Fréttablaðið - 15.07.2015, Side 22

Fréttablaðið - 15.07.2015, Side 22
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Jordi fluttist með alla fjölskylduna til Íslands. Jordi líkar vistin vel en ann-að veifið saknar hann þó Barcelona. Hann gefur hér tuttugu góð ráð til þeirra sem heimsækja borgina. BORGIN 1. Eitt af því sem ég sakna mest er að rölta um gamla bæinn. Þar má finna bestu alþjóðlegu verslanirnar en einnig litlar og þjóðlegar. Bestu hverfin til að dveljast í, heim- sækja og ganga um eru: Garcia (milli Fontana og Diagonal), Barceloneta (þar má finna veitingastaðinn Torre de Alta Mar), Barrio Gótico (frá Plaza Catalunya til Pza. Real), Born (heitasta hverfið) og el Raval (frá Plaza Catalunya til C/Car- men). Nokkuð er um vasaþjófa í Gótico og Raval og því óráðlegt að vera einn á ferð í þröngum strætum. Yndislegt er að ganga eftir hinni glæsilegu Rambla Cataluña og Paseo de Gracia. Enric Granados er einnig mjög áhugaverð gata, sérstaklega vegna veit- ingahúsanna. Farið niður að sjó eftir Römblunni, en gerið það, ekki kaupa Mexíkóhatt. Munið eftir því að fara upp Christopher Columbus-turninn. 2. Ómissandi viðkomustaðir eru Sagr- ada Familia og Parc Güell eftir Antoni Gaudi (best er að panta á netinu til að forðast langar biðraðir). Einnig Picasso- safnið, Palau Nacional og Museo Naci- onal de Cultura de Catalunya, MATARMENNING 3. Smakkaðu spænsku skinkuna, sú besta er „ibérico de bellota“ sem best er að skera með hníf og borða með „pan con tomate“ (brauði og tómötum). 4. Farið varlega þegar þið fáið ykkur paellu. Forðist veitingastaði sem birta áberandi myndir af réttinum. Prófið týp- una „arroz caldoso con bogavante“. Ég mæli með „Monchos Marina“ veit- ingastaðnum í turni Port Olympic. Það eru einnig flottir staðir í Barceloneta. Fullkominn drykkur með paella er hvít- vín. „Verdejo“ eða „Penedés“ passa vel. Ekki ofgera ykkur með sangríu til að forð- ast timburmenn. Ef þið eruð ánægð með þjónustuna er við hæfi að gefa 5% í þjórfé. 5. Tapas. Í dag virðist hvað sem er vera kallað tapas sem er leitt. Ég mæli með veitingastöðunum Ciudad Condal, la Cervecería Catalana eða Pacomeralgo. 6. Til að slaka á; pantið kaffi og ljúffengt „ensaimadas“ í Forn Mistral nærri Pza. Universidad. 7. Pantið borð á netinu til að fá góðan afslátt til dæmis á vefsíðunni thefork. com. Hér eru nokkrir af uppáhaldsveit- ingastöðum mínum; Boca Grande, El Japonés del Tragaluz, Ikibana Paral.lel og El Nacional. Önnur vefsíða segir frá börum og klúbbum, youbarcelona.com. Ég mæli með kokteil á 26. hæð Hótel W (Eclipse). 8. Ef þið eruð hrifin af sjávarréttum þá eru ostrur og ferskar rækjur frá Vil- anova og Palamós bestar. 9. Besta nautasteikin er „Solomillo de ternera o buey“ (sirloin-steik). DRYKKIR 10. Fáið ykkur cava (freyðivín) í staðinn fyrir kampavín. Bestu gæði miðað við verð. Veljið þó alltaf brut eða brut nat- ure, aldrei semi eða sweet. 11. Matargúrúar á Spáni velja rauðvínin frá Ribera del Duero. 12. Ef þið eruð hrifin af konjaki er gott að prófa Cardenal Mendoza eða Duque de Alba. VERSLANIR 13. Besta verslunarmiðstöðin að mínu mati er L´Illa Diagonal. Ég mæli með veitingastöðunum Sakura Ya og L´Andreu (biðjið um „pan de coca con tomate y jamón ibérico“). Eina verslunarmiðstöðin sem er opin á sunnudögum og öðrum helgidögum er Maremagnum. SAMGÖNGUR 14. Passið veskin og farangurinn um borð í strætó eða neðanjarðarlestum. Ekki hlusta á ókunnuga sem reyna að segja ykkur brandara eða fáránlegar sögur. 15. Takið leigubíl, þeir eru ekki eins dýrir og á Íslandi. Semjið um verð fyrir- fram þegar fara á lengri leiðir eins og á flugvöllinn. ÖNNUR RÁÐ 16. Ekki gleyma reiðufé. Sumar búðir taka ekki við kreditkortum og iðulega þarf að sýna skilríki eða vegabréf þegar kortin eru notuð. 17. Takið með ykkur góðan jakka í desember, janúar og febrúar. Bókið herbergi með loftkælingu ef þið eruð á ferðinni yfir sumartímann. 18. Ekki kaupa hluti sem seldir eru á götunni, þeir eru falsaðir og þið getið fengið sekt frá lögreglunni. 19. Þegar fara á út fyrir borgina er gott að leigja bíl og fara á Castell- defels-ströndina í 18 km fjarlægð frá borginni, eða til Sitges sem er í 40 km fjarlægð. BÖRN 20. Með börnum er gott að fara í garðinn Parque de Atracciones de el Tibidabo. Einnig er gaman að heimsækja kirkjuna þar. GÓÐ RÁÐ FYRIR BARCELONAFARA BARCELONA Jordi Pujolà er katalónskur rithöfundur sem hefur búið á Íslandi frá sumrinu 2013. Hann starfaði sem fasteignasali í Barcelona þegar hann ákvað að láta drauminn rætast um að gerast rithöfundur. Parc Güell eftir Antoni Gaudi er skemmtilegur garður. NORDICPHOTOS/GETTY Sagrada Familia er til- komumikil bygging. NORDICPHOTOS/GETTY Jordi hefur ekkert út á íslenska veðrið að setja og fer allra sinna ferða á hjóli jafnt sumar sem vetur. MYND/GVA Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Skipholti 29b • S. 551 0770 Ný sending af haustvörum frá ALLAR YFIRHAFNIR OG VESTI Á ÚTSÖLUNNI KOMNAR Á 50% AFSLÁTT Vertu velkomin. Smáralind facebook.com/CommaIceland Allar yfirha fnir afslát tur 50% ÚTSALA 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 2 -0 5 5 C 1 7 5 2 -0 4 2 0 1 7 5 2 -0 2 E 4 1 7 5 2 -0 1 A 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.