Morgunblaðið - 22.06.2015, Page 12

Morgunblaðið - 22.06.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Þarftu að framkvæma? Við eigum pallana fyrir þig SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Mér þykir gaman að vinna með fólki úti á landi, er sjálfur lands- byggðarmaður,“ segir Ólafur Sæ- mundsson, byggingarstjóri við stækkun Fosshótels á Húsavík. Hann er frá Pat- reksfirði og hefur auk starfa fyrir eigið fyrirtæki, Traust verktak, TVT, unnið við byggingu og stækkun Foss- hótela á Patreks- firði og í Horna- firði og nú á Húsavík. Gömlu slátur- húsi á Patreksfirði var breytt í glæsilegt hótel. Ólafur vann mikið að þeirri framkvæmd í sínu gamla þorpi. „Hótelið hefur gengið mjög vel og orðið til að efla samfélagið. Nú er komið í ljós að það hefði mátt vera stærra. Búið er að gera frumskissur að stækkun um 18 herbergi og stækkun á veitingastað.“ Fosshótel Vatnajökull í Horna- firði var einnig áhugavert verkefni. Þar var sérlega vönduð viðbygging við eldra hótel felld á fallegan hátt inn í landslagið. Segir Ólafur að Sig- ríður Sigþórsdóttir arkitekt hafi staðið sérlega vel að því. Fyrsta eiginlega „fosshótelið“ Nú á stækkun Fosshótels Húsa- víkur hug hans allan. Byggð er ný gistiálma og tengibygging. Auk þess hefur öll gamla byggingin verið tek- in í gegn. Þar töpuðust þrjú herbergi vegna þess að herbergi voru sam- einuð til að útbúa svítur. Með við- byggingunni bætast 44 herbergi við og verða gistiherbergin eftir það rúmlega 100, auk nýrra ráðstefnu- sala, veitingasala og móttöku. Móttakan verður íburðarmikil. Þar fyrir utan glervegg hefur Björn Skaftason hannað mikinn foss. Á Húsavík verður því fyrsta eiginlega „fosshótelið“. „Hótelið var orðið of lítið vegna aukins straums ferða- manna. Það hefur verið fullbókað yf- ir aðalferðamannatímann auk þess sem ferðamannatíminn hefur lengst í báða enda,“ segir Ólafur. Hótelið á að vera tilbúið í mars. Bakkaverkefnið kemur eins og kall- að og mun hótelið væntanlega njóta góðs af því á næstu árum, eins og önnur þjónustufyrirtæki á svæðinu. Sér um að áætlanir standist Hlutverk byggingarstjóra í þess- um verkefnum, eins og öðrum, er að sjá til þess að allir meistarar sem koma að verkinu vinni sín verk sam- kvæmt uppdráttum hönnuða og noti til þess rétt efni. Sömuleiðis að allt sé unnið samkvæmt gildandi reglum. Hann þarf að færa gæða- handbók byggingarinnar og sjá til þess að verktakar vinni sín verk í réttri röð, þannig að ekki verði árekstrar og að kostnaður og tíma- rammi standist. Þetta er langa svar Ólafs um hlutverk byggingarstjóra. Stutta svarið er „að vera freki karl- inn sem sér til þess að tímaáætlanir standist og peningarnir dugi“. Ólafur segir að samstarfið hafi gengið vel á öllum stöðunum og Fosshótel fengið vandaðar bygg- ingar fyrir rekstur sinn. Stjórinn er „freki karlinn“  Fosshótel Húsavík gengur í endurnýjun lífdaganna og stækkar til muna  Foss verður við anddyri og veitingastað  Þriðja hótel byggingarstjórans Foss Gestir geta notið „náttúrunnar“ í móttöku hótelsins og úr veitingasal. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gisting Ný gistiálma Fosshótels Húsavíkur rís við eldra húsið. Mikill straumur ferðafólks er til Húsavíkur og er hót- elið fullbókað meginhluta sumarsins. Aukin umsvif vegna virkjunar og stóriðju auka tekjur þjónustufyrirtækja. Ólafur Sæmundsson Gestum og gangandi var boðið inn í alþingishúsið um helgina. Sýning var opnuð í skála þinghússins á kvenna- daginn í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna en einnig bauðst fólki að skoða þinghúsið og þingsalinn. Áætlað er að um 1.500 manns hafi sótt Alþingi heim og kveðst Einar K. Guðfinnsson þingforseti ánægður með bæði sýninguna og viðtökurnar. Hann segir fólk yfirleitt fá mjög nei- kvæða mynd af þinginu og störfum þess í gegnum fréttir af átökum það- an. Þingið sé fólki mjög fjarlægt en störf þess séu með talsvert skárra móti almennt. Einar segir sýningar sem þessar áður hafa gefið góða raun og upplagt að endurtaka leik- inn við góð tækifæri. Á sýningunni voru myndir af öll- um þingkonum landsins í gegnum tíðina og boðið upp á valin brot úr þingræðum tengdum kosningarétti kvenna. Áberandi voru þar áhyggjur þingmanna þess tíma af þeirri „kvöð“ sem lögð væri á konur með því að veita þeim kosningarétt. Morgunblaðið/Styrmir Kári Alþingi Sýning var í skála alþingishússins í tilefni af aldarafmæli kosninga- réttar kvenna en áhugasamir gátu einnig fengið leiðsögn um húsið. Alþingishúsið opið á kvennadeginum  Sýning tengd kosningarétti kvenna Nýtt listaverk var afhjúpað í jarð- vanginum Kötlu í síðustu viku. Listaverkið er gagnvirk innsetning sem felst í QR-kóða sem gerður er úr fjörusandi og rekavið. Þegar tekin er mynd af kóðanum með snjallsíma leiðir hann inn í sýndar- heim sem geymir upplýsingar um jarðvanginn. Að verkinu standa Etienne Delp- rat, samstarfshópurinn YA+K, Una Sigtryggsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir og Kötlusetur, en verk- ið er hluti af doktorsverkefni Eti- enne í arkitektúr og listum. Jarðvangurinn Katla var stofn- aður árið 2010 en jarðvangur er al- þjóðlegt heiti yfir svæði sem talin eru þurfa samræmda vernd, þróun og stjórnun. Jarðvangurinn Katla þekur um 9% af Íslandi og innan hans falla m.a. Hvolsvöllur, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur. Víða um heim má finna jarðvanga en Katla er sá fyrsti á Íslandi. Ljósmynd/Þórir Kjartansson QR-kóði Verkið var afhjúpað í síðustu viku, en það er úr fjörusandi og rekavið. Listaverk afhjúpað í jarðvanginum Kötlu Samtök um bíllausan lífsstíl halda í kvöld rýnifund, í samráði við Holl- vini Strætó, um nýtt leiðakerfi og nýja heimasíðu Strætó. Á fundinum mun Kristín Soffía Jónsdóttir borg- arfulltrúi kynna leiðakerfisbreyt- ingu strætisvagna. Einnig munu Ragnheiður Einarsdóttir og Daði Ingólfsson, starfsmenn Strætó bs., kynna nýja heimasíðu fyrirtæk- isins. Nýtt leiðakerfi er í umsagn- arferli til 25. júní af hálfu borg- arinnar en samtökin og hollvinir munu ræða sínar athugasemdir. Fundurinn hefst kl. 20 í kvöld á Kex hosteli og er öllum opinn. Fundað í kvöld um nýjar strætóleiðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.