Fréttablaðið - 15.07.2015, Side 42

Fréttablaðið - 15.07.2015, Side 42
15. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26 FH 1. SÆTI Hvað vantar? Ekkert er stutta svarið. FH-ingar eru með besta hópinn og eru að auki búnir að kalla Emil Pálsson til baka frá Fjölni. Hringja kannski í Erlendan markvörð. Róbert Örn Óskars- son vinnur fá stig og hefur aðeins haldið hreinu í tveimur deildarleikjum. ➜ Emil Pálsson (úr láni) VALUR 4. SÆTI Hvað vantar? Ólafur Jóhannesson vill fá þrjá leik- menn í glugganum. Hann er væntan- lega að horfa til hægri bakvarðar, miðjumanns og framherja til vara. Hringja kannski í Niclas Vemmelund, Emil Atlason, Guðjón Pétur Lýðsson, Elfar Árna Aðal- steinsson, Guðmund Atla Steinþórsson. FYLKIR 7. SÆTI Hvað vantar? Hægri bakvörð og miðjumann og jafn- vel markvörð. Það er spurning hvort Ólafur Ingi Skúlason, sem er án félags, snúi aftur í Árbæinn. Hringja kannski í Ólaf Inga Skúlason, Niclas Vemme- lund, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu. VÍKINGUR 10. SÆTI Hvað vantar? Víkingar eru búnir að fá serbneskan framherja en þurfa meira fram á við. Einnig hægri bakvörð og miðjumann. Hringja kannski í Emil Atlason, Niclas Vemmelund, Daða Bergsson, Elfar Árna Aðalsteinsson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha. ➜ Vladimir Tufegdzic Hvað gera liðin í glugganum? Fréttablaðið hefur sett saman þarfagreiningu fyrir liðin tólf í Pepsi- deild karla í fótbolta en félagaskiptaglugginn opnast aft ur í dag. Mörg liðanna, á toppi sem botni, gætu grætt mikið á liðstyrk fyrir lokakafl a mótsins. KR 2. SÆTI Hvað vantar? KR er búið að fá framherja en þarf helst að styrkja bakvarðarstöðurnar með leikmönnum sem eru bakverðir að upplagi. Hringja kannski í Niclas Vemmelund, Guðmund Reyni Gunnarsson. ➜ Hólmbert Aron Friðjónsson FJÖLNIR 5. SÆTI Hvað vantar? Fjölnismenn eru búnir að ná í tvo leik- menn, Neftalí og Chopart, en þurfa enn miðjumann til að fylla skarð Emils Páls. Hringja kannski í Egil Jónsson, Gunnlaug Hlyn Birgisson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Pape Mamadou Faye. ➜ Jonatan Neftalí, Kennie Chopart ÍA 8. SÆTI Hvað vantar? Miðjumann, miðvörð og kantmann. Sóknarleikur ÍA hefur batnað til mikilla muna í síðustu leikjum en Skagamenn geta enn bætt vörnina og miðjuna. Hringja kannski í Gunnlaug Hlyn Birgisson, Aron Heiðdal, Daða Bergsson, Sebastien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu. ÍBV 11. SÆTI Hvað vantar? Gunnar Heiðar Þorvaldsson er snúinn aftur heim og styrkir Eyjaliðið gríðar- lega en það þarf að styrkja miðjuna. Hringja kannski í Egil Jónsson, Aron Heiðdal, Sebast- ien Uchechukwu Ibeagha, Archange Nkumu, Jón Gunnar Eysteinsson. ➜ Gunnar Heiðar, Jose Enrique BREIÐABLIK 3. SÆTI Hvað vantar? Framherja og/eða kantmann. Átján mörk í fyrri umferðinni er ekkert til að skammast sín fyrir en Blikar þurfa meiri slagkraft fram á við ætli þeir sér að berjast um titilinn allt til loka. Hringja kannski í Þorstein Má, Dion Jeremy Acoff, Emil Atlason, Ævar Inga Jóhannesson. STJARNAN 6. SÆTI Hvað vantar? Stjörnumenn hafa aðeins skorað 13 mörk og þurfa meira púður í sóknar- leikinn. Og kannski alvöru gras á völlinn en Stjarnan hefur ekki enn unnið heimaleik í sumar. Hringja kannski í Emil Atlason, Erik Tönne, Elfar Árna Aðalsteinsson. LEIKNIR 9. SÆTI Hvað vantar? Leiknismenn eru komnir í bullandi fallbaráttu og þurfa að styrkja sig. Helst með framherja eða framliggjandi leik- mönnum en liðið hefur aðeins skorað tólf mörk í fyrri umferðinni. Hringja kannski í Gunnlaug Hlyn Birgisson, Daða Bergs- son, Brynjar Jónasson, Pape Mamadou Faye, Brynjar Benediktsson. KEFLAVÍK 12. SÆTI Hvað vantar? Allt. Keflavík er í afar vondri stöðu og stefnir hraðbyri niður í 1. deild. Það þarf nánast leikmenn í allar stöður. Hringja kannski í Aron Heiðdal, Pape Mamadou Faye, Daða Bergsson, Farid Zato, Jón Gunnar Eysteinsson, Gunnlaug Hlyn Birgisson. ➜ Chuck Chijindu PEPSI DEILD KVENNA AFTURELDING - VALUR 1-5 0-1 Elín Metta Jensen (12.), 0-2 Katia Maanane (16.), 0-3 Vesna Elísa Smiljkovic (32.), 0-4 Hildur Antonsdóttir (42.), 1-4 Gunnhildur Ómarsdóttir (69.), 1-5 Katia Maanane (75.) . KR - STJARNAN 0-1 0-1 Ana Victoria Cate (37.). ÞRÓTTUR R. - BREIÐABLIK 0-2 0-1 Fanndís Friðriksdóttir (19.), 0-2 Fanndís (81.) Fanndís er komin með fjórtán mörk í deildinni. SELFOSS - FYLKIR 0-1 0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (52.). STAÐA EFSTU LIÐA Breiðablik 10 9 1 0 31- 2 28 Stjarnan 10 8 0 2 25-6 24 Selfoss 10 5 2 3 17- 10 17 Valur 9 6 0 3 22-17 18 ÍBV 10 5 1 4 22-14 16 Fylkir 10 5 1 4 17-17 16 Þór/KA 9 3 3 3 17-17 12 Stig hinna: KR 6, Þróttur R. 2, Afturelding 1 HETJAN Í GÆR Ana Victoria Cate fagnar sigurmarki sínu með liðsfélögum sínum í Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HVER FÆR ÞORSTEIN? Þorsteinn Már Ragnarsson hefur minnt á sig í síðustu leikjum KR. FÓTBOLTI Stjörnumenn eru hvergi bangnir fyrir fyrsta Meistara- deildarleikinn í sögu félagsins þrátt fyrir slakt gengi hér heima. „Þetta er frábær tímapunkt- ur fyrir okkur að fá þennan leik núna. Okkur hefur ekki gengið sem skyldi í deildinni og það er fínt að þjappa okkur saman og það er mjög gott fyrir mig að hafa alla leikmennina hjá mér í nokkra daga,“ segir Rúnar Páll Sigmunds- son, þjálfari Stjörnunnar, sem var að klára æfingu á Celtic Park þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær. „Ég stend núna úti á miðjum velli og það eru truflaðar aðstæður hérna. Það er draumur að spila við svona aðstæður,“ sagði Rúnar. Celtic sló KR út úr forkeppni Meistaradeildarinnar í fyrra. „Við þurfum að spila gríðarlega öfluga vörn og reyna að halda markinu hreinu. Við vitum að það verður erfitt en við ætlum að leggja líf og sál í það. Við höfum bullandi trú á því að við getum strítt þeim hérna þrátt fyrir að það hafi ekki gengið vel hjá okkur í deildinni. Þetta er önnur keppni og menn eiga að geta farið á næsta „level“ eins og við gerð- um í Evrópukeppninni í fyrra. Það gefur hverjum einasta leik- manni svo mikinn neista að spila í svona móti og vonandi náum við góðum leik. Það þurfa allir að eiga sinn besta leik ef við ætlum að ná góðum úrslitum,“ sagði Rúnar sem hlakkaði mikið til leiksins. „Þetta er skemmtilegt móment og það að fá að spila á móti svona frægu liði eins og Celtic er ekkert verra,“ sagði Rúnar Páll að lokum. - óój Frábær tímapunktur Stjörnumenn mæta Celtic í Meistaradeildinni í kvöld. FIMM MÖRK Ólafur Karl Finsen var öflugur í Evrópuævintýrinu í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SPORT 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 2 -8 F 9 C 1 7 5 2 -8 E 6 0 1 7 5 2 -8 D 2 4 1 7 5 2 -8 B E 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.