Fréttablaðið - 26.01.2015, Síða 48
26. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
Nicolas Cage mun leika í nýrri
gamanmynd um hryðjuverka-
leiðtogann sáluga Osama Bin
Laden. Hún nefnist Army of
One.
Leikstjórinn, Larry Charles,
byggir myndina á grein sem
birtist í tíma-
ritinu GQ um
bandarískan
ríkisborgara
sem ákvað að
leita sjálfur
að Bin Laden,
samkvæmt
Hollywood
Reporter.
Cage fer
með hlutverk
bygginga-
starfsmannsins Garys Faulkner
sem gerði margar tilraunir til
að lauma sér inn í Pakistan og
Afganistan.
Larry Charles hefur áður leik-
stýrt gamanmyndunum Borat,
Brüno og The Dictator.
Cage í mynd
um Bin Laden
8, 10:15
6
6
8
10:35
6, 9
ÆVINTÝRALEGA SKEMMTILEG MYND
FRÁ FRAMLEIÐANDA HARRY POTTER
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
siSAM
TIME
m.a. BESTA MYND ÁRSINS
Besti Leikari í aðalhlutverki - Bradley Cooper
NEW YORK POST
“THE BEST BRITISH FILM
OF THE YEAR”
“THE BEST FILM
OF THE YEAR”
“AN INCREDIBLY
MOVING STORY”
“AN INSTANT CLASSIC”“BENEDICT CUMBERBATCH IS OUTSTANDING”
“A SUPERB THRILLER”
“EXCEPTIONAL”
INSPIRING
“FASCINATING
& THRILLING”
M.A. BESTA MYNDIN – BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – BESTI LEIKSTJÓRI
TILNEFND TIL 8 ÓSKARSVERÐLAUNA
BENEDICT
CUMBERBATCH
KEIRA
KNIGHTLEY
T H E I M I TAT I O N G A M E
B A S E D O N T H E I N C R E D I B L E T R U E S TO R Y
O F A L A N T U R I N G
CELINE SCIAMMAKVIKMYND EFTIR
Save the Children á Íslandi
WEDDING RINGER KL. 8 - 10.20
TAKEN 3 KL. 8 - 10.25
PADDINGTON ÍSL TAL KL. 5.30
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30
ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 10 / ÍSL . TAL
BÉLIER FJÖLSKYLDAN KL. 6 / ENSK . TEXTI
AF ÖLLUM KRÖFTUM KL. 8 / ENSK . TEXTI
JULES OG JIM KL. 6 / ENSK . TEXTI
LULU NAKIN KL. 8 / ENSK . TEXTI
LYKTIN AF OKKUR KL. 10 / ENSK . TEXTI
MORTDECAI KL. 8 - 10.25
MORTDECAI LÚXUS KL. 10.25
WEDDING RINGER KL. 5.40 - 8
BLACKHAT KL. 10.20
TAKEN 3 KL. 8 - 10.25
TAKEN 3 LÚXUS KL. 8
THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 5 - 8
THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 5
PADDINGTON ÍSL TAL 2D KL. 3.30 - 5.45
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.30
NICOLAS CAGE
★★★★★
Vulnicura
Björk
SMEKKLEYSA
Þessi janúarmánuður hefur verið fullkomlega
glataður. Það hefur verið hvasst, dimmt og kalt
– óveður að meðaltali þrisvar í viku. Það er alls
ekki í lagi. En nú, vegna alvarlegasta lekamáls
ársins 2015, hingað til hið minnsta, höfum við
fengið hlýjan andblæ sem yljar sálinni. Takk,
Björk.
Þetta hafa reyndar verið erfiðir dagar, allt frá
því að Vulnicura var gefin út á veraldarvefnum á
fimmtudag. Það hefur verið skrifað svo mikið um
þetta listaverk, á svo skömmum tíma, að það er
vart nokkru við bætandi. Og hvernig á að dæma
Björk?
Það hefur engin ein manneskja gert jafn mikið
fyrir íslenskt þjóðar bú … ekki aðeins menningar-
lega, heldur efnahagslega. Í alvöru, þið kvóta-
kóngar, hneigið ykkur fyrir gjaldeyristekjunum
sem þessi kona hefur skapað. Úr engu – nema til-
finningum og hugviti.
En. Í öllu falli. Að þessu sögðu … Í þetta sinn
má kaupa allt þetta „hæp“. Vulnicura er ótrúlegt
listaverk.
Bandaríska sálfræðingnum Carl Rogers er
eignuð tilvitnunin „what is most personal is most
universal“. Á hún vel við um Vulni cura þar sem
Björk leggur list sína undir, líf sitt undir, lífið
fyrir listina, listina fyrir lífið.
Það er furðuleg tilviljun að í sömu viku átti ein
besta plata poppsögunnar 40 ára afmæli, Blonde
on Blonde með Bob Dylan, sem er nákvæmlega
eins. Listamaður að leggja sjálfan sig á borð-
ið eftir sálræna krísu, þótt hljóðheimur þeirra
tveggja sé vissulega nokkuð ólíkur.
Þessir mögnuðu listamenn eiga það sameigin-
legt að hafa gengið í gegnum sambandsslit og
upplifað alla þá eymd og ömurleika sem þeim
fylgir. Þessum tilfinninga rússí bana, sem er í
senn eitt elsta og viðkvæmasta yrkisefni mann-
kynssögunnar, er sannarlega komið til skila í tón-
list og textum Vulnicura – og rúmlega það.
Allt frá fyrsta lagi plötunnar, Stonemikler, eru
áheyrendur teknir í sónískt ferðalag strengja-
útsetninga sem skera inn að beini, rödd Bjarkar
eins og alltaf – sterk en um leið brothætt – aldrei
hefur hún notið sín betur en nú. Stundum er erfitt
að greina á milli hvað það er sem veldur mestu
hughrifunum, röddin, textarnir eða undurfalleg-
ar strengjaútsetningarnar.
Tónlistin er í fullkomnu jafnvægi við yrkisefn-
ið, einhvers konar „falleg, skítug óreiða“. Enginn
elskar jafn mikið og sá sem hefur misst elskhuga
sinn … og ó, það er svo sárt að viðurkenna tapið.
„Ef til vill rankar hann við sér,“ segir Björk.
Kannski man hann, kannski man hún. Saga snert-
inganna, sem allar eru svo ljóslifandi þegar þær
vantar. Allar, samanþjappaðar í eitt augnablik.
Þetta er svo fallegt að því er vart hægt að lýsa.
Eitt er þess virði að taka fram: Frá sjónarhóli
poppsins er Vulni cura líklega aðgengilegasta
verk Bjarkar síðan Vespertine. Sálfræðingurinn
Rogers hafði greinilega á réttu að standa. Ekki
að verk Bjarkar á síðastliðnum áratug hafi verið
langt undir pari.
Á einhvern hátt má jafnvel líta á síðasta áratug
sem einhvers konar æfingabúðir fyrir Vulnicura,
öll þessi leit, öll þessi æfing, að borga sig. Sem er
reyndar fáránlegt að segja um Björk.
Samstarfsfólk Bjarkar er vandlega valið, upp-
tökustjórarnir Arca og The Haxan Cloak eiga
sinn þátt í hljóðheimi plötunnar þó það læðist að
manni sá grunur að Björk hafi meira og minna
verið með alla sína fingur á lofti alls staðar. Þetta
er, eftir allt saman, hennar líf sem er dúndrað
fram. Dúndrað, öskrað, hvíslað.
Þetta er tilfinningarússíbani sem fáir hafa
túlkað á fallegri og einlægari hátt. Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Vulnicura byrjar sterkt og heldur
dampi allan tímann. Þetta er hvorki meira né minna
en tímamótaverk, lykilverk á ferli eins magnaðasta
listamanns á jörðinni.
Takk fyrir ótrúlegt listaverk, Björk
ÞESSI lítilfjörlegi pistill er skrifaður
við óvenjulegar aðstæður. Þannig er
mál með vexti að ég varð fyrir því óláni
á föstudaginn að renna í hálku á leið-
inni niður tröppur. Höfuð og skrokkur
sluppu vel en það var á kostnað þumal-
fingurs á hægri hendi. Hann tókst mér
að kremja undir þungum afturendan-
um á mér og sársaukinn var eins og
ég ímynda mér að ég upplifði ef ég
fæddi meðalstóran fílsunga. Núna
er þumallinn fjólublár, tvöfaldur að
stærð og kippist til í takt við hjart-
sláttinn. Og öll hægri höndin svo
gott sem ónothæf.
ÞETTA er kannski ekkert
svo gott efni í pistil, núna
þegar ég hugsa betur um
það, en þar sem ég get
eingöngu notað vinstri
höndina tók það mig
rúmar tíu mínútur að
komast hingað. Þess
vegna tími ég ekki að
byrja upp á nýtt og
held því áfram. Sjáum
hvernig þetta endar.
ÞAÐ er nefnilega alveg magnað hvað
þessi örlitla og tímabundna fötlun
mín skerðir lífsgæði mín mikið. Ég
fékk augngotur frá öllum við kass-
ann í Bónus um helgina þegar ég lét
kærustuna um að setja vörurnar upp
á færibandið, setja þær allar í poka
og bera svo alla pokana út nema einn.
„Þvílík mannleysa,“ hugsuðu allir og
veltu því fyrir sér hvað hún sæi eigin-
lega við þennan sjálfselska samfélags-
dragbít.
ÞETTA er ekki allt. Hún þarf að renna
upp og hneppa öllu sem ég klæði mig í,
elda matinn, vaska upp og hlusta á mig
væla allan daginn yfir því hvað ég eigi
bágt.
ÉG VAR meira að segja að spá í að fá
hana til að skrifa pistilinn fyrir mig en
ákvað að eiga frekar inni smá „good-
will“ þegar ég hætti loks að geta haldið
í mér og þarf að biðja hana að skeina
mig.
EKKI vorkenna henni samt. Hún
gleymdi bóndadeginum.
Þumall upp
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
E
-6
B
7
C
1
7
7
E
-6
A
4
0
1
7
7
E
-6
9
0
4
1
7
7
E
-6
7
C
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K