Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  146. tölublað  103. árgangur  GÖNGULEIÐIR Í NÁGRENNI REYKJAVÍKUR JAFNTEFLI Í LEIK EFSTU LIÐANNA BIÐRAÐIR VIÐ HRAÐBANKA Í GRIKKLANDI ÍÞRÓTTIR ÖGURSTUND 14EINAR MEÐ BÓK 10 Morgunblaðið/Golli Veikindi Viðskiptaráð telur fjarveru aukast með ríkari veikindarétti.  Áætluð fjarvera opinberra starfs- manna er tvöfalt meiri en hjá starfsmönnum á almennum vinnu- markaði. Viðskiptaráð telur að kostnaður vegna umframveikinda opinberra starfsmanna sé um ellefu milljarðar króna á ári. Björn Brynjúlfur Björnsson, hag- fræðingur Viðskiptaráðs, telur að ýmsir þættir hafi áhrif en fjarveran aukist þó með ríkari veikindarétti. „Eftir sex mánuði í starfi hjá hinu opinbera eiga starfsmenn rétt á 119 veikindadögum. Það er tæplega tíu sinnum meira en starfsmaður á al- mennum markaði þar sem starfs- menn fá tvo daga fyrir hvern unn- inn mánuð,“ segir Björn en hann telur brýnt að vita hve mikið megi rekja til umframréttindanna og hversu mikið til annarra þátta. »16 Fjarvera frá vinnu eykst með auknum veikindarétti Samningamálin » VR, Flóabandalagið og SGS gerðu almenna kjarasamninga við SA hinn 29. maí sl. » Sex félög iðnaðarmanna hafa átt í viðræðum við SA um kjarasamning. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fulltrúar sex stéttarfélaga iðnaðar- manna hittast kl. 10 í dag hjá rík- issáttasemjara til að fara sameigin- lega yfir stöðu mála og afrakstur gærdagsins hjá hverju félagi um sig. Síðan munu þeir eiga fund með samninganefnd SA. Takist ekki að semja í dag hefst vikulangt verkfall iðnaðarmanna á miðnætti. Stéttar- félögin sem um ræðir eru Félag hársnyrtisveina, Grafía/FBM, Mat- vís, Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ), Samiðn og Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM). „Við erum að vinna í textavinnunni og markmiðið er að ná þessu sam- an,“ sagði Georg Páll Skúlason, for- maður Grafíu/FBM. Hann mat stöð- una þannig varðandi Grafíu/FBM að málin þokuðust í rétta átt. Fram- kvæmdastjóri SA sagði stefnt að því að ljúka kjarasamningunum í dag. Atkvæðagreiðslum félagsmanna um kjarasamninga SA við VR, Flóa- bandalagið og Starfsgreinasam- bandið (SGS) lýkur á hádegi í dag. Fremur dræm þátttaka hefur verið í atkvæðagreiðslunum. Verkföll í kvöld ef ekki semst  Reynt verður að semja í kjaradeilu sex stéttarfélaga iðnaðarmanna og SA í dag  Atkvæðagreiðslu um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði lýkur í dag MNiðurstaða viðræðna... »6 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Byggingarstjórinn Ólafur Sæ- mundsson við Fosshótelið. Framkvæmdir eru í fullum gangi við stækkun á Fosshóteli Húsavík. Með viðbyggingunni bætast við 44 her- bergi og eftir stækkun hefur hótelið yfir ríflega 100 herbergjum að ráða, auk nýrra ráðstefnusala, veitinga- sala og móttöku. Ný gistiálma rís við eldri hótelbygginguna, sem öll hefur verið tekin í gegn, auk þess sem byggð verður tengibygging. Móttakan verður íburðarmikil. Þar fyrir utan glervegg hefur Björn Skaftason hannað mikinn foss. Á Húsavík verður því fyrsta eiginlega „fosshótelið“. „Hótelið var orðið of lítið vegna aukins straums ferðamanna. Það hefur verið fullbókað yfir aðalferða- mannatímann auk þess sem ferða- mannatíminn hefur lengst í báða enda,“ segir Ólafur Sæmundsson, byggingarstjóri framkvæmdanna við hótelið. Ólafur er frá Patreksfirði og hefur auk starfa fyrir eigið fyrirtæki, Traust verktaka, unnið við byggingu og stækkun Fosshótela á Patreks- firði og Höfn í Hornafirði. Stækkunin á Húsavík á að vera tilbúin í mars á næsta ári. »12 Foss í Fosshóteli Húsavík  44 herbergi bætast við og verða yfir 100 eftir stækkun Talið er að hátt í 10 þúsund manns hafi verið á tónlistarhátíðinni Secret Solstice þegar mest lét um helgina. Hátíðinni lauk seint í gærkvöldi en alla helgina gátu gestir svamlað í heitum potti og fylgst með tónlistarmönnum á stóra sviðinu. Lengstur sólargangur var í gær en sumarsól- stöður voru kl. 16.38, þegar sólin fór lengst frá miðbaugi til norðurs. Nú fer sólin að lækka á lofti jafnt og þétt. »26-27 Sungið og djammað á lengsta degi ársins Morgunblaðið/Styrmir Kári Tónlistarhátíðinni Secret Solstice lauk í Laugardalnum í gærkvöldi  Makrílvinnsla hófst hjá Vinnslustöðinni í Vestmanna- eyjum sl. laug- ardag. Kap VE kom með fyrsta makrílfarminn til Eyja á laug- ardagsmorgun, um tvö hundruð tonn. „Við leitum út um allan heim að nýjum mörkuðum. Við höfum að- allega fundið þá í Suðaustur-Asíu og selt makríl til Kína og víðar,“ sagði Sigurgeir Brynjar Krist- geirsson framkvæmdastjóri. »4 Hafa fundið nýja markaði fyrir makríl Makríll Vertíðin er byrjuð í Eyjum. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, fundaði í liðinni viku með fram- kvæmdastjóra Taser, Rick Smith. Vilji hefur verið fyrir því lengi hjá lögreglunni að taka upp raf- byssur en Vilhjálmur Árnason, þingmaður og fyrrverandi lög- reglumaður, hefur mælt fyrir upptöku þeirra á Alþingi. Hann hefur einnig hitt framkvæmda- stjóra Taser. Landssamband lög- reglumanna hefur tvisvar ályktað um nauðsyn þess að taka upp rafbyssur. „Okk- ur þykir stórt stökk á milli þess að nota kylfur og pip- arúða annars vegar og svo yfir í skotvopn sem er næsta úrræði. Því teljum við mikilvægt í vald- beitingarstiganum að fá tæki sem veldur mun minni líkamlegum skaða á einstaklingnum,“ segir Snorri. Þegar hefur sérsveit lög- reglunnar yfir tveimur slíkum tækjum að ráða en þau eru ein- ungis hugsuð til þjálfunar og hef- ur ekki verið beitt. Snorri bendir á að skv. erlendum rannsóknum hafi upptöku tækjanna fylgt lægri meiðslatíðni. »4 Landssamband lögreglumanna og þing- maður beita sér fyrir upptöku rafbyssna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.