndar-
flokk fylgja með á þessum lista (líkt og
kosti í nýtingarflokki). Jafnvel er talað
um að vegið sé að friði um rammaáætlun
eða hann sagður úti vegna þessa verklags
stofnunarinnar. Stutta svarið við þessari
gagnrýni er tvíþætt. Í fyrsta lagi er stofn-
unin þarna að vinna sína vinnu í samræmi
við 9. gr. laga nr. 48/2011 um rammaáætl-
un. Í öðru lagi var allur friður um ramma-
áætlun rofinn í tvöföldu pólitísku ferli
sumarið 2011 og í janúar 2013, þegar orku-
kostir sem fyrri verkefnisstjórn hafði talið
vænlega til nýtingar rötuðu í átt frá nýt-
ingu til verndar. Fyrst tólf kostir í lokuðu
ferli innan tveggja ráðuneyta, síðan sex
kostir í meðförum Alþingis.
Sáttin löngu rofin
Nú er það vissulega svo að Alþingi hefur
úrslitavaldið um röðun orkukosta í nýting-
arflokk, biðflokk eða verndarflokk hverju
sinni. En forsenda almennrar sáttar um
þetta ferli er fólgin í faglegum niðurstöð-
um verkefnisstjórnar. Eftir átta ára fag-
lega vinnu fyrri verkefnisstjórnar varð
niðurstaðan á hinum pólitíska vettvangi sú
sem fyrr segir. Þar var sáttin rofin.
Aðferðafræði verkefnisstjórnar um
rammaáætlun byggist að stórum hluta á
innbyrðis samanburði orkukosta. Ef ætl-
ast er til að ekki sé hirt um að hafa verð-
mæta kosti út frá verndarsjónarmiðum
með í þeim samanburði þá væri e.t.v. ein-
faldast að sleppa líka þessu ferli gagnvart
vænlegustu orkukostunum. Vandséð er
hvernig ætti að skilgreina slíkt regluverk.
Þess vegna er það rétt stjórnsýsla af hálfu
Orkustofnunar, og í algeru samræmi við
lögin um rammaáætlun, að leggja þennan
lista fram með þessum hætti. Hins vegar
er rétt að minna á að röðun orkukosts í
nýtingarflokk þarf engan veginn að þýða
að ráðist verði í umræddar framkvæmd-
ir. Meti eitthvert orkufyrirtæki kostinn
hagkvæman og eftirsóknarverðan er t.d.
lýðræðislegt ferli mats á umhverfisáhrif-
um framkvæmda eftir, leyfisveitingar og
skipulagsferli. Nýtingarflokkur er því í
raun listi yfir orkukosti sem heimilt er að
halda áfram að skoða.
Rétt nálgun Orkustofnunar
ORKUMÁL
Gústaf Adolf
Skúlason
framkvæmdastjóri
Samorku– samtaka
orku- og veitufyrir-
tækja
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 SÍMI 568 9090 • www.sm.is
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
80%
ALLT AÐ
L
ekamálinu svokallaða er lokið. Tryggvi Gunnars-
son, umboðsmaður Alþingis, skilaði í nýliðinni viku
af sér áliti þar sem hann staðfestir það sem marga
grunaði. Þáverandi innanríkisráðherra, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, setti fram við Stefán Eiríksson, lög-
reglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, sem síðan hefur látið
af störfum, athugasemdir og gagnrýni á rannsókn lekamáls-
ins. Athugasemdirnar og gagnrýnin voru langt umfram það
sem eðlilegt þykir. Samskiptin fólu í sér ítrekaða gagnrýni
og beinar athugasemdir sem
umboðsmaður segir hafa verið
harðar. Þessi samskipti fóru
að mati umboðsmanns gegn
reglum sem ráðherra bar að
hlíta.
Áður en þessi niðurstaða
umboðsmanns birtist hafði
aðstoðar maður ráðherrans
hlotið dóm vegna athafna sinna. Ráðherrann hefur sagt af
sér embætti. Með því hefur hún axlað pólitíska ábyrgð sína.
Frekar verður ekki aðhafst í stjórnsýslunni vegna málsins.
Fleiri verða ekki dæmdir af dómstólum.
En þrátt fyrir að málinu sé lokið innan stjórnsýslunnar er
líklegt að pólitískt sé staðan önnur. Greint hefur verið frá
áhyggjum þingflokks sjálfstæðismanna sem mun hittast á
fundi í dag og fara yfir málið. Einstaka þingmenn hafa lýst
yfir vonbrigðum og þögnin sem stafar frá formanni flokksins
er ærandi. Sá, Bjarni Benediktsson, sem lýsti ítrekað yfir
fullum stuðningi og trausti, hlýtur að vera einn þeirra sem
orðið hafa fyrir vonbrigðum.
Eftir stendur sú spurning hvort Hönnu Birnu sé sætt áfram
sem alþingismaður. Hvort hún hafi axlað sína pólitísku ábyrgð
með því einu að segja af sér sem ráðherra.
Í stjórnmálamenningu landanna í kringum okkur þekkist
það vel að ráðherrar segi af sér en eigi síðar afturkvæmt
í stjórnmálin. Þetta hefur verið talinn kostur þar sem það
kemur í veg fyrir að ráðherrar og aðrir kjörnir fulltrúar
hangi á embættum sínum eins og hundar á roði af ótta við
pólitísk endalok viðurkenni þeir mistök og stígi til hliðar. Sá
vandi hefur verið landlægur hér um árabil.
Hanna Birna er sem stendur rúin trausti. Framhaldið veltur
á henni.
Hún getur tekið þá ákvörðun að halda til annarra starfa.
En ef hún kýs að halda í þá vegferð að endurvekja traust
almennings á henni þá er ekkert nema gott um það að segja.
Hvort sem hún heldur áfram sem óbreyttur þingmaður á
kjörtímabilinu eða tekur sér lengra hlé, þarf hún að fara í
gegnum prófkjör hjá eigin flokki og síðar almennar kosningar
til þingsins. Hún þarf að endurnýja umboð sitt. Fari svo hefur
hún þá vonandi lært að þau tilsvör og vinnubrögð sem hún
stundaði í lekamálinu eru ekki boðleg. En Hanna Birna, eins
og allir aðrir, á hins vegar skilið að fá tækifæri til að sýna að
hún hafi lært af þessu máli og sé traustsins verð í framtíðinni.
Það er síðan kjósenda að kveða upp þann dóm.
Á Hanna Birna afturkvæmt í stjórnmálin?
Hanna Birna þarf
að fá nýtt umboð
Skaðvaldur í formennsku
Leikar æsast hvað varðar aðildarumsókn
Íslands að ESB. Björn Bjarnason er ekki
sáttur við þingflokksformann sjálf-
stæðis manna, Ragnheiði Ríkharðsdóttur,
og skrifar: „Að formaður þingflokks
annars stjórnarflokksins felli sig hvorki
við stjórnarstefnuna né átti sig á öllu
sem mælir gegn framhaldslífi umsóknar
sem strandaði árið 2011 vegna ágrein-
ings um sjávarútvegsmál er skaðvænlegt
fyrir stjórnarsamstarfið. Er sérkennilegt
að þingflokksformaðurinn ætli að
stefna því í hættu vegna málstaðar
sem brýtur í bága við sjónarmið
yfirgnæfandi meirihluta
sjálfstæðismanna,“ segir ráð-
herrann fyrrverandi og einn
helsti baráttumaðurinn
gegn viðræðunum
að ESB.
Elín fagnar breytingunum
Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokks-
ins, sagðist á Alþingi fagna afnámi
vörugjalda og breytingum á virðisauka-
skatti, en sem kunnugt er hækkaði
matarskatturinn drjúgt um áramótin.
„Til að þær breytingar sem urðu um
áramótin nái þó þeim árangri sem þær
eiga að ná vil ég benda á að neytendur
verða að vera afskaplega vel á verði
fyrir því að þessar breytingar skili sér
rétt í vöruverði og í verðbreytingum
á vöru og þjónustu.“ Elín
fagnar því að ASÍ og
Neytendasamtökin ætli
að fylgjast með að allt
gangi eins og ætlast er
til, en hið opinbera hefur
sagt að markaðurinn muni
annast þetta án aðkomu
yfirvalda.
Gáttaður þingmaður
Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Fram-
sóknarflokks, gerði hækkun vaxta á
verðtryggðum lánum að umtalsefni á
Alþingi: „Þetta gerist á sama tíma og
stýrivextir lækka og jafnframt hefur
verðbólgan lækkað verulega. Þetta
kemur mjög á óvart því að margir neyt-
endur töldu að vextir mundu lækka
þegar utanaðkomandi aðstæður væru
jákvæðar sem þær eru virkilega nú.“
Elsa Lára hvetur aðra þingmenn
til að standa vaktina, neyt-
endavaktina: „Þessi háttsemi
fjármálastofnana er alls ekki
í lagi og ég hvet okkur öll
sem hér störfum til að skoða
þetta nánar og taka höndum
saman til að tryggja betur hag
neytenda.“
sme@frettabladid.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
E
-0
8
B
C
1
7
7
E
-0
7
8
0
1
7
7
E
-0
6
4
4
1
7
7
E
-0
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K