Fréttablaðið - 15.07.2015, Qupperneq 6
15. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Með hverjum snæddi Ólafur Ragn-
ar Grímsson kvöldverð á Akureyri?
2. Hver vann Wimbledon-mótið í
tennis í einliðaleik kvenna?
3. Frá hvaða fylki er Scott Walker sem
býður sig fram til Bandaríkjaforseta?
SVÖR:
1. Ted Turner 2. Serena Williams 3. Wis-
consin
MENNTAMÁL Niðurstaða er komin í mál nýút-
skrifaðs viðskiptafræðings sem var grunað-
ur um að hafa falsað þrjú viðtöl í lokaritgerð
sinni.
Þetta staðfestir Daði Már Kristófersson,
forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
Daði vildi ekki tjá sig um niðurstöðuna að
öðru leyti.
Málið hefur verið til rannsóknar hjá við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands frá því í
apríl.
Ritgerðin sem um ræðir byggir meðal ann-
ars á viðtölum og gögnum frá ferðaþjónustu-
aðilum á Suðurlandi sem eru fölsuð.
Upp komst um málið í kjölfar þess að Frið-
rik Pálsson, hótelhaldari á hótel Rangá, fékk
ábendingu um að fram væri komin ritgerð
sem byggðist á rekstri hans. Friðrik, sem
kannaðist ekkert við að hafa svarað spurn-
ingum frá ritgerðarhöfundi, vakti athygli við-
skiptafræðideildar á málinu.
Síðar kom í ljós að tveir aðrir viðmælendur
í ritgerðinni könnuðust heldur ekki við að
hafa hitt eða svarað spurningum frá höfundi.
Athygli vekur að ritgerðin er full af mál-
fars- og stafsetningarvillum en nemandinn
fékk 8 í einkunn fyrir ritgerðina. Fréttablaðið
hefur ritgerðina undir höndum. - ngy
Ritgerð nýútskrifaðs viðskiptafræðinema byggði á þremur viðtölum sem talin eru uppspuni:
Rannsókn lokið hjá viðskiptafræðideild HÍ
HÁSKÓLI ÍSLANDS Málið hefur verið til rannsóknar
hjá viðskiptafræðideild frá því í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FERÐAÞJÓNUSTA „Það er nú
sennilega skást á Þingvöllum
miðað við aðra staði á land-
inu en þetta er alveg skelfilegt
ástand almennt,“ segir Helgi Jón
Davíðs son leiðsögumaður um
ástand salernismála fyrir ferða-
fólk hérlendis.
Gríðarleg fjölgun ferðamanna
undanfarin ár heldur áfram á
þessu ári. Sigrún Magnúsdóttir,
umhverfisráðherra og formaður
Þingvallanefndar, segir að haldi
aukningin áfram, þá hafi menn
varla undan. Hún tekur þó undir
að á Þingvöllum sé staðan betri
en víðast annars staðar. Þar hafi
komið á bilinu 600 til 700 þúsund
gestir í fyrra og í stefni að það
aukist um 30 prósent.
„Það er svo margt nýtt sem
þarf að hugsa um og ég held að
við séum öll af vilja gerð en ég
held að ekkert land hafi staðið
frammi fyrir annarri eins aukn-
ingu á svo skömmum tíma,“ segir
umhverfisráðherra.
Sigrún segir salernismálin til
umræðu bókstaflega um allt land
og þar sé hálendið ekki undan-
skilið þar sem klósettpappír sé
sagður fjúka um allt. Einnig sé
mikið vandamál með húsbíla-
eigendur sem losi þá á röngum
stöðum.
„Það vantar einhverja sið-
menningu. Þetta er að verða
stórt og alvarlegt vandamál og
ég sé ekki aðra leið en að setja
um þetta lög og reglugerðir,“
segir ráðherra.
Helgi Jón Davíðsson segir sal-
ernismál stærsta einstaka málið
sem leiðsögumenn þurfi að svara
fyrir. Honum finnst alltof lítið
hafa gerst í þeim efnum.
„Það eru allar sveitarstjórnir
á landinu alveg steinsofandi yfir
þessu,“ segir leiðsögumaðurinn
og bendir á að ferðamenn skilji
hér eftir mikla fjármuni. „En
þeir eru alls ekki notaðir í upp-
byggingu fyrir greinina. Þetta er
orðin stærsta atvinnugrein þjóð-
arinnar og það er enginn sem
sinnir þessari grunnþörf.“
Sigrún segir að vernda þurfi
betur viðkvæm svæði. Á Þing-
völlum hafi verið sett fé í sal-
erni, göngustíga, fræðslu og
landverði.
„Það vantar eitthvað í fólk-
ið sjálft að geta lagst svo lágt
eins og í þessu dæmi. Þarna er
stutt til beggja handa í salerni,“
segir Sigrún varðandi það að fólk
gangi örna sinna aftan við Þing-
vallabæinn.
Helgi Jón undirstrikar að
ferðamenn sé langflestir vilj-
ugir að borga fyrir að komast á
salerni – þeir vilji bara að þjón-
ustan sé fyrir hendi og skilji ekki
af hverju svo sé ekki „Þeir bara
hrista hausinn.“
gar@frettabladid.is
Skilja ekki bara eftir aur á Íslandi
Umhverfisráðherra segir menn varla hafa undan mikilli fjölgun ferðamanna. Salernismál séu í brennidepli um land allt. Leiðsögumaður
segir sveitarstjórnir steinsofandi í þessum efnum og að ferðamenn hristi einfaldlega höfuðið yfir ófremdarástandinu sem ríki hérlendis.
Í SKJÓLI Sumir stinga sér inn í þetta rjóður aftan við Þingvallabæinn til að hægja sér. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐ ÞINGVALLAKIRKJU Þessi var að skoða sig um og mynda
á þeim slóðum sem margir nýta til að svara kalli náttúrunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EKKI HUGGULEGT Þetta framlag sem einhver skildi eftir rétt
við þjóðargrafreitinn fer ólíklega á Heimsminjaskrá.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞJÓÐARGRAFREITUR Í lundi handan
við hinsta hvílustað tveggja þjóðskálda
er afvikinn staður sem nýttur er sem
útisalerni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það vantar
eitthvað í fólkið sjálft
að geta lagst svo lágt
eins og í þessu dæmi.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra
og formaður Þingvallanefndar
VEISTU SVARIÐ?
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-8
F
9
C
1
7
5
2
-8
E
6
0
1
7
5
2
-8
D
2
4
1
7
5
2
-8
B
E
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K