Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Síða 14
„Við áætlum að jafnaði einn til tvo
einstaklinga á fermetrann og áætlum
að Austurvöllur geti tekið átta þús-
und manns. Svæðið sem afmarkast
af húsunum í kring áætlum við að
gæti tekið tíu til tólf þúsund manns.
Þetta er ekki endilega heilög og rétt
tala en við giskum á þetta miðað við
reynsluna,“ segir Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn.
Engin yfirlitsmynd
af Austurvelli
„Það er erfitt að sjá svona tölur ná-
kvæmlega því það er misþétt af fólki
á vellinum. Við höfum stundum gert
það með aðra staði að fá yfirlits-
mynd, skipta fólki upp í ferninga og
talið það þannig. Við höfum ekki gert
það á Austurvelli því það er svolítið
erfitt en það væri gaman að fá yfirlits-
mynd og sjá,“ segir Geir Jón.
Fríða Björg Eðvarðsdóttir lands-
lagsarkitekt notar þá þumalputta-
reglu að áætla einn og hálfan fer-
metra á hvern einstakling. Með þeim
útreikningum er aðeins hægt að
koma 4.667 einstaklingum á Aust-
urvöll. „Ég tel þó að mótmælendur
standi þéttar en þetta er gróf þum-
alputtaregla sem hægt er að notast
við,“ segir Fríða.
Hefð fyrir mótmælum
Austurvöllur er vinsæll hjá Íslend-
ingum á sumrin og koma þeir þang-
að til að sleikja sólina, slappa af og
sýna sig og sjá aðra. Undanfarnar
vikur hefur Austurvöllur orðið vin-
sælasti mótmælastaður landsins en
mótmælin hafa verið í hámarki síð-
ustu daga þar sem þúsundir manna
hafa lamið bumbur og mótmælt setu
ríkisstjórnarinnar. Þetta er engin ný-
lunda þar sem hefð hefur myndast
fyrir að mótmæla á Austurvelli enda
liggur það beinast við þar sem þing-
húsið snýr út að sjálfum vellinum.
Ein fyrstu mótmælin á Austurvelli
voru árið 1905 þar sem símamálinu
svonefnda var mótmælt og þúsund-
ir mættu á völlinn. Mörgum árum
seinna, 30. mars árið 1949, flykkt-
ust mótmælendur á Austurvöll þeg-
ar stóð til að samþykkja þingsálykt-
unartillögu um inngöngu Íslands í
Nató. Eru þessi mótmæli keimlík
mótmælunum sem nú hafa staðið
yfir í tvo daga því við þetta tækifæri
beitti lögreglan táragasi og fjórtán
rúður voru brotnar á framhlið þing-
hússins.
Áætlað er að átta til tíu þúsund
manns hafi verið á Austurvelli og eft-
ir að þingfundi lauk og fréttist að Al-
þingi hefði samþykkt aðild Íslands að
Nató mögnuðust átökin. Þegar þing-
menn leituðu útgöngu urðu úr mik-
il slagsmál og grjótkast að húsinu og
skrámuðust ýmsir inni í þingsal.
500 Austurvellir
Austurvöllur afmarkast af Vallar-
stræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti
og Thorvaldsensstræti. Austurvöllur
er samt sem áður ekki mjög stór ef
hann er borinn saman við einn vin-
sælasta garð Bandaríkjanna, Central
Park í New York-borg. Þangað leggja
25 milljónir manns leið sína árlega
og er garðurinn afar vinsæll með-
al Hollywood-stjarnanna sem koma
þangað til að skokka og hrista af sér
aukakílóin. Central Park er hvorki
meira né minna en 3,4 ferkílómetr-
ar og væri hægt að koma tæplega
fimm hundruð Austurvöllum fyrir á
því svæði.
föstudagur 23. janúar 200914 Fréttir
Austurvöllur er sjö þúsund fermetrar að stærð. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn áætlar að átta þúsund
manns komist þar fyrir. Tíu til tólf þúsund manns ættu að komast fyrir á svæðinu sem afmarkast af húsunum
í kring samkvæmt honum. Fríða Björg Eðvarðsdóttir landslagsarkitekt segir að hægt sé að gera ráð fyrir að
hver einstaklingur taki einn og hálfan fermetra og því einungis hægt að rúma um 4600 manns á vellinum.
Allt Að tólf þúsund
mAnns komAst fyrir
„Þetta er ekki endilega
heilög og rétt tala en
við giskum á þetta mið-
að við reynsluna.“
lilJA KAtrín GunnArsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Griðastaður á sumrin
Þegar sólin hækkandi fer
flykkjast borgarbúar á
austurvöll og sleikja sólina.
mynd Guðmundur ViGFússon
staður mótmælenda
Mótmælin árið 1949 voru keimlík
mótmælunum þessa dagana.
Þá dreifði lögreglan táragasi og
alls þurftu tólf manns að fara á
Landspítalann og voru nokkrir
alvarlega slasaðir.
mynd GunnAr GunnArsson
Central Park á manhattan í new york
Var opnaður 1859 og hægt væri að koma
tæplega fimm hundruð austurvöllum
þar fyrir.