Fréttablaðið - 26.01.2015, Síða 39
KYNNING − AUGLÝSING Rekstrarráðgjöf26. JANÚAR 2015 MÁNUDAGUR 7
Expectus skapar virði
með viðskiptavinum sínum
Ráðgjafarfyrirtækið Expectus var
stofnað fyrir sex árum og hefur náð
að vaxa og dafna í skugga fjármála-
kreppunnar. Í dag vinna 25 starfs-
menn hjá fyrirtækinu við ráðgjöf
á sviði stefnumótunar, rekstrar og
upplýsingatækni. Flestir hafa langa
og fjölbreytta reynslu úr atvinnulíf-
inu og hafa tileinkað sér framsækn-
ustu aðferðir okkar tíma.
„Við sækjum okkur framúrskar-
andi lausnir hvaðanæva og aðlög-
um þær aðíslenskum aðstæðum“
segir Kristinn Tryggvi Gunnars-
son, framkvæmdastjóri.
„Slík aðlögun þýðir oftast að
gera þarf hlutina hraðar, skilvirkar
og ódýrar án þess að tapa gæðum.
Smæðin hefur því unnið með okkur
hvað þetta varðar og lausnir okkar
hafa vakið eftirtekt í erlendum
verkefnum þar sem kaupendur hafa
samanburð við leiðandi alþjóðleg
ráðgjafarfyrirtæki.“
Skýrum stefnu og
tryggjum framkvæmd hennar
Ráðgjafar Expectus hafa stýrt á
fimmta tug stefnumótunarverk-
efna, allt frá 15 manna pípulagn-
ingafyrirtæki upp í sóknaráætlun
fyrir forsætisráðuneytið (Ísland
2020) þar sem haldnir voru 8 fjöl-
mennir þjóðfundir í öllum lands-
hlutum.
„Stefnumótunarfræðin hafa
þróast mikið frá því ég byrjaði sem
stefnumótunarráðgjafi fyrir 12
árum,” segir Kristinn. „Góð stefnu-
mótunarvinna byrjar á greiningu,
rýna þarf í ytri þætti sem hafa áhrif
á reksturinn, til dæmis efnahags-
málin, samfélagsbreytingar, laga-
umhverfi, stjórnmálaumhverfi og
umhverfismál. Greining á innvið-
um er mikilvæg og við leggjum sér-
staka áherslu á fjárhagslega grein-
ingu þar sem við höfum löggiltan
endurskoðanda í hópnum. Hvar og
hvernig verða tekjurnar til, hvaða
hópar viðskiptavina eru arðsamari
en aðrir og hvaða vörur eða þjón-
usta skila mestri framlegð. Hluti af
greiningunni er að draga fram og
sammælast um lykilhæfni starf-
seminnar. Stefnumótandi valkostir
eru vegnir og metnir og leiðin valin
fram á við.“
Stjórnendur kvarta oft undan
því að með utanaðkomandi ráð-
gjöf við stefnumótun verði til þykk-
ar skýrslur sem einungis safni ryki
og raunverulegar breytingar verði
litlar.
„Þetta höfum við svo sannar-
lega upplifað og því tryggjum við
aðkomu sem flestra starfsmanna
strax í byrjun. Við höfum þá skoð-
un að flestar þær upplýsingar sem
við þurfum til að taka stefnumót-
andi ákvarðanir liggi í fyrirtækj-
unum sjálfum, kerfum þeirra og
starfsfólki. Það þarf að draga fram
réttu upplýsingarnar, með þátt-
töku réttra aðila og setja þær fram
á réttan máta. Þannig tryggjum við
eignar hald á niðurstöðunum og
innleiðingin verður auðveldari.“
„Það sem hefur tryggt rekstrar-
skilyrði okkar er sú hugarfarsbreyt-
ing sem orðið hefur hjá kaupendum
ráðgjafarþjónustu á undanförn-
um árum. Kaupendur hafa lært að
meta hvenær hentar að kaupa að-
stoð utan að og hvenær er betra
að manna verkefnin með föstum
starfsmönnum. Þannig færist stöð-
ugt í vöxt að fyrirtæki og stofnanir
sækja ráðgjafa í tímabundin átaks-
verkefni og heyrir til undantekn-
inga ef ekki eru sóttir ráðgjafar til
stærri stefnumótunarverkefna. Við
horfum bjartsýn til framtíðar.“
Úr gögnum í upplýsingar
og yfir í verðmætasköpun
Um helmingur starfsmanna Ex-
pectus sinnir ráðgjöf í upplýs-
ingatækni með áherslu á lausnir
frá Microsoft en fyrirtækið er eini
gull vottaði samstarfsaðili Micro-
soft á sviði viðskiptagreindar (Bus-
iness Intelligence) hér á landi. Ný-
lega stofnaði fyrirtækið hóp sem
sérhæfir sig í Share point lausnum
til að bæta hópavinnu, skilvirkni
ferla og upplýsingaflæði, en þar er
stefnan einnig sett á gull vottun.
„Það hefur orðið bylting í um-
breytingu gagna yfir í upplýsing-
ar með tilkomu nýrra lausna frá
Microsoft. Fleiri stjórnendur fá nú
réttar upplýsingar á réttum tíma
með minni tilkostnaði en áður,
þetta gerir fyrirtækinu kleift að
bregðast hraðar við nýjum áskor-
unum og skapa þannig aukið
virði.“
Duttum í hugbúnaðarpottinn
„Það má segja að við höfum fyrir
tilviljun dottið í lukkupott hug-
búnaðargerðar. Einn af viðskipta-
vinum okkar, með starfsemi í 53
löndum, var í stöðugum vand-
ræðum með gæði gagna sem
flæddu á milli tölvukerfa. Alltaf
var opið einhvers staðar í heim-
inum og eftir að hafa vakað ófáa
sólarhringa við að halda gagna-
flæðinu gangandi fól hann okkur
að skrifa hugbúnað til að vakta
gagnaflæðið í rauntíma. Úr varð
kerfið exMon (Expectus Contin-
ous Monitoring) sem nú er í notk-
un hjá 30 íslenskum fyrirtækj-
um um allan heim. Við bind-
um miklar vonir við útflutning
á kerfinu því kaup á slíkum kerf-
um hafa hingað til aðeins verið á
færi stærstu fyrirtækja. Það að við
höfum þurft að laga okkur að ör-
markaði verður vonandi grunnur
að samkeppnisforskoti á heims-
markaði.“
Ráðum atvinnustofa
bættist í hópinn í fyrra
„Þegar leiðir okkar Hildar Erlu
Björgvinsdóttur hjá Ráðum at-
vinnustofu lágu saman í einu
stefnumótunarverkefninu,
sáum við kjörið tækifæri til að
uppfylla þarfir viðskiptavina
okkar um stjórnenda – og sér-
fræðingaleit,“ segir Kristinn
Tryggvi.
„Hjá Ráðum er mikil sérfræði-
þekking í öflun og vali á starfs-
fólki og endurspeglast það í fag-
legum vinnubrögðum. Til að
mynda notar Ráðum margar
matsaðferðir við val á starfsfólki
og hámarkar líkurnar á að rétti
kandidatinn sé valinn í starfið.“
Skapa einstakan vinnustað
Expectus er í eigu starfsmanna
og á heimasíðunni er framtíðar-
sýninni lýst þannig
„Við verðum þekkt alþjóðlega
sem fyrirmynd annarra þekk-
ingarfyrirtækja fyrir að skila
viðskiptavinum okkar framúr-
skarandi árangri og óviðjafnan-
legu virði, tæknilega leiðandi á
okkar sviði og stjórnunarleg
fyrirmynd meðal jafningja. Við
tökum okkar eigin meðöl,“ segir
Kristinn Tryggvi brosandi.
„Við notum gildin okkar,
kraft, heiðarleika og samvinnu
til að móta fyrirtækjamenn-
inguna. Allur rekstur er opinn
og gagnsær og almenna regl-
an er að umbun starfsmanna
er í réttu hlutfalli við þau verð-
mæti sem þeir skapa. Hjá okkur
er því hin fullkomna jafnlauna-
stefna og til grundvallar er ít-
arlegt frammistöðumat, bæði
hlutlægt og huglægt þar sem
frammistaða starfsmanna er
reglulega metin út frá 15 hæfn-
isþáttum. Allir eru árangurs-
tengdir.“
Slík umbunarkerfi eru ekki
óumdeild og henta ekki allri
starfsemi, eða hvað?
„Það er hárétt“ segir Kristinn.
„En við erum sannfærð um að
slíkt kerfi hjálpar okkur að laða
til okkar besta og hæfileikarík-
asta fólkið en á því byggjum við
framtíðina.“
Ef þú gerir betur þá verðum við sátt
Árangur og árangursstjórnun eru viðfangsefni Ráðgjafarfyrirtækisins Expectus.
Hildur Erla
Björgvinsdóttir,
framkvæmdastjóri
Ráðum
Kristinn Tryggvi
Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Expectus
Tuttugu og fimm starfsmenn sinna ráðgjöf á sviði stefnumótunar, rekstrar og upplýsingatækni hjá Expectus. Sérstaða hópsins er að flestir hafa langa og fjölbreytta reynslu úr
atvinnulífinu og hafa tileinkað sér framsæknustu aðferðir okkar tíma.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
D
-F
0
0
C
1
7
7
D
-E
E
D
0
1
7
7
D
-E
D
9
4
1
7
7
D
-E
C
5
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K