Fréttablaðið - 15.07.2015, Page 26
KYNNING − AUGLÝSING MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 20154
Þegar gönguskór eru valdir er ekki verið
að velja puntskó til að rölta í frá bílastæðinu
og inn í hús og upp í lyftu. Vandaðu
valið því gönguskór geta bæði
verið bestu vinir þínir og
verstu óvinir.
Keyptu skó á kvöldin:
fæturnir bólgna yfir daginn,
svo að það getur munað einu
númeri.
Gerðu ráð fyrir sokkum:
sumum hentar að ganga í
ullarsokkum en aðrir nota
sérstaka göngusokka.
Ef þú notar innlegg: taktu það með í skó-
búðina. Það er lykilatriði að prófa hvernig
það passar í skóna því gönguskór eru
öðruvísi í laginu en hefðbundnir.
Taktu þér tíma: Labbaðu gegnum
búðina. Farðu upp og niður stiga.
Finndu smá halla og prófaðu að
þramma upp og niður. Ef þú finnur
eitthvað fyrir skónum á þessu rölti,
einhver saumur sem nuddast
ekki rétt eða aðeins of
þröngt yfir ristina þá
er þetta ekki rétti
skórinn fyrir þig.
HVAÐ SKAL TAKA MEÐ?
Á vefsíðunni safetravel.is er að
finna útbúnaðarlista fyrir mis-
munandi tegundir ferða. Hér er
að finna listann fyrir gönguferðir
að sumri:
Styttri ferðir
Nærfatnaður úr ull eða sambæri-
legu
Miðlag úr flís eða sambærilegu
Vatns- og vindhelt ysta lag
fatnaðar
Gönguskór
Sokkar, 1-2 pör
Vettlingar
Buff og/eða húfa
Legghlífar?
Nesti
Kort, áttaviti og GPS-tæki
Fjarskiptatæki t.d. sími og talstöð
Göngustafir?
Sjúkrabúnaður
Hælsærisplástur
Sólarvörn
Vatns- eða hitabrúsi
Viðbót í lengri ferðir
Tjald
Svefnpoki og dýna
Prímus og eldunaráhöld
Aukanesti
Aukafatnaður
Vaðskór?
Snyrtivörur, smyrsl á viðkvæm
svæði
Lína, 8 mm, 30 metrar
Klósettpappír og skófla til að
grafa
Ljós
BEST AÐ VERA Í LÖGUM
Útivist er að flestra mati endur-
nærandi en það dregur mikið úr
ánægjunni ef kuldinn nær yfir-
höndinni. Góður útivistarfatnaður
gerir gæfumuninn.
Yfirleitt er mælt með því að
klæðast nokkrum lögum. Lögin
fylla upp í loftrýmið sem myndast
á milli líkamans og yfirhafnarinnar
og draga úr líkum á hitatapi. Þá er
auðvelt að klæða af sér hita með
því að fækka lögum.
Dúnyfirhafnir þykja halda
mestum hita og yfirleitt
er mælt með fötum
úr náttúrulegum
efnum frekar en
gerviefnum.
Ullin heldur
til að mynda á
þér hita þó hún
blotni auk þess sem náttúruleg
efni anda betur. Gerviefni hafa það
þó fram yfir mörg náttúruleg efni
að þau skýla vel fyrir vindi.
Eftirfarandi forgangsröðun er
gott að hafa í huga þegar halda
skal á sér hita. Aðalatriði er að
halda búknum heitum, næst er það
höfuðið, svo fæturnir, síðan hálsinn,
hendur og loks fætur.
Gönguskór og útivistarfatnaður
Gát við val á gönguskóm
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-7
1
3
C
1
7
5
1
-7
0
0
0
1
7
5
1
-6
E
C
4
1
7
5
1
-6
D
8
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K