Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2009, Blaðsíða 22
mánudagur 19. janúar 200922 Fólkið
Á forsíðu nýjasta Séð og heyrt
má lesa um Matthías Imsland,
forstjóra Iceland Express, og
unnustu hans, Sunnevu Torp.
En nú rétt fyrir jól eignuðust þau
dreng saman. Sunneva vinnur
sem flugfreyja hjá Iceland Ex-
press auk þess sem hún er andlit
flugfélagsins. Sunneva útskrif-
aðist úr Verzlunarskólanum á
sínum tíma og seinna meir úr
sálfræði við Háskóla Íslands.
Á menntaskólaárunum þótti
Sunneva mikil fegurðardrottn-
ing og kvenkostur og nældi hún
sér í sjarmatröllið Þorvald Dav-
íð Kristjánsson leikara, en þau
voru saman í nokkra mánuði á
menntaskólaárunum. Þorvald-
ur býr nú úti í New York þar sem
hann leggur stund á leiklistar-
nám við hinn fræga Julliard-
skóla.
Gullöldin
endurvakin
Hver man ekki eftir gömlu góðu tím-
unum á Skjá einum þegar Árni Þór
og Kristján Ra réðu ríkjum? Íslensk
dagskrárgerð blómstraði á skján-
um á fyrstu árum stöðvarinnar og
var hver stjarnan á fætur annarri við
stjórnvölinn.
Egill Helgason, blaðamaður á sín-
um tíma, byrjaði með Silfur Egils og
varð stjarna á einni nóttu. Skjár einn
fékk einnig lífsstílsdrottninguna Völu
Matt til liðs við sig og hóf Innlit-Útlit
göngu sína. Björn Jörundur og Inga
Lind Karlsdóttir voru með vikulegan
þátt sem kallaðist Út að borða með
Íslendingum.
Spjallþáttadrottningin Sirrý
stjórnaði vinsælustu þáttunum á
Skjá einum, en vikulega fékk hún til
sín gesti sem töluðu hreint út. Dóra
Takefusa stjórnaði um tíma ásamt
hinum og þessum stefnumótaþætt-
inum Djúpu lauginni og naut sá
þáttur mikilla vinsælda, enda fyrstur
sinnar tegundar hér á landi.
Með tímanum snarminnkaði inn-
lend dagskrárgerð og fyrir aðeins
nokkrum mánuðum, sagði Skjár
einn öllum starfsmönnum upp.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri RÚV, kom
ítrekað fram í fréttum með
að það vanti sanngjarnt sam-
keppnisumhverfi á fjölmiðla-
markaði. Skjár einn fór í heljar-
innar auglýsingarherferð til þess
að bjarga stöðinni.
Bjartari tímar virðast vera
fram undan hjá Skjá einum, en
undanfarna daga hefur Skjár
einn fengið stjörnur til liðs við
sig rétt eins og á blómaskeiði
stöðvarinnar. Jón Jósep Snæ-
björnsson, söngvari Í svört-
um fötum, hóf sjónvarpsferil
sinn í skemmtiþættin-
um Singing Bee.
Skjár einn
hefur
ákveðið að halda kappanum um
borð og mun hann koma til með
að stýra fjölskyldu- og
skemmtiþættinum
Fyndnar fjölskyldu-
myndir sem verð-
ur í anda Amer-
ica’s Funniest
Home Videos.
Þá mun Káta
Maskínan,
menning-
arþáttur
Þorsteins
Joð, flytja
sig frá RÚV
yfir á Skjá
einn og
Sölvi
Tryggva-
son,
fyrrverandi þáttastjórnandi Íslands
í dag, stjórna þættinum Málefni
ásamt Gunnhildi Örnu Gunnars-
dóttur blaðamanni. Þáttur-
inn verður sýndur einu
sinni í mánuði. Einn-
ig mun förðunarmeist-
arinn Karl Berndsen
stýra lífsstílsþætti í
anda How to Look
Good Naked.
Óhætt er að
segja að gullald-
artími Skjás eins
sé endurvakinn.
hanna@dv.is
Stjörnurnar skinu skært á blómaskeiði Skjás eins fyrir nokkrum árum. Á síðastliðnum
árum hefur innlend dagskrárgerð dalað verulega og um tíma leit allt út fyrir að Skjár
einn væri að syngja sitt síðasta. Svo virðist sem bjartari tímar séu fram undan á stöð-
inni og eru nokkrar af helstu sjónvarpsstjörnum landsins gengnar til liðs við stöðina.
Fyrrverandi fegurðardrottningin Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir og eiginkona Bubba Morteins
sást á dögunum í barnavöruverslun í borginni
þar sem hún hugaði að komu erfingja þeirra
hjóna en þau eiga von á sínu fyrsta barni saman
með vorinu . Ætla má að hreiðurgerðin sé farin
að gera vart við sig hjá Hrafnhildi enda farið að
síga á seinni hluta meðgöngunnar. Þau Hrafn-
hildur og Bubbi gengu í það heilaga síðasta sum-
ar og skömmu síðar bárust fregnir af því að
Hrafnhildur bæri barn undir belti. Þau hjón-
in hafa komið sér vel fyrir við Meðalfellsvatn
en þar byggðu þau draumahúsið rétt áður
en að kreppan skall á.
Það verður án efa nóg að gera á heimili
Hrafnhildar og Bubba í fæðingarorlofinu
en fyrir á Hrafnhildur dóttur á fjórða ári og
sjálfur á Bubbi þrjú börn úr fyrra sambandi.
HrafnHildur í
HreiðurGerð
Með forstjóra
í stað leikara
HrafnHildur Hafsteinsdóttir undirbýr komu erfingjanS:
Stjörnurnar Snúa aftur á SkjáEinn:
Eftir að kviknaði í á Kleppsveg-
inum aðfaranótt föstudags voru
að minnsta kosti tveir tónlist-
armenn með fyrstu mönnum á
vettvang. Annars vegar tón-
listarmaðurinn Ólafur Arnalds
og hins vegar Arnar Halldórs-
son sem þekktastur er fyrir að
hafa verið í hljómsveitinni The
Boys. Arnar var á leið heim úr
gleðskap í miðbænum og segir
í viðtali við Vísi að hann hafi
heyrt öskur og læti, sett klút fyrir
andlit sitt og ætt inn í húsið til að
aðstoða skelfingu lostið fólk við
að komast út úr brennandi íbúð.
Ólafur, sem býr í húsinu við hlið-
ina á því sem brann, var einnig
staddur í gleðskap hjá nágrönn-
um sínum á efri hæðinni í sínu
húsi þegar eldur brast út. Mikill
reykur myndaðist í íbúð Ólafs
og fékk hann ekki að snúa í íbúð
sína fyrr en skömmu fyrir hádegi
á föstudag.
Hætt koMnir
tónlistarMenn
sölvi tryggvason Snýr aftur á skjáinn eftir
aðeins tveggja vikna hlé. Hann mun stjórna
mánaðarlegum þætti ásamt gunnhildi Örnu
gunnarsdóttur blaðamanni.
Björn Jörundur
Fór með Íslending-
um út að borða á
sínum tíma.
sirrý Oprah
Winfrey Íslands.
egill Helga Varð
sjónvarpsstjarna á
Skjá einum.
Hrafnhildur í hreiðurgerð Sést hefur
til Hrafnhildar undirbúa komu erfingjans
sem væntanlegur er fyrir vorið.
Á brúðkaupsdaginn Hrafnhildur og
Bubbi gengu eins og þekkt er orðið í það
heilaga á síðasta ári. Fljótlega bárust
fréttir um að þau ættu von á erfingja.