Fréttablaðið - 15.07.2015, Blaðsíða 22
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Jordi fluttist með alla fjölskylduna til Íslands. Jordi líkar vistin vel en ann-að veifið saknar hann þó Barcelona.
Hann gefur hér tuttugu góð ráð til þeirra
sem heimsækja borgina.
BORGIN
1. Eitt af því sem ég sakna mest er að
rölta um gamla bæinn. Þar má finna
bestu alþjóðlegu verslanirnar en einnig
litlar og þjóðlegar.
Bestu hverfin til að dveljast í, heim-
sækja og ganga um eru: Garcia (milli
Fontana og Diagonal), Barceloneta (þar
má finna veitingastaðinn Torre de Alta
Mar), Barrio Gótico (frá Plaza Catalunya
til Pza. Real), Born (heitasta hverfið) og
el Raval (frá Plaza Catalunya til C/Car-
men). Nokkuð er um vasaþjófa í Gótico
og Raval og því óráðlegt að vera einn á
ferð í þröngum strætum.
Yndislegt er að ganga eftir hinni
glæsilegu Rambla Cataluña og Paseo de
Gracia. Enric Granados er einnig mjög
áhugaverð gata, sérstaklega vegna veit-
ingahúsanna. Farið niður að sjó eftir
Römblunni, en gerið það, ekki kaupa
Mexíkóhatt. Munið eftir því að fara upp
Christopher Columbus-turninn.
2. Ómissandi viðkomustaðir eru Sagr-
ada Familia og Parc Güell eftir Antoni
Gaudi (best er að panta á netinu til að
forðast langar biðraðir). Einnig Picasso-
safnið, Palau Nacional og Museo Naci-
onal de Cultura de Catalunya,
MATARMENNING
3. Smakkaðu spænsku skinkuna, sú
besta er „ibérico de bellota“ sem best
er að skera með hníf og borða með „pan
con tomate“ (brauði og tómötum).
4. Farið varlega þegar þið fáið ykkur
paellu. Forðist veitingastaði sem birta
áberandi myndir af réttinum. Prófið týp-
una „arroz caldoso con bogavante“.
Ég mæli með „Monchos Marina“ veit-
ingastaðnum í turni Port Olympic. Það
eru einnig flottir staðir í Barceloneta.
Fullkominn drykkur með paella er hvít-
vín. „Verdejo“ eða „Penedés“ passa vel.
Ekki ofgera ykkur með sangríu til að forð-
ast timburmenn. Ef þið eruð ánægð með
þjónustuna er við hæfi að gefa 5% í þjórfé.
5. Tapas. Í dag virðist hvað sem er vera
kallað tapas sem er leitt. Ég mæli með
veitingastöðunum Ciudad Condal, la
Cervecería Catalana eða Pacomeralgo.
6. Til að slaka á; pantið kaffi og ljúffengt
„ensaimadas“ í Forn Mistral nærri Pza.
Universidad.
7. Pantið borð á netinu til að fá góðan
afslátt til dæmis á vefsíðunni thefork.
com.
Hér eru nokkrir af uppáhaldsveit-
ingastöðum mínum; Boca Grande, El
Japonés del Tragaluz, Ikibana Paral.lel
og El Nacional. Önnur vefsíða segir frá
börum og klúbbum, youbarcelona.com.
Ég mæli með kokteil á 26. hæð Hótel W
(Eclipse).
8. Ef þið eruð hrifin af sjávarréttum þá
eru ostrur og ferskar rækjur frá Vil-
anova og Palamós bestar.
9. Besta nautasteikin er „Solomillo de
ternera o buey“ (sirloin-steik).
DRYKKIR
10. Fáið ykkur cava (freyðivín) í staðinn
fyrir kampavín. Bestu gæði miðað við
verð. Veljið þó alltaf brut eða brut nat-
ure, aldrei semi eða sweet.
11. Matargúrúar á Spáni velja rauðvínin
frá Ribera del Duero.
12. Ef þið eruð hrifin af konjaki er gott
að prófa Cardenal Mendoza eða Duque
de Alba.
VERSLANIR
13. Besta verslunarmiðstöðin að
mínu mati er L´Illa Diagonal. Ég mæli
með veitingastöðunum Sakura Ya og
L´Andreu (biðjið um „pan de coca
con tomate y jamón ibérico“). Eina
verslunarmiðstöðin sem er opin á
sunnudögum og öðrum helgidögum er
Maremagnum.
SAMGÖNGUR
14. Passið veskin og farangurinn um
borð í strætó eða neðanjarðarlestum.
Ekki hlusta á ókunnuga sem reyna að
segja ykkur brandara eða fáránlegar
sögur.
15. Takið leigubíl, þeir eru ekki eins
dýrir og á Íslandi. Semjið um verð fyrir-
fram þegar fara á lengri leiðir eins og á
flugvöllinn.
ÖNNUR RÁÐ
16. Ekki gleyma reiðufé. Sumar búðir
taka ekki við kreditkortum og iðulega
þarf að sýna skilríki eða vegabréf
þegar kortin eru notuð.
17. Takið með ykkur góðan jakka í
desember, janúar og febrúar. Bókið
herbergi með loftkælingu ef þið eruð á
ferðinni yfir sumartímann.
18. Ekki kaupa hluti sem seldir eru á
götunni, þeir eru falsaðir og þið getið
fengið sekt frá lögreglunni.
19. Þegar fara á út fyrir borgina er
gott að leigja bíl og fara á Castell-
defels-ströndina í 18 km fjarlægð frá
borginni, eða til Sitges sem er í 40 km
fjarlægð.
BÖRN
20. Með börnum er gott að fara í
garðinn Parque de Atracciones de el
Tibidabo. Einnig er gaman að heimsækja
kirkjuna þar.
GÓÐ RÁÐ FYRIR
BARCELONAFARA
BARCELONA Jordi Pujolà er katalónskur rithöfundur sem hefur búið á Íslandi
frá sumrinu 2013. Hann starfaði sem fasteignasali í Barcelona þegar hann
ákvað að láta drauminn rætast um að gerast rithöfundur.
Parc Güell eftir Antoni
Gaudi er skemmtilegur
garður. NORDICPHOTOS/GETTY
Sagrada Familia er til-
komumikil bygging.
NORDICPHOTOS/GETTY
Jordi hefur ekkert út á
íslenska veðrið að setja
og fer allra sinna ferða
á hjóli jafnt sumar sem
vetur. MYND/GVA
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Skipholti 29b • S. 551 0770
Ný sending af
haustvörum frá
ALLAR YFIRHAFNIR
OG VESTI Á ÚTSÖLUNNI
KOMNAR Á 50% AFSLÁTT
Vertu velkomin.
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
Allar
yfirha
fnir
afslát
tur 50%
ÚTSALA
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-0
5
5
C
1
7
5
2
-0
4
2
0
1
7
5
2
-0
2
E
4
1
7
5
2
-0
1
A
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K