Fréttablaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 46
15. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
BESTI BITINN
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ákveðið hefur verið að hætta notk-
un bekkjabíla á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum þetta árið.
Það er óhætt að segja að þessi
ákvörðun hryggi marga aðdáend-
ur hátíðarinnar enda telja flestir
bekkjabílana hafa verið mikilvæg-
an part af upplifuninni sem fylgir
Þjóðhátíð.
Hildur Jóhannsdóttir Eyjameyja
ákvað að taka málin í sínar hend-
ur og byrjaði með undirskriftalista
þar sem brotthvarfi bekkjabílanna
er mótmælt.
„Við fáum ekki leyfi frá lögreglu-
stjóranum fyrir að hafa bílana
hérna þar sem þetta eru vöruflutn-
ingabílar sem eru ekki ætlaðir fyrir
fólksflutning. Málið er að það eru
ekki til nein lög um bekkjabílana og
það er enginn vilji fyrir því að keyra
neitt í gegn sem gæti veitt okkur
undanþágu fyrir að starfrækja þá
þessa einu helgi á ári. Það hafa nú
þegar verið settar hraðatakmark-
anir og fjöldatakmarkanir á bílana
til þess að gæta að öryggi farþega.
Þetta er mikið óréttlæti fyrir okkur
sem höldum upp á Þjóðhátíð en við
höfum heyrt að það verði bekkja-
bílar á Akureyri um verslunar-
mannahelgina og svo eru hjólabílar
í Reykjavík,“ segir Hildur en hún
starfar sem sjálfboðaliði á Þjóðhá-
tíð ár hvert.
Páley Borgþórsdóttir, lögreglu-
stjóri í Vestmannaeyjum, segir lítið
við þessu að gera en að það hafi
legið fyrir í mörg ár að bekkjabíl-
ar yrðu ekki notaðir til fólksflutn-
inga til frambúðar. Aðspurð hvort
hægt sé að breyta þessu með lögum
eða reglugerðum segir Páley að það
þurfi löggjafann til þess að breyta
lögum og ráðherra til að breyta
reglugerð. „Það gilda lög um fólks-
flutninga sem eru frá 2001 og reglu-
gerð frá 2002. Samkvæmt þeim þarf
að sækja um rekstrarleyfi hjá Sam-
göngustofu til þess að mega aka far-
þegum en mér vitanlega hefur það
ekki verið gert. Þessi farartæki eru
ekki ætluð til fólksflutninga og þess
vegna teljum við að strætisvagn sé
talsvert öruggari kostur. Mér skilst
að slíkur vagn taki 90 manns en
bekkjabíll 35 manns. Fyrirhugað er
að vera með fjóra strætisvagna en í
fyrra voru aðeins þrír bekkjabílar
sem önnuðu engan veginn flutnings-
þörfinni. Það eru líka fleiri kostir
við strætisvagnana, þeir eru lægri
svo aðgengi fyrir fatlaða er betra
og það sama má segja um fólk með
barnavagna og aðra farþega. Þessi
breyting verður vonandi til þess að
auka þjónustu við gesti hátíðarinnar
með öryggið í fyrirrúmi. Það er auð-
vitað einhver eftirsjá í rómantíkinni
við bekkjabílana en við erum aðeins
að framfylgja lögum.“
Þjóðhátíðarnefnd harmar að það
sé komið að endalokum bekkjabíls-
ins og segir að viðbrögðin við und-
irskriftasöfnuninni hafi ekki komið
á óvart.
„Vestmannaeyingum er annt um
bekkjabílana og þá hefð sem er í
kringum þá. Þeir hafa þó verið full-
reyndir og staðreyndin er sú að
bekkjabílarnir anna alls ekki eftir-
spurninni og þess vegna er ljóst að
það þarf að leita á ný mið. Annars
er vert að taka fram að við komum
ekki nálægt þessari ákvörðun en
hún fellur undir embætti lögreglu-
stjórans,“ segir Hörður Orri Grett-
isson sem situr í þjóðhátíðarnefnd.
gunnhildur@frettabladid.is
Berjast fyrir bekkja-
bílunum á Þjóðhátíð
Margir eru sárir yfi r því að þessi gamla hefð, sem má rekja aft ur til ársins 1930,
sé að leggjast af. Settur hefur verið í gang undirskrift alisti þar sem þessari
ákvörðun er mótmælt og á aðeins einum degi höfðu 1.300 skrifað undir.
Það verða fjórir strætisvagnar en
bekkjabílarnir í fyrra voru aðeins tveir og
það annaði engan veginn eftirspurn.
Strætis vagnarnir eru líka lægri svo að það
er aðgengi fyrir fatlaða og barnavagna.
Páley Borgþórsdóttir,
lögreglustjóri í Vestmannaeyjum
SKIPT ÚT FYRIR STRÆTÓ Bekkjabílarnir eru ómissandi partur af hátíðinni og mikil óánægja vegna þessa. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
NÝTT
TWIST
ÓTRÚLEGA
ÞÆGILEGUR
TWIST
hægindastóll
Tilboð: 59.990
Fullt verð: 69.990
TWIST skemill
Tilboð: 24.990
Fullt verð: 29.990
ASTRO hægindastóll, Dökkgrár, kakí,
appelsínugulur og dökkrauður.
Verð: 59.990. Tilboðsverð: 49.990.
ASTRO
NÝTT
Í HÖLLINNI
Farið er fögrum orðum um tónlist-
arhátíðina Secret Solstice í banda-
ríska miðlinum The Huffington
Post. Blaðamaðurinn Shawn Forno,
sem skrifar greinina, spyr sig að
því hvort hátíðin sé mögulega næsta
stóra tónlistarhátíðin í Evrópu. Þrátt
fyrir flugþreytu, svefnleysi og dýra
pitsu bauð hátíðin nánast upp á allt
það sem Forno leitaði eftir.
Tveimur íslenskum flytjendum
er sérstaklega hrósað, GusGus og
Mána Orrasyni. Þá var dönsku söng-
konunni MØ hrósað, ásamt hinum
bandarísku Charles Bradley söngv-
ara og gítarleikaranum Ledfoot.
Hins vegar fá þungavigtarlistamenn
á borð við Busta Rhymes og Kelis
ekki góða dóma hjá honum.
Forno segir þessa þriggja daga
hátíð í miðnætursólinni, hina
íslensku dulúð og sviðsnöfnin sem
koma úr íslenskri sögu gera hátíð-
ina ólíka öðrum hátíðum. Ekki spilli
fyrir hve auðvelt sé að ferðast til
landsins frá Bandaríkjunum, tvö
íslensk flugfélög með áætlunarflug
vestur um haf.
Það helsta sem angraði banda-
ríska blaðamanninn var af tónlist-
arlegum toga. Sviðin voru of nálægt
hvort öðru sem varð til þess að tón-
list af öðru sviðinu gat truflað tón-
listina á hinu. Þar tekur hann dæmi
um að gítarleikarinn Ledfoot þurfti
að keppa við teknótakta af næsta
sviði og að dagskráin að degi til
mætti vera betri.
Forno tekur fram að tónlistin
hafi þó verið góð en að hátíðin geti
stækkað til muna, sérstaklega ef
aðstandendur hennar yrðu frjórri
í að velja tónlistarmenn, bæði fjöl-
breyttari innlenda listamenn og
erlenda. - glp
Telur Secret Solstice geta orðið risastóra
Hátíðin fær góða umfj öllun í The Huffi ngton Post. GusGus og Mána Orrasyni er sérstaklega hrósað.
LOFAR GÓÐU Tónlistarhátíðin Secret
Solstice gæti stækkað mikið að mati The
Huffington Post. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
„Gló. Eða er það ekki skyndibitastað-
ur? Hollt og gott. Pestóið sem þau
bera stundum fram með réttunum
hjá sér er fáránlega gott.“
Anna Hafþórsdóttir, aðalleikkona Webcam
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-A
2
9
C
1
7
5
1
-A
1
6
0
1
7
5
1
-A
0
2
4
1
7
5
1
-9
E
E
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K