Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Blaðsíða 17
veru. Það þing sem núna situr ber
þá ábyrgð að koma fram með þá ein-
földu stjórnarskrárbreytingu sem
heimilar þá einföldu breytingu sem
heimilar ríkinu að ganga til samninga
við fjölþjóðlegar stofnanir um lausn
okkar mála. Textinn að þeirri breyt-
ingu er tilbúinn. Enginn hefur orð-
að það betur en Magnús Thoroddsen
lögmaður. Önnur breytingin felur í
sér heimild til að ganga til samninga
um að deila megi fullveldinu með
öðrum þjóðum. Hin breytingin á að
kveða upp úr um að auðlindir þjóð-
arinnar séu ævarandi sameign þjóð-
arinnar. Síðan göngum við til kosn-
inga. Helsta kosningamálið verður
ESB-málið. Þjóðin lýsir vilja sínum
um það hvort hún vilji hefja aðildar-
ferlið. Verði það svo mynda þeir rík-
isstjórn sem að því vilja standa. Síð-
an þarf að gera samningana og leggja
þá fyrir þjóðina. Þetta er málið í hnot-
skurn.“
Ertu gallhart þeirrar skoðunar að
þetta geti verið lausn á bráðavanda
þjóðarinnar, til dæmis varðandi
skelfilegan gjaldeyrisvanda?
„Já, það er rétt. Menn geta reynt
að finna sér undankomuleiðir; tuðað
eitthvað um norsku krónuna eða um
dollar. Hvorugt stenst skoðun og er
ekki framtíðarlausn. Þetta er aðferð
til að víkja sér undan því að horfast í
augu við staðreyndirnar. Ég minni á
það sem Göran Persson, fyrrverandi
forsætisráðherra Svía, sagði: Hætt-
ið þessum veruleikaflótta. Hættið að
fela og fegra ástandið. Það kemur allt
í bakið á ykkur.“
Sjálfstæðisflokkurinn
ekki stjórntækur
Þú gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn hart
og telur hann ekki lengur stjórntækan
vegna ákvarðanatökufælni sem að
sínu leyti stafi af innanflokksátökum.
Ertu þar með að segja að Sjálfstæð-
isflokkurinn eigi ekki erindi lengur í
ríkisstjórn? Ertu að mæla með rauð-
grænu bandalagi?
„Ég lít svo á að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé óstjórnhæfur og ekki stjórn-
tækur. Ég hef enga trú á að hann leysi
sín mál á landsfundinum í lok mán-
aðarins. Það er í samræmi við gerð
flokksins og núverandi klíkumynd-
un að um það getur ekki orðið nein
sátt. Yfir þetta reyna menn að breiða.
Ný tilraun til flótta frá veruleikan-
um með hugmyndum um tvenn-
ar kosningar eða eitthvað í þá veru.
Kjósa um að kjósa um að kjósa eða
eitthvað svoleiðis. Frestun. Það þýð-
ir að það verður að spyrja hvaða aðr-
ir stjórnarmyndunarmöguleikar séu
fyrir hendi. Þjóðin sýnir nú í örvænt-
ingu sinni verulegt fylgi við vinstri-
græna. Og menn segja sín í millum
að VG sé á móti öllu. Ég vona að VG
sé ekki á móti þjóðinni. Ef þjóðin
segir það í kosningum að hún vilji þá
frambúðarlausn sem felst í samning-
um við Evrópusambandið má spyrja
hvort VG ætli að standa gegn því. Eru
þau tilbúin að sýna þann þegnskap
að handjárna ekki sína stuðnings-
menn sem margir eru fylgjandi aðild
að ESB? Græna pólitík er til dæmis
hvergi rökréttara eða betra að reka en
í alþjóðlegri samvinnu. Græn pólitík
er alþjóðapólitík. Ef þau sýna þann
þegnskap að handjárna ekki sitt fólk
og lýsa því yfir að þau muni beygja
sig fyrir þjóðarvilja, því skyldi þá
Samfylkingin ekki getað unnið með
VG? Ekki er Bandaríkjaher lengur að
þvælast fyrir slíku samstarfi.“
Norðurlöndin í
samvinnu innan ESB
Er þá fallin kenningin um að ekki
verði unnt að snúa sér að ESB nema
með þátttöku Sjálfstæðisflokksins?
„Það var aldrei neitt nema kenn-
ing. Og vel að merkja var það Alþýðu-
flokkurinn sem hafði forystu um
EFTA-aðildina og síðar EES-samn-
inginn. Sjálfstæðisflokkurinn var á
móti EES-samningnum en sættist á
stuðning gegn því verði að komast
í ríkisstjórn þegar samstarfsmenn
mínir fyrrverandi, Alþýðubandalag
og Framsóknarflokkur, frömdu þau
heimskupör að hlaupast frá EES-
samningsgerðinni fyrir kosningarnar
1991. Síðan hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn linnulaust staðið í vegi fyrir því að
það gæti vakist alvarleg og málefnaleg
umræða um framtíðarstöðu í samfé-
lagi okkar við aðrar þjóðir. Samstarf-
ið við Bandaríkjamenn um varnirn-
ar er enn eitt dæmið um getuleysi
flokksins til þess að halda á stórum
málum. Við þurfum ekkert að eyða
frekari orðum um Sjálfstæðisflokk-
inn. Hann er forystulaus. Hann er
klofinn. Menn gantast með orð eins
og heimastjórnarflokkur. Það eru vit-
anlega þjóðernissinnar innan Sjálf-
stæðisflokksins, það kom vel fram í
samningunum um EES. Það var með
naumindum að unnt var að fá hann
samþykktan. Þetta var tómt basl og
flokkurinn skildi aldrei um hvað mál-
ið snerist.
Nú er heimsmyndin gerbreytt.
VG á rætur í sósíalíska vinstrinu á
árum áður. Þar var varnarbandalagið
við Bandaríkjamenn Þrándur í Götu
samstarfs jafnaðarmanna og þeirra.
Það er fyrir bí. Af hverju ætti okkur,
sem viljum verja norræna velferðar-
kerfið, að vera svona mikið í nöp við
Evrópusambandið? Hvers konar fjar-
stæða er það að telja að ESB sé eitt-
hvert frjálshyggjusamsæri? Þetta er
fjarstæða. VG ætti að spyrja Banda-
ríkjamenn, ekki síst hægrisinnaða
þar í landi, hvaða álit þeir hafi á ESB.
Þeir telja að ESB sé sósíalískt sam-
særi. Þeir nota hugtakið „The Eur-
opean Social Model“ og fara um það
hinum hörðustu orðum. Ef skoðaðir
eru innviðir ríkjanna innan ESB eru
þeir miklu líkari norræna módelinu
en hinum villta kapítalisma í Banda-
ríkjunum. Hvers vegna í ósköpunum
ættu þeir sem aðhyllast sjónarmið
vinstri-grænna ekki að skilja þetta?“
Menn tala um þörfina á uppstokk-
un íslenska þjóðfélagsins í kjölfar
bankahrunsins. Hvernig sérð þú fyr-
ir þér flokkakerfið íslenska eftir slíka
uppstokkun?
„Ég segi bara eitt. Ef forystumenn
Samfylkingarinnar og VG hafa ein-
hverja framtíðarsýn og skynja kall
tímans hljóta þeir að tryggja það á
þessum tímamótum að forystuhlut-
verki Sjálfstæðisflokksins sé lokið.
Því er lokið. Hann er dæmdur úr leik.
Ætla VG og Samfylkingin að fara að
rífast innbyrðis eða ætla þessir flokk-
ar að fylla tómarúmið og standa und-
ir væntingum fólks? Sem eru þær að á
rústum þessa skrípakapítalisma, sem
hér þreifst, verði endurreist norrænt
velferðarríki í svæðisbundnu sam-
starfi Norðurlanda innan Evrópu-
sambandsins. Það er leiðin,“ segir Jón
Baldvin ákveðið að endingu.
johannh@dv.is
föstudagur 9. janúar 2009 17Helgarblað
SjálfStæðiSflokkurinn
dæmdur úr leik
Flokkakerfi framtíðarinnar
„Ætla Vg og samfylkingin að fara
að rífast innbyrðis eða ætla þessir
flokkar að fylla tómarúmið og
standa undir væntingum fólks?“
MYND GuNNar GuNNarSSoN
„ef foryStumenn
Samfylkingarinnar
og Vg hafa einhVerja
framtíðarSýn og
Skynja kall tímanS
hljóta þeir að tryggja
það á þeSSum tíma-
mótum að foryStu-
hlutVerki SjálfStæðiS-
flokkSinS Sé lokið.
þVí er lokið. hann er
dæmdur úr leik.“