Morgunblaðið - 22.06.2015, Page 11

Morgunblaðið - 22.06.2015, Page 11
Morgunblaðið/Eva Björk Útgáfa Einar Skúlason ásamt syni sínum Steini Inga Einarssyni, glaðir á útgáfuhófi bókarinnar fyrir skemmstu. samráð við Trausta Pálsson en þeir, ásamt fjölda annarra, skipa göngu- hópinn Vesen og vergang sem var stofnaður árið 2011. Síðustu ár hefur Trausti skipulagt göngur á þriðju- dagskvöldum fyrir hópinn. Göngu- hópurinn hefur því oft þrammað leið- irnar sem er að finna í bókinni enda er bókin tileinkuð hópnum. Einar er áhugamaður um sögu- tengda útivist sem hann segir að sé dýrmætt krydd á gönguleiðunum. „Venjulegur dalur sem gengið er um getur breyst í töfraveröld um leið og sögð er saga sem tengist honum. Þá tengist maður náttúrunni betur,“ segir Einar. Þessi áhugi hans á sögunni í náttúrunni kviknaði í æsku. „Ég var mikið í kringum ömmu mína og vildi alltaf vera með henni ef ég mögulega gat. Ég skottaðist mikið í kringum hana en hún var mikil útivistarkona. Hún sagði mér sífellt sögur sem tengdust stöðum í náttúrunni og í dag segi ég öðrum þessar sömu sög- ur,“ segir Einar glaður í bragði. Fá fleiri út í náttúruna Einar segir að markmið hans með bókinni sé að fá fleiri til að njóta náttúrunnar og prófa nýjar göngu- leiðir í nágrenni höfuðborgarsvæð- isins. Ótal margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nánd við höfuðborg- ina sem margir þekkja ekki. „Ég hvet fólk til að hugsa út fyrir ramm- ann og prufa aðrar gönguleiðir. Fólk getur oft verið mjög vanafast og vill hafa hlutina eins.“ Í þessu samhengi vísar hann til vinsælda Esjunnar og bendir á kosti þess að fólk dreifi sér betur um land- ið. „Stundum vill maður ganga í nátt- úrunni án þess að mæta fullt af fólki. Það er til fullt af góðum gönguleiðum sem fólk keyrir jafnvel fram hjá.“ Búrfellsgjá í Heiðmörk er dæmi um slíka leið. Smáforrit fyrir gönguleiðir Einar er með mörg járn í eld- inum sem tengjast oftar en ekki nátt- úrunni. Hann er að skipuleggja gönguhátíð í Súðavík um versl- unarmannahelgina í samvinnu við Súðavíkurhrepp. Þar munu m.a. heimamenn taka á móti fólki og sýna því landslagið. Þá vinnur Einar, í samstarfi við fleiri, að því að þróa app eða smá- forrit sem mun geyma um 250 gönguleiðir víðs vegar um landið. Smáforritið er með þeim hætti að gönguleiðinni er hlaðið í símann áður en lagt er af stað og leiðinni er fylgt með nákvæmri gps-staðsetningu. Á leiðinni gefur síminn merki og upp- lýsingamolar birtast um nánasta um- hverfi. Stefnt er að því að smáforritið komist á markað í lok nóv- ember og verði á íslensku og ensku. Markmiðið er að fleiri gönguleiðir bætist við jafnt og þétt. „Ég hef heilmiklar væntingar til forritsins og vonast til að útlendingar verði duglegir að nota þetta. Það eru sameiginlegir hags- munir okkar að dreifa fólki betur um landið til að minnka átroðning á stakar leiðir en mjög margar leiðir má nýta mun betur.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015 Caddy City er enn einfaldari og hagkvæmari útfærsla af Volkswagen Caddy, sniðin að þörfum þeirra sem vilja traustan vinnufélaga til að létta sér lífið við dagleg störf. City er viðbót í sendibílalínu Volkswagen Caddy. Volkswagen Caddy hefur árum saman verið mest seldi atvinnubíllinn á Íslandi. Með tilkomu City er enn auðveldara að bætast í hóp hæstánægðra Volkswagen eigenda. Caddy City kostar aðeins frá 2.630.000 kr. (2.120.968 kr. án vsk) Caddy með nýju sniði Atvinnubílar Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Vinsælasti atvinnubíllá Íslandi síðastliðin ár! www.volkswagen.is Leiðirnar í bókinni eru hugsaðar með þeim hætti að hægt sé að fara þær flestar á einni kvöld- stund eða hluta úr degi miðað við að fólk búi á höfuðborgar- svæðinu. Fyrir þá sem geta nokk- uð auðveldlega gengið upp að steini á Esjunni, upp á Úlfarsfell, Helgafell og aðrar sambærilegar gönguleiðir þá ættu flestir að ráða við gönguleiðirnar í bókinni þó erfiðleikastigið sé misjafnt. Margar leiðir eru hentugar fyr- ir alla í fjölskyldunni og aðrar fyrir stálpaðri börn. Gönguleið- irnar eru fjölbreyttar og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einar tekur þó fram að fólk gangi mishratt og aðstæður geta verið misjafnar en mik- ilvægt sé að njóta náttúrunnar og koma heill heim. Einar hvet- ur fólk til að hreyfa sig. „Það er hvíld í því að fara út í náttúruna, frekar en í sófann fyrir framan sjónvarpið því þá verður svefninn líka mikið betri.“ Hvíld úti í náttúrunni TEKUR EINA KVÖLDSTUND Nú þegar sumarið er komið, svona samkvæmt dagatalinu, er ekki laust við að streitan aukist á mörgum heimilum. Væntingar um skemmti- legt sumarfrí og góðar samveru- stundir eru oft á tíðum miklar. Á sama tíma fer rútína vetrarins úr skorðum. Foreldrar fá yfirleitt ekki eins langt sumarfrí og börnin og það þarf að brúa það bil. Dagarnir eru lengri, svefntíminn skerðist og mál- tíðir fara oft úr skorðum. Meiri sam- vera kallar líka oft á meiri nálægð og það getur tekið á, eins gaman og það getur líka verið. Eftirfarandi punktar geta hjálpað til við að gera þessa árstíð að já- kvæðri upplifun: Þetta er bara ein af fjórum árstíð- um sem koma árlega. Sumarið kem- ur og sumarið fer. Fyrir marga er þetta vinnuvertíð og flestir vinna að einhverju leyti yfir sumartímann. Lífið heldur áfram sinn vanagang, fólk veikist, fæðist og deyr. Fólk skiptir um störf, flytur, skilur, upp- lifir ástina og ástarsorgina. Lífið fer ekki á pásu þó að það sé komið sum- ar. Rútína í rútínuleysinu Það getur verið gott að losa um fasta rútínu vetrarins og það er hvíld fyrir flesta að þurfa ekki að rífa alla fjölskylduna á fætur kl. 6.30 virka morgna. En það er að sama skapi gott að snúa ekki sólarhringnum við. Við höfum öll þörf fyrir ákveðinn ramma og stöðugleika. Það getur verið gagnlegt að allir hafi eitthvað fyrir stafni, hvort sem það er vinna, leikur eða að sinna verkefnum heima við. Litlu augnablikin telja Sumarfrí þarf ekki að vera stöðug flugeldasýning. Það er mikilvægast að njóta augnabliksins, hvort sem maður er heima við eða í drauma- ferðinni sinni. Ná að stoppa og vera meðvitaður um að þetta augnablik er það sem það er og sjá fegurðina í því. Það þarf ekki að gera allt Það er oft mikið í boði og dag- skráin getur verið fljót að fyllast. Við megum velja og hafna, það þarf ekki að endasendast landshorna eða bæj- arenda á milli til að taka þátt í öllu. Sumarfrí má einmitt vera frí, tími til að slaka á og gera ekkert. Það getur verið krefjandi að vera alltaf saman. Það er mannlegt að verða þreytt- ur í aðstæðum sem eru öðruvísi en venjulega. Í rútínu vetrarins er fjöl- skyldan yfirleitt ekki saman allan sólarhringinn svo dögum eða jafnvel vikum skiptir eins og í sumarfríinu. Það er ekki ástæða til að fá sektar- kennd eða finna fyrir skömm þó að þörf fyrir einveru í miðju fjöl- skyldufríi vakni. Líkur eru á að aðrir í fjölskyldunni hafi líka þessa þörf. Það getur verið gott að fara ein/einn í göngutúr, skiptast á að eiga ein- staklingsstundir á ströndinni eða við sundlaugina og fyrir pör að eiga notalega stund í einrúmi ef hægt er að koma því við. Sumarið skellur á Heilsupistill Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur Morgunblaðið/Frikki Sumarfrí Eins yndislegt og sumarið er og sumarfríið kærkomið getur þessi árstími einnig valdið streitu hjá öllum í fjölskyldunni.  Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón- usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.