Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2009, Blaðsíða 15
mánudagur 19. janúar 2009 15Ættfræði
85 ára í dag
30 ára
n Jitka Hamrová Heiðarvegi 12b, Reyðarfjörður
n Tomasz Wojcinski Skipagötu 1, Akureyri
n Gunnar Friðriksson Sólbraut 18, Seltjarnarnes
n Ingveldur Oddný Jónsdóttir Álfkonuhvarfi 45,
Kópavogur
n Jenný Magnúsdóttir Sólvöllum 1, Selfoss
n Íris Pétursdóttir Miðdal 12, Vogar
n Guðni Kristinn Björgvinsson Nónvörðu 5,
Reykjanesbær
n Anna Kristjánsdóttir Hafnarstræti 16, Akureyri
n Ásthildur J L Kolbeins Vitastíg 12, Reykjavík
n Ágústa Kolbrún Jónsdóttir Rauðavaði 3,
Reykjavík
n Guðleif Ágústa Nóadóttir Lindasmára 13,
Kópavogur
n Stefanía Sigurðardóttir Hagaflöt 11, Akranes
40 ára
n Mohamed Nadhir Njálsgötu 55, Reykjavík
n Raymond Normann Larssen Smárarima 72,
Reykjavík
n Eiríkur Guðmundsson Hamravík 20, Reykjavík
n Hilmar E Sveinbjörnsson Hofgerði 7b, Vogar
n Tryggvi Sigurður Bjarnason Túngötu 1,
Hvolsvöllur
n Hartmann Páll Halldórsson Sæbólsbraut 28,
Kópavogur
n Guðmundur P Haraldsson Jónsgeisla 21,
Reykjavík
n Auður Elva Jónsdóttir Skessugili 19, Akureyri
n Ægir Emilsson Faxabraut 47, Reykjanesbær
n Óskar Jónsson Núpabakka 9, Reykjavík
n Óðinn Vignir Jónasson Bræðratungu 10,
Kópavogur
50 ára
n Barbara Duerr Bólstaðarhlíð 62, Reykjavík
n Andrzej Eljaszuk Akurhvarfi 1, Kópavogur
n Laimdota Heringa Þverbrekku 4, Kópavogur
n Úlfar Hróarsson Álfaskeiði 101, Hafnarfjörður
n Már Jónsson Hringbraut 98, Reykjavík
n Vignir Þorláksson Svalbarði 5, Hafnarfjörður
n Jóhann Kristinn Marelsson Ljónastíg 4, Flúðir
n María Brink Heiðmörk 16, Hveragerði
n Heimir Bragason Skessugili 12, Akureyri
n Ingi Rúnar Sigurðsson Heiðarbraut 4, Sandgerði
n Guðmundur Jens Jóhannsson Góuholti 2,
Ísafjörður
n Árni Björnsson Bjarkarbraut 17, Dalvík
n Adolf Hjörvar Berndsen Höfða, Skagaströnd
60 ára
n Friðborg Gísladóttir Grænlandsleið 38, Reykjavík
n Róbert G Geirsson Furugrund 79, Kópavogur
n Kolbrún Antonsdóttir Frostafold 111, Reykjavík
n Steinþór Einarsson Njarðargrund 3, Garðabær
n Hrafnhildur Garðarsdóttir Hlíðarbyggð 24,
Garðabær
n Jón Eiríksson Birkibergi 6, Hafnarfjörður
70 ára
n Stefán Hermannsson Gránufélagsgötu 19,
Akureyri
n Grétar J Breiðfjörð Álfhólsvegi 109, Kópavogur
n Þórdís Sigurðardóttir Blásölum 24, Kópavogur
n Rut Árnadóttir Skildinganesi 54, Reykjavík
75 ára
n Þórey Sigurðardóttir Holtsgötu 24, Reykjavík
n Baldur Ingvarsson Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík
n Kristín Jónsdóttir Tindaflöt 5, Akranes
n Sigríður Sigurðardóttir Flögu 2, Kirkjubæjarkl.
80 ára
n Eysteinn Sveinbjörnsson Kóngsbakka 3, Reykjavík
n Högni Sigurðsson Helgafelli, Vestmannaeyjar
n Sveinbjörg Elísabet Helgadóttir Safamýri 42,
Reykjavík
n Sesselja Margrét Karlsdóttir Klapparstíg 1,
Reykjavík
n Ragnar Haraldsson Skálagerði 5, Akureyri
n Adelheid Ingibersson Njarðarvöllum 6, Njarðvík
85 ára
n Guðbjörg Flygenring Hringbraut 67, Hafnarfjörður
90 ára
n Þorgeir Jónsson Ljósheimum 12, Reykjavík
Árni Tryggvason
leikari og sjómaður
Árni Baldvin Tryggvason fæddist í
Syðri-Vík í Árskógsstrandarhreppi.
Hann lauk námi frá Alþýðuskólan-
um að Laugum 1943, stundaði nám
við Leiklistarskóla Lárusar Pálsson-
ar og lauk þaðan prófi 1948.
Árni var starfsmaður Kaupfélags
Borgarfjarðar eystri 1943-46, versl-
unarmaður við Kjötbúð Tómasar í
Reykjavík 1946-47, við Bókaversl-
un Ísafoldar 1947-54 og starfaði hjá
Skjalasafni Reykjavíkur 1954-61.
Árni hefur um árabil verið í hópi
fremstu gamanleikara hér á landi.
Hann var fastráðinn leikari hjá LR
1947-61, við Þjóðleikhúsið 1961-
91 og hefur síðan leikið víða, s.s. í
Þjóðleikhúsinu, Loftkastalanum og
Borgarleikhúsinu. Árni er enn starf-
andi sem leikari en hann lék nýver-
ið í Fló á skinni í Borgarleikhúsinu
og leikur þessa dagana í útvarps-
leikriti eftir Hrafnhildi Hagalín.
Meðal þekktustu hlutverka
Árna má nefna Lilla klifurmús í
Dýrunum í Hálsaskógi; Estragon
í Beðið eftir Godot, og Wilhelm
Voight í Höfðuðsmanninum frá
Köpernick.
Þá hefur Árni leikið í fjölda kvik-
mynda og sjónvarpsþátta, s.s. ára-
mótaskaupum 1969, 1974, 1975,
1979, 1983, 1998, 1999, 2006 og 2007.
Þá lék hann m.a. í kvikmyndunum
Húsið 1983; lék organistann í Atóm-
stöðinni, 1984; bóndann í Skýjahöll-
inni, 1994; Mogesen í Agnesi, 1995;
afa í Djöflaeyjunni 1996; Pétur sem
þul í Dansinum 1998; í Óskabörn
þjóðarinnar, 2000; og Gauja í Dís,
2004. Auk þess kom Árni fram sem
skemmtikraftur á skemmtunum um
víða um land um langt árabil, einn
og með öðrum.
Árni gerði út trillu frá Reykjavík
um skeið ásamt nokkrum vinnufé-
lögum sínum. Hann hefur stundað
sjóróðra og verið trillukarl í Hrísey
á hverju sumri frá því á sjötta ára-
tugnum en þau hjónin dvelja jafn-
an sumarlangt að Hamri í Hrísey
sem er ættaróðal þeirra og rær enn
út á sumrin. Nú verða þau hjónin
hins vegar að éta allan aflann vegna
skorts á veiðiréttindum.
Út kom um Árna árið 1991 minn-
ingabókin Lífróður, skráð af Ingólfi
Margeirssyni.
Fjölskylda
Árni kvæntist 26.12. 1948 Kristínu
Nikulásdóttur, f. 1.12. 1928, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Nikulásar Árna Hall-
dórssonar, trésmiðs í Reykjavík, og
k.h., Jónínu Guðbjargar Helgadóttur
húsmóður.
Börn Árna og Kristínar eru Svan-
laug Halldóra, f. 25.3. 1949, lækna-
ritari, búsett í Reykjavík en maður
hennar er Ólafur Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri og eiga þau þrjú börn,
Kristínu Helgu, Guðrúnu Halldóru,
og Árna Baldvin; Jónína Margrét, f.
16.7. 1951, símavörður við VÍ, búsett
í Kópavogi en maður hennar er Árni
Steinsson, starfsmaður hjá VÍ, og eru
börn þeirra Grétar Rafn, Viðar Steinn
og Birgir Örn; Örn, f. 19.6. 1959, leik-
ari í Reykjavík en eiginkona hans er
Jóhanna Kristín Óskarsdóttir kennari
og eru börn þeirra Óskar Örn, Erna
Ósk og Sólrún María.
Systkini Árna: Marta, f. 22.8. 1907,
d. 13.5. 1981, húsmóðir í Reykjavík;
Jóhann Gísli, f. 25.1. 1909, d. 31.5.
1971, sjómaður í Hrísey; Jónas Krist-
inn, f. 28.8. 1911, d. 10.6. 1994, sjó-
maður, húsvörður og leikari á Siglu-
firði; Sigrún Rakel, f. 1.10. 1914, d.
8.4. 1991, húsmóðir í Reykjavík; Sig-
mann, f. 19.9. 1917, d. 28.10. 2007,
sjómaður, síðast búsettur í á DAS í
Reykjavík.
Hálfsystir Árna, samfeðra, var
Anna Baldvina, f. 31.10. 1900, d. 18.6.
1968, lengi starfskona á Hótel Borg.
Foreldrar Árna voru Tryggvi Ág-
úst Jóhannsson, f. á Galmarsstöðum
31.8. 1879, d. 25.5. 1971, sjómaður og
fiskmatsmaður í Hrísey, og k.h., Mar-
grét Gísladóttir, f. 27.7. 1886, d. 24.5.
1982, húsmóðir.
Árni heldur upp á afmælið í róleg-
heitum með fjölskyldunni.
Til
hamingju
með
afmælið!
Bjarni fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í Hlíðunum og Laugarneshverf-
inu og í Vatnsdal í Austur-Húna-
vatnssýslu. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1969, fyrri hluta-prófi í raf-
magnsverkfræði frá HÍ 1972 og loka-
prófi í rafmagnsverkfræði frá NTH í
Þrándheimi 1974.
Bjarni var rafhönnuður hjá Kva-
erner Engineering í Noregi 1975-76
og umsjónarmaður með setningu
aðveitustöðva RARIK 1976-80, hóf
þá störf sem rafmagnsverkfræðing-
ur hjá ÍSAL og hefur frá 1981 gegnt
stöðu ábyrgðarmanns raforkuveitu
fyrirtækisins og leitt tæknivæðingu
þess á hinum ýmsu sviðum er varða
rafmagn og sjálfvirkni. Bjarni hef-
ur tekið þátt í að innleiða og við-
halda gæðastjórnun hjá ÍSAL og er
höfundur flestra skjala er varða raf-
hönnun og mælitækni í umhverf-
is- og gæðahandbók tæknideildar
ÍSAL. Þá er hann meðhönnuður að
innkaupastöðlum ÍSAL á sviði raf-
hönnunar, rafmagnsefnis, iðntölva
og hugbúnaðar þeirra og stjórnaði
rafmagnsþáttum stækkunar Ísals
1995-97, er kerskáli 3 var reistur. Þá
stjórnar hann rafmagnsþáttum nú-
verandi stækkunaráforma fyrirtæk-
isins.
Bjarni hefur ritað fræðilegar
greinar í ABB Review, Aluminium
og Verktækni auk greina um áhuga-
mál sín í dagblöð og ÍSAL-tíðindi.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 12.8. 1972 Þuríði
Stefánsdóttur, f. 29.1. 1950, hjúkrun-
arfræðingi við Landspítalann. Hún
er dóttir Stefáns Eyjólfssonar, bónda
í Mjóanesi á Héraði, og Sveinbjargar
Pétursdóttur húsfreyju þar.
Börn Bjarna og Þuríðar eru Jón
Ásgeir, f. 18.5. 1973, læknir í sérnámi
í Tönsberg í Noregi en dóttir hans er
Vilde Vala Jónsdóttir; Sólrún Þór-
unn, f. 17.6. 1974, ballettdansari og
danshöfundur í Garðabæ; Eyjólfur
Ari, f. 7.3. 1977, rafeindavirki og nemi
í landmælingatækni í Danmörku en
kona hans er Sunneva Sigurðardótt-
ir hárgreiðslumeistari og er sonur
þeirra Stefán Eyjólfsson; Ásgerður
Fanney, f. 4.1. 1984, laganemi við HÍ
en maður hennar er Gauti .
Systkini Bjarna eru Herdís Jóns-
dóttir, f. 29.6. 1956, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík; Snæbjörn Jónsson,
f. 21.5. 1962, rafmagnsverkfræðingur
í Reykjavík.
Foreldrar Bjarna voru Jón Hannes
Snæbjörnsson, f. 10.11. 1924, d. 6.9.
1985, framkvæmdastjóri í Reykjavík,
og Ásgerður Guðfinna Bjarnadóttir,
f. 1.1. 1920, d. 3.10. 1985, húsfreyja.
Ætt
Jón var sonur Snæbjarnar, b. á Snær-
ingsstöðum Jónssonar, b. í Þórorms-
tungu og síðar á Undornfelli í Vatns-
dal Hannessonar, b. í Haukagili
Þorvarðssonar pr., síðast á Prest-
bakka á Síðu Jónssonar, pr. á Breiða-
bólstað í Vesturhópi Þorvarðssonar,
smiðs á Björgum í Kinn Þórðarson-
ar.
Móðir Jóns var Herdís, dótt-
ir Guðmundar á Gelti í Súganda-
firði Þorleifssonar, Jónssonar. Móðir
Herdísar var Þóra Jónsdóttir, hrepp-
stjóra á Hóli í Bolungarvík Guð-
mundssonar, b. í Ytrihúsum í Arn-
ardal Ásgrímssonar, b. í Arnardal
fremri Bárðarsonar, ættföður Arn-
ardalsættar Illugasonar. Bróðir Ás-
gerðar var Sigfús, forstjóri Heklu.
Ásgerður var dóttir Bjarna, b. á
Uppsölum í Miðfirði Björnsson, b.
í Núpsdalstungu Jónssonar, b. þar
Teitssonar. Móðir Björns var Elín-
borg, systir Björns á Marðarnúpi,
föður Guðmundar landlæknis. Elín-
borg var dóttir Guðmundar, smiðs á
Síðu Guðmundssonar og Guðrúnar
Sigfúsdóttur Bergmanns, b. á Þor-
kelshóli Sigfússonar, ættföður Berg-
mannsættar. Móðir Ásgerðar var
Margrét Sigfúsdóttir kennari.
Bjarni og Þuríður dvelja hjá syni
sínum í Noregi þessa dagana.
Bjarni jónsson
rafmagnsstjóri alcan
60 ára í dag