Fréttablaðið - 26.01.2015, Page 54
26. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
„Þetta var bara bráðskemmtilegt,
þau voru yfir sig hrifin af þessu.
Það er satt að maður er manns
gaman, en það fyllir mann líka
stolti að sýna hvað við eigum á
Íslandi. Það er nefnilega ekkert
sjálfgefið,“ segir Guðmann Þor-
valdsson sem er búsettur á Eski-
firði.
Guðmann tók á móti litlum hópi
erlendra ferðamanna og bauð
þeim í kvöldmat í gegnum verk-
efnið Meet the Locals, eða Hittu
heimamenn. Verkefnið hefur svo
sannarlega slegið í gegn undan-
farið og segir hann Austfirðinga
duglega að taka þátt. „Ég redd-
aði mér hákarli og harðfiski og
náði svo í plokkfisk á kaffihúsinu
hérna í bænum, því það þarf allur
matur að koma frá viðurkenndu
eldhúsi. Ég leyfði þeim síðan
að skoða allt hér heima og taka
myndir eins og þau vildu áður en
við borðuðum,“ greinir hann frá.
Guðmann segir hópinn hafa
verið yfir sig hrifinn af plokkfisk-
inum og harðfiskinum. „Ég hélt þau
myndu kannski spýta hákarlinum
út úr sér, en þau líktu honum bara
við sterkan ost og fannst hann alls
ekkert svo slæmur,“ segir hann.
Auk þess að fá erlendu ferða-
mennina í mat keyrði hann með
þá um bæinn og nágrennið og
sýndi þeim umhverfið.
„Svo vorum við svo heppin að
um kvöldið voru tónleikar hér
með Ragga Bjarna, Bubba og
fleirum sem þau skelltu sér á. Ég
gat ekki betur séð að þeim fynd-
ist þetta stórkostlegt,“ segir Guð-
mann og bætir við: „Ein þeirra
spurði mig: Hvar er Eva? og ég
skildi ekkert. Svo ég spurði hana
hvað hún meinti. Hún svaraði þá
að hún hefði hreinlega haldið að
hún væri í paradís.“
adda@frettabladid.is
Ekki verður fengið stórt nafn til
að spila sem hluti af All Tomorr-
ow’s Parties-hátíðinni á Íslandi
í sumar, nokkrum dögum áður
en hátíðin sjálf verður haldin á
Ásbrú.
„Það er 100 prósent staðfest að
við munum ekki gera aftur svo-
leiðis, þótt það hafi komið vel út,“
segir Tómas Young, framkvæmda-
stjóri ATP á Íslandi.
Í fyrra steig Neil Young á svið
í Laugardalshöll skömmu fyrir
hátíðina á Ásbrú en tónleikarnir
voru engu að síður hluti af hátíð-
inni. „Þetta var bara of mikið í
fyrra, að mínu mati. Við viljum
ekki dreifa athyglinni frá aðal-
hátíðinni,“ segir Tómas. Nýlega
var greint frá því að Reykjanes-
bær yrði ekki lengur styrktarað-
ili hátíðarinnar. Tómas og félagar
láta það ekki á sig fá. „Þetta er allt
í vinnslu. Við erum að vinna í því
að finna samstarfsaðila til að auð-
velda okkur róðurinn fyrstu árin.“
Hann segir að hátíðin verði ekki
minnkuð á neinn hátt þrátt fyrir
að stór styrktaraðili sé ekki enn
kominn í hús. „Það verður sama
miðaverð og sama þjónusta í boði
og sami fjöldi á svæðinu.“
Á meðal þeirra sem spila á ATP
í sumar verða Iggy Pop og skoska
poppsveitin Belle & Sebastian. - fb
Ekkert stórt nafn spilar á undan
Engir tónleikar í líkingu við Neil Young-giggið í fyrra verða hluti af ATP í sumar.
TÓMAS YOUNG Þótt tónleikarnir með
Neil Young hafi gengið vel í fyrra verða
engir tónleikar í líkingu við þá í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Tilraunasmoothie og kalt kaffi.“
María Marko, hönnuður.
MORGUNMATURINN
Einnig í Gamla bíói frá kl 15-18 alla virka daga og 15-20 sýningardaga.
Gamla bíó: 563 4000 • Hópasala: 786 3060 • eddan2015@gmail.com
FRUMSÝNING
29. JANÚAR
NÆSTU SÝNINGAR
1.FEB. / 4. FEB. / 13. FEB. / 14. FEB. / 19.FEB
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
Verkefnið Meet the Locals, eða Hittu heimamenn, hefur verið til í nokkur
ár og er matarboð í heimahúsi hluti af því verkefni. Hugsunin á bak við
það er að fólk komi sem ferðamenn, en fari sem hluti af samfélaginu.
„Ferðamenn geta bókað sig í mat í heimahúsi og upplifað það að koma
inn á íslensk heimili og kynnast Íslendingum. Einnig er þetta hluti af
dagsferð og þriggja daga ferð þar sem ferðamenn eru með leiðsögu-
manni og kynnast samfélaginu, ferðast um svæðið og skoða skemmtilega
og fallega staði,“ segir Hildigunnur Jörundsdóttir, verkefnastjóri hjá
Tinna Travel.
Fari sem hluti af samfélaginu
Var viss um að hún
væri stödd í paradís
Guðmann Þorvaldsson á Eskifi rði tók á móti litlum hópi erlendra ferðamanna í
kvöldmat í gegnum verkefnið Meet the Locals, eða Hittu heimamenn.
SKEMMTILEG
UPPLIFUN
Guðmann
Þorvaldsson
ásamt hópnum
sem kom til hans
á vegum Meet
the Locals.
„Þetta byrjaði allt bara í gríni á Skype, ég var að
spila tölvuleiki með vini mínum og við þurftum
eitthvað að bíða svo ég byrjaði teikna vin minn,“
segir Sölvi Smárason sem birtir myndirnar sem
hann teiknar á Facebook-síðunni SövliArt.
„Ég byrjaði bara á því að teikna einhverja vini
mína og gerði einhverjar tvær til þrjár myndir. Í
sumar byrjaði ég aftur að teikna og þá fór þetta
frekar mikið af stað, sem kom mér á óvart.“
Myndir Sölva eru allar gerðar í teikniforritinu
Paint og hefur hann síðastliðna mánuði teiknað
fjölmarga þekkta einstaklinga, aðallega Íslend-
inga.
„Ég teiknaði bara fyrst með tölvumúsinni af
því ég var ekki með neina græju í fyrstu mynd-
unum. Ég var frekar lengi að teikna þær myndir.
Svo í ágúst eða september keypti ég mér teikni-
borð,“ segir hann og hlutirnir ganga því hraðar
fyrir sig núna.
Hann segist þó aldrei hafa stefnt á að verða
listamaður.
„Þetta var allt bara svona fyrir slysni,“ segir
hann glaður í bragði: „Ég hef alltaf haldið að ég
teiknaði frekar illa.“
Í nóvember var haldin listasýning í ungmenna-
húsinu Íbúðinni þar sem myndir Sölva voru meðal
annara verka til sýnis en hægt er að skoða mynd-
irnar á facebook.com/sovliart. - gló
Teiknar fræga einstaklinga í Paint-forritinu
Sölvi Smárason byrjaði á að gera myndir af vinum sínum í teikniforritinu en nú er myndefnið fj ölbreyttara.
SÖLVI Sést hér með nokkrar myndir í bak-
grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Við viljum ekki
dreifa athyglinni frá
aðalhátíðinni.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
D
-7
E
7
C
1
7
7
D
-7
D
4
0
1
7
7
D
-7
C
0
4
1
7
7
D
-7
A
C
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K