Morgunblaðið - 22.06.2015, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino snemma og skemmti viðstöddum
af nokkurri fagmennsku. Lög
hans ‚Ballin‘ og ‚Hello‘ féllu vel í
kramið hjá áhorfendum sem
fengu tækifæri á að gæða sér á
morgunkorni meðan á flutningi
síðarnefnda lagsins stóð. HAM-
liðar áttu því næst stærsta sviðið
og stóðu sig prýðilega að venju.
‚Dauð hóra‘ og ‚Ingimar‘ vöktu
mikla lukku og kynlegt samspil
Sigurjóns Kjartanssonar og Ótt-
ars Proppé var seiðandi.
Gúrú nokkur hvatti áhorf-
endur síðan til dáða sem tóku þó
lítið undir orð hans, enda nokkuð
ruglingslegt innslag í tónlistar-
hátíðina. Daníel Ágúst og Biggi
veira þökkuðu undirbúninginn
með hressilegri innkomu GusGus.
Lög á borð við ‚David‘ ómuðu um
dalinn og gestir tóku vel undir.
Högni skoppaði síðar inn á sviðið
og lög af plötunni Mexico tóku
við. Eitthvað fór þó úrskeiðis hjá
hljóðtæknifólki hátíðarinnar og
slokknaði á kerfinu í miðju lagi.
Eftir stóðu meðlimir GusGus eins
og álfar út úr hól áður en þeir
hröðuðu sér af sviðinu. Hljóðið
komst þó aftur á eftir dágott hlé
og héldu tónleikar áfram.
Bjagaðir slagarar
Bandaríska söngkonan Kelis
lauk síðan dagskránni á aðal-
sviðinu með sterkri nærveru
þrátt fyrir að hljóðið hefði mátt
vera kraftmeira. Söngkonan, sem
gerði garðinn frægan vestanhafs
fyrir um áratug með lögum á
borð við ‚Milkshake‘ og ‚Trick
Me‘, hefur greinilega tekið
nokkrum stakkaskiptum og ný
lög hennar minntu um margt á
Ibiza-teknó Davids Guetta og
álíka skífuþeyta. Kelis tók nokk-
uð bjagaðar útgáfur af sínum
helstu slögurum og lauk settinu á
sínu þekktasta lagi, ‚Milkshake‘,
sem flestir höfðu beðið með
óþreyju eftir.
Sökum nýja skipulagsins
myndaðist örtröð fyrir framan
inngang skautahallarinnar Heljar
þar sem inngangurinn að höllinni
var á sama stað og útgangur
svæðisins. Troðningurinn var því
heldur mikill sem kom þó ef til
vill ekki mikið að sök. Í Hel tók
síðan við breski plötusnúðurinn
Skream sem þeytti gestum inn í
bjarta nóttina.
Morgunblaðið/Eggert
Kelis Bandaríska söngkonan lauk dagskránni á aðalsviðinu með sterkri nærveru. Söngkonan hefur greinilega tekið nokkrum stakkaskiptum.
Ham Sveitin stóð sig prýðilega á stóra sviðinu og sum lög vöktu lukku. GusGus Daníel Ágúst og félagar voru með hressilega innkomu.
» Skipulagið á svæð-inu var greinilega
tekið sérstaklega til
skoðunar og var nokkuð
nýstárlegt í ár.
Afslöppun Heiti potturinn var vin-
sæll og þar nutu menn lífsins.
TÓNLIST
Davíð Már Stefánsson
Davidmar@mbl.is
Tónlistarhátíðin Secret Sol-stice var haldin hátíðleg íannað sinn nú um helgina.
Föstudagurinn byrjaði snemma í
Laugardalnum en fyrstu atriðin
hófust í hádeginu. Líkt og í fyrra
vakti það mikla undrun, enda
flestir tónleikagestir ennþá við
vinnu. Atriðin eru þó eflaust stíl-
uð inn á ferðamennina sem fjöl-
menntu á hátíðina.
Stóðu við orð sín
Eins og áður segir hóf hátíð-
in göngu sína í fyrra og fór hún
nokkuð vel af stað þrátt fyrir að
ýmislegt hafi mátt bæta. Skipu-
lagið á svæðinu var greinilega
tekið sérstaklega til skoðunar og
var nokkuð nýstárlegt í ár. Aðal-
sviðið, Valhöll, var fært af gervi-
grasi Þróttar og í lundinn á bak
við það og kom það vel út. Lund-
urinn er nokkuð lokaður og
stemningin sem myndast þar
talsvert betri en stemningin sem
gefst kostur á að mynda á víð-
áttumiklu gervigrasinu. Það er í
raun sama hver er að spila á
sviðinu þar, þar er alltaf tóm-
legt.
Skipuleggjendur hátíðar-
innar stóðu við orð sín frá því í
fyrra og hættu með hátíðar-
gjaldmiðilsruglið frá því í fyrra
sem lyktaði af einhverju mis-
jöfnu. Um helgina gat maður því
greitt eðlilega fyrir þann varn-
ing sem í boði var á svæðinu.
Lögreglan var einnig nokkuð
sýnileg. Enn sýnilegri voru þó
þeir sem ekki ætluðu að láta
nærveru hennar skemma fyrir
sér og graslyktin lá yfir dalnum.
Lítið sást til stimpinga þennan
upphafsdag hátíðarinnar þrátt
fyrir að slíkt ætti þó eftir að
vinda upp á sig þegar á leið.
Dauð hóra í dalnum
GKR, enn eitt nýjabrumið í
íslenskri hiphop-senu, steig á
svið í tjaldinu Fenri tiltölulega
Laugardalurinn lofar góðu
Secret Solstice 2015