Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.06.2015, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015 Útskrift Háskóli Íslands brautskráði metfjölda, 2.081 kandídat, laugardaginn 20. júní. Tvær brautskráningarathafnir fóru fram og voru það þær síðustu hjá Kristínu Ingólfsdóttur rektor. Kristinn Í gegnum tíðina hef- ur mannfólkið haft á því afar misjafnar skoðanir hvernig rétt sé að fást við alls kon- ar atvik og kringum- stæður í samfélagi mannanna sem menn telja að færa þurfi til betri vegar. Í huga sumra verður oftast fyrst uppi tilhneig- ingin til að beita rík- isvaldi til að knýja fram lagfær- ingar. Segja má að þetta sé aðferð sósíalismans. Oft áttum við okkur þá ekki nægilega vel á því að vald- beiting felur í sér skerðingu á frelsi. Í tilefni af þessu ættum við að setja okkur í svolítið hátíðlegar stellingar og velta fyrir okkur grundvellinum fyrir því samfélagi sem við öll erum í við annað fólk. Erum við ekki sjálf grunneiningin? Við höfum auðvitað aldrei verið beðin um að semja okkur inn í sam- félag við aðra. Flest teljum við samt að okkur beri siðferðileg skylda til þátttöku í slíku samfélagi. Ástæðan er sjálfsagt nábýlið við aðra og óhjákvæmileg sameiginleg við- fangsefni okkar og þeirra. Þess vegna beygjum við okkur flest und- ir að teljast þátttak- endur í sameiginlegu skipulagi með öðru fólki. Einstaklingurinn er grunneiningin Þetta skipulag hefur mótast með ýmsum hætti, til dæmis hafa orðið til einingar sem settar eru saman úr þeim einstaklingum sem byggja ákveðin og skilgreind landsvæði. Þeir mynda saman svokölluð þjóðríki og setja sér regl- ur um sambúð sína innan endi- marka þeirra. Við gerum fæst mikl- ar athugasemdir við þetta. Meginhugmyndin hlýtur samt að vera sú að einstaklingurinn sé grunneiningin í slíku samfélagi. Hann verður ekki til fyrir sam- félagið, heldur verður samfélagið til vegna hans og annarra einstaklinga sem þar er að finna. Hlutverk þess getur aldrei orðið að drottna yfir honum. Það hefur miklu fremur því hlutverki að gegna að vernda rétt- indi hans fyrir ásókn annarra. Þessi hugsun mótar þýðingarmikil grunn- viðhorf í stjórnskipun okkar og lög- um. Til dæmis er það almenn meg- inregla í okkar réttarkerfi að frelsi manna til orða og athafna eigi helst ekki að takmarkast af öðru en rétt- indum annarra. Við teljum líka þá meginreglu gilda að setta lagaheim- ild þurfi til að skerða frelsi ein- staklinga og jafnvel að slík heimild dugi ekki til ef skert eru réttindi sem njóta ríkari verndar sam- kvæmt sérstökum ákvæðum sem við höfum sett í stjórnarskrá okkar um það. Öll höfum við gott af því að hugsa um þennan hugmyndagrund- völl að stjórnskipun okkar og velta fyrir okkur gildi hans fyrir velferð okkar og lífshamingju. Virðing fyrir öðrum Það er sérstök ástæða til að nefna annan þátt, sem að mínum dómi er óaðskiljanlegur hluti af þeirri lífsskoðun sem hér er lýst, en það er virðing fyrir öðru fólki og skilyrðislaus viðurkenning á rétti þess til að haga eigin lífi á þann hátt sem það sjálft kýs, eins lengi og það skaðar ekki aðra. Mann- fólkið er fjölbreytilegt og einstakir menn hafa ólíkar kenndir, hvatir og langanir í lífinu. Allir eiga þar að mínum dómi sama rétt. Ekkert okkar hefur heimild til að sitja yfir hlut annarra með því að bjóða og banna, eins og svo margir vilja sí- fellt gera. Sumir vilja flokka mann- fólkið eftir þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, kynferði, kynhneigð, gáfum eða hverju því öðru sem greinir einn mann frá öðrum og láta menn njóta misjafns réttar eftir því hverjum þessara „flokka“ þeir til- heyra. Til þess hafa menn ekki heimild af þeirri einföldu ástæðu að einn á ekki að ráða neinu um einka- hagi annars. Svo einfalt er það. Jafnrétti nýtur verndar í stjórnarskrá Við breytingar á mannréttinda- kafla stjórnarskrárinnar á árinu 1995 var sett nýtt ákvæði í 65. gr. um sérstaka verndun jafnréttis svo- hljóðandi: „Allir skulu vera jafnir fyrir lög- um og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litar- háttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“ Í þessu ákvæði felst bann við því til dæmis að mismuna mönnum eft- ir kynferði þeirra. Þrátt fyrir þetta eru þess mörg dæmi í lögum og framkvæmd laga að kveðið sé á um að mismuna skuli einstaklingum eftir kynferði þeirra. Þannig virðist það vera viðtekið viðhorf að ekkert sé athugavert við að gera upp á milli umsækjenda um störf á vegum hins opinbera á grundvelli kynferð- is þeirra. Þá er stundum vísað til þess að fyrir í viðkomandi starfs- stétt séu fleiri af öðru kyninu en hinu. Við þekkjum líklega flest dæmi um að sá umsækjandi um op- inbert starf, sem enginn vafi er á um að teljist hæfari en annar, þurfi að láta í minni pokann vegna kyn- ferðis síns, þ.e. hinn er tekinn fram yfir vegna þess að fjölga þurfi starfsmönnum af kynferði hans. Ef svona viðhorf eru lögð til grundvallar til að gera upp á milli umsækjenda felst í því augljóst brot á fyrrgreindu ákvæði stjórnarskrár. Menn ættu að muna að mannrétt- indin eru einstaklingsbundin rétt- indi. Það er ekki heimilt að brjóta á þér mannréttindi, lesandi góður, til að ná meiri jöfnuði í kynjaskiptingu starfsmanna í þeirri starfsstétt sem þú sækist eftir starfi í. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » „Menn ættu að muna að mannréttindin eru einstaklingsbundin réttindi. Það er ekki heimilt að brjóta á þér mannréttindi, lesandi góður, til að ná meiri jöfnuði í kynjaskiptingu starfsmanna í þeirri starfsstétt sem þú sæk- ist eftir starfi í.“ Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Meginviðhorf um jafnrétti borgaranna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.