Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015
Ætli ég grilli ekki með fjölskyldunni,“ segir Stefán GunnarSigurðsson, frístundaleiðbeinandi í Þróttheimum og nemi ítómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands, en
hann fagnar tuttugu og tveggja ára afmæli sínu í dag.
Stefán Gunnar er fæddur og uppalinn í Skerjafirði og býr þar enn.
Hann stundaði nám við Melaskóla, svo Hagaskóla, þar næst Kvenna-
skólanum og nú við Háskóla Íslands, en skólarnir eru allir í nánasta
nágrenni við Skerjafjörð. Hann segir uppvaxtarárin í Skerjafirði hafa
verið „alveg yndisleg“.
Stefán Gunnar hefur mikla reynslu af vinnu með börnum og ung-
lingum, en áður en hóf störf í Þróttheimum var hann leiðbeinandi á
leikjanámskeiði fyrir einhverf börn og starfaði hjá Jafningja-
fræðslunni. Hann kveðst stefna á frekara nám og reynslu á því sviði.
„Áhugamál mín eru að hlusta á góða tónlist og horfa á bíómyndir,
fótbolti og íþróttir almennt,“ segir Stefán Gunnar og bætir við að hon-
um líði best í góðra vina hópi.
Hann æfði fótbolta hjá KR sem barn og unglingur og spilaði á
trommur á árum áður.
Þegar hann er spurður um fjölskylduhagi svarar hann: „Það stend-
ur allt á núllpúnkti,“ og vísar þá til þess að hann sé einhleypur og
barnlaus. brynja@mbl.is
Afmælisbarnið Stefán Gunnar ætlar að grilla með fjölskyldunni.
Fjölskylduhagirnir
eru á núllpunkti
Stefán Gunnar Sigurðsson er 22 ára í dag
H
annes Baldursson
fæddist í Reykjavík
22. júní 1955 og ólst
upp í bítlabænum
Keflavík. „Þar var líf-
ið við bryggjuna. Veiddur var fiskur
á færi eða beðið eftir bátunum sem
streymdu af hafi með aflann. Faðir
minn var þá stýrimaður á Bergvík
en síðar á Hamravík og oft urðum
við samferða heim. Ég fór eitt sumar
í sveit að Eskifjarðarseli í Eskifirði.
Þar bjuggu systkinin Páll og Berg-
þóra Pálsbörn, en Bergþóra skrifaði
barnabækur og var hagmælt. Þar
kynntist ég búskaparháttum er sleg-
ið var og snúið með vél, en annað var
unnið á höndum. Það var mjög lær-
dómsríkur tími og ég vann mikið
þótt ungur væri. Seinna átti ég eftir
að sjá hvernig tæknin hafði þróast í
landbúnaðinum er ég bjó á Hvann-
eyri. Ég kynntist sumarbúðastarfi
KFUM í Vatnaskógi sem byggðist
mikið á leikjum og siglt var á vatn-
inu. Upplagið var í anda séra Frið-
riks Friðrikssonar og ákaflega lær-
dómsríkt.“
Náms- og starfsferill
„Ég gekk í Barnaskóla Keflavíkur
og fyrsti kennari minn var Björg
Sigurðardóttir, sem í minningunni
var sérlega ljúf manneskja og góður
kennari.“
Tónlistin hefur verið Hannesi
hugleikin og stundaði hann nám við
Tónlistarskóla Reykjavíkur á ár-
unum 1974 til 1978. Hannes lauk
stúdentsprófi frá tónlistarbraut
Menntaskólans í Hamrahlíð árið
1982 og B-ed prófi frá tónmennta-
deild KÍ árið 1985. Hann starfaði
sem tónmenntakennari í grunn-
skólum og sem skólastjóri við Anda-
kílsskóla á Hvanneyri 1989-94. Þá
var hann meðal annars skólastjóri
við Tónlistarskóla Bolungarvíkur
1995-97. Síðasta áratuginn hefur
Hannes starfað sem tónmennta-
kennari við Snælandsskóla í Kópa-
vogi. Jafnhliða kennslu hefur hann
starfað víða sem organisti, á Hvann-
eyri og í Lundarreykjadal, við Hóls-
kirkju í Bolungarvík, Lindakirkju í
Kópavogi og Eskifjarðarkirkju, en
síðast við Þorlákssókn og Strand-
arkirkju í Selvogi. Þá hefur Hannes
stjórnað mörgum kórum og einnig
harmonikusveitum. Hann lauk org-
anistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar árið 2009 og diplómanámi í
hagnýtri margmiðlun við Borgar-
holtsskóla vorið 2015.
Hannes hefur hlotið viðurkenn-
ingu frá Kópavogsdeild Rauða
krossins vegna þátttöku í verkefninu
Söngvinir í Sunnuhlíð, sem byggðist
á vikulegum flutningi tónlistar til að
Hannes Baldursson kennari – 60 ára
Hjónin Hannes og Eyrún við brúðkaup Sigurðar, sonar Hannesar, og Gunnhildar 2012.
Starfar sem organisti
jafnhliða kennslu
Reykjavík Sigurjón
Egill Jónsson fædd-
ist 1. janúar 2015 kl.
0.00. Hann vó 4.322
g og var 52 cm lang-
ur. Foreldrar hans
eru Stefanía Björg
Jónsdóttir og Jón
Egill Jónsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is