Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Blaðsíða 38
Þ
ær voru að mörgu leyti
ótrúlegar tölurnar sem
birtar voru á dögunum yfir
notkun Íslendinga á vef-
samfélaginu Facebook.
Samkvæmt þeim er hátt í helming-
ur landsmanna þrettán ára eða eldri
með síðu á Facebook, eða yfir hundr-
að og tuttugu þúsund manns. Og það
sem meira er, nær allir Íslendingar á
aldrinum 20 til 29 ára hafa skráð sig
á vefinn.
Fyrsti vísir að Facebook var vef-
samfélag sem Harvard-nemarnir
Mark Zuckerberger, Dustin Moskov-
itz og Chris Hughes stofnuðu í febrú-
ar árið 2004. Upphaflega var það ein-
ungis notað af nemum við skólann,
meðal annars til að hjálpast að við
heimavinnuna, en ekki leið á löngu
áður en boltinn byrjaði að rúlla og
fólk um allan heim var komið á Face-
book. Það var hins vegar ekki fyrr en
á síðasta ári sem Facebook-æðið skall
á Íslandi með hvelli. Ekki eru tiltækar
nákvæmar tölur yfir fjölda Facebook-
notenda á heimsvísu en þó virðist
vera að vefurinn sé orðinn vinsælli
en MySpace. Þess má geta að Time
útnefndi Mark Zuckerberger eina af
áhrifamestu manneskjum heims á
síðasta ári.
Tvöföldun á nokkrum
mánuðum
Elvar Arason starfar við rannsóknir
hjá ABS Fjölmiðlahúsi og hefur rýnt
svolítið í þann heim sem Facebook
er. Hann er sá sem tók saman fjöld-
ann um Facebook-notendur og getið
er um hér að framan.
„Útbreiðslan á Facebook hef-
ur verið alveg gríðarleg. Ég tók fyrst
saman þessar tölur yfir fjölda ís-
lenskra síðna í ágúst. Þá var fjöldinn
sextíu þúsund og hefur því tvöfald-
ast á þessum stutta tíma,“ segir Elvar
sem sjálfur hefur verið á Facebook í
tvö ár.
Elvar segir nauðsynlegt að hafa
í huga að tölurnar eru aðeins ýkt-
ar. Tvítalning geti til að mynda átt
sér stað þar sem sumir séu með
tvo prófíla, stofnaðar eru síður fyr-
ir félagasamtök, aðdáendaklúbba
og samkomur eins og „ríjúníon“ og
þá sé eitthvað um að fólk stofni síð-
ur í nafni einhvers í óþökk viðkom-
andi. Nýlegt dæmi er þegar síða var
stofnuð í nafni Árna Mathiesen fjár-
málaráðherra og hafði hann eignast
„Facebook-vini“ í tugatali áður en
upp komst um athæfið.
Fjöldi notenda er langmestur í
hópi þeirra sem eru á þrítugsaldri,
eða 96 prósent Íslendinga á þeim
aldri. Í aldurshópnum þar fyrir neð-
an, 13 til 19 ára, er hlutfallið tæplega
84 prósent og af þeim sem eru á milli
þrítugs og fertugs eru ríflega sex af
hverjum tíu með Facebook-síðu. Um
helmingi færri á aldrinum 40 til 49
ára hafa markað sér skika í landi Fés-
bókarinnar og eins og nærri má geta
fer fjöldinn minnkandi eftir því sem
ofar er farið í aldursgreiningunni. Þó
er markvert að tæplega 1.600 manns
sextíu ára og eldri eru með Face-
book-síðu samkvæmt samantekt Elv-
ars. DV veit til að mynda um nokkra
sem eru komnir á áttræðis- og jafnvel
níræðisaldur sem hafa stofnað Face-
book-aðgang, þó vissulega séu þeir
misvirkir í notkun sinni á því sem þar
stendur til boða.
Konur virkari
Þegar horft er til hinna Norðurlanda-
þjóðanna kemur í ljós að Íslendingar
eru mest svag fyrir Facebook. Í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð er fjórði
hver einstaklingur sem kominn er
yfir tólf ára aldurinn með Facebook-
síðu og einn fimmti allra Finna sam-
kvæmt þeim tölum sem Elvar hefur
viðað að sér. Af sömu ástæðum og
með tölurnar yfir fjölda notenda hér
á landi þarf að taka þessum tölum
með smá fyrirvara.
Kynjaskiptingin hér á landi er
60/40 konum í hag. Ástæðan fyrir því
er einfaldlega sú að konur eru meiri
félagsverur að mati Elvars. „Kon-
ur eiga almennt fleiri vini og rækta
vinasambönd í ríkari mæli en karlar.
Þær leggja hreinlega meiri áherslu á
að vera í samskiptum við vini sína og
vinkonur, hvort sem það er í sauma-
klúbbum eða á Facebook.“
MySpace-vefsamfélagið varð all-
vinsælt hér á landi fyrir nokkrum
misserum, sérstaklega hjá ungu fólki.
Með tilkomu Facebook kveðst Elvar
sjá tilhneigingu hjá yngra fólkinu að
nota Myspace minna, jafnvel hætta
því alveg, og færa sig þess í stað yfir
á Facebook.
Sumir mjög persónulegir
Notkun fólks á möguleikum Face-
book eru afar mismunandi. Sumir
nota síðuna fyrst og fremst til að eiga
samskipti við ættingja og vini eða
skoða myndir á meðan aðrir eru mik-
ið í leikjum. Sumir nota Facebook við
vinnu sína og möguleikar einhleypra
til að daðra og finna sér hugsanlegan
lífsförunaut, bólfélaga eða hvaðeina
eru svo vitanlega endalausir ef svo
má segja.
Texti sem sem skrifaður er á
„vegg“ (wall) síðueigenda er öllum
þeim aðgengilegur sem eru „Face-
book-vinir“ þess sem á vegginn eða
skrifar á hann, nema viðkomandi
hafi takmarkað aðganginn eins og
dæmi eru um að fólk geri. Ótrúlegt er
stundum að lesa það sem fólk skrifar
á vegginn hvert hjá öðru. Yfirleitt er
það eitthvað ósköp saklaust, en getur
svo farið út í að vera allt frá áminn-
ingu annars aðilans í ástarsambandi
til makans um að kaupa eitthvað í
búðinni til ástarjátningar eða þaðan
af persónulegri skilaboða. Eitthvað
sem fyrir daga Facebook fór einungis
manna á milli í eigin persónu, í sím-
tali eða sms. Mörg dæmi eru svo um
að fólk frétti af skilnaði, sambands-
slitum, óléttu og mörgu fleiru per-
sónulegu á Facebook. Atriðið í síð-
asta áramótaskaupi sem snerti á
þessu kitlaði enda hressilega hlátur-
taugar margra landsmanna.
Engin grundvallarbylting
„Mér þykir það sæta miklum tíðind-
um að nánast allt fólk á þrítugsaldri
á landinu er komið inn á þennan
vettvang, og annar hver maður þeg-
ar þjóðin í heild er skoðuð,“ segir
Þorbjörn Broddason, prófessor í fjöl-
miðlafræði við Háskóla Íslands, þeg-
ar blaðamaður innir hann eftir áliti
hans á Facebook-fyrirbærinu og vin-
sældum þess. Hann tekur þó fram að
hann þekki Facebook fyrst og fremst
af afspurn.
Að mati Þorbjörns er augljóst að
Facebook sé feiknarlega öflugt og
sveigjanlegt tæki til að skapa ein-
hvers konar samfélag. „En ég held
samt að þetta sé ekki nein grund-
vallarbylting frá því sem þegar var
komið, það er þeim vefsíðum fólks
og netsambandi sem fór að breiða úr
sér fyrir nokkrum árum. Mér sýnist
þetta bara vera ennþá sveigjanlegri
leið til að gera sömu hluti. Og ég hef
það á tilfinningunni, eða virðist alla-
vega við fyrstu sýn, að þetta sé tilraun
fólks til að koma einhverjum aga á
þetta samfélag sem það er að reyna
að taka þátt í.“
Ógilding orðsins „vinur“
Þorbirni sýnist að valið sem Face-
book-síður bjóði upp á sé aðalmun-
urinn frá venjulegum vefsíðum.
„Vefurinn er opinn öllum. Ef þú set-
ur eitthvað á vefsíðuna þína er það
komið út um allan heim og þú hef-
ur enga stjórn á því hvað er gert við
það. Ef þú setur það á Facebook fer
það einungis til þeirra sem eru þeg-
ar í þessu samfélagi sem þú ert bú-
inn að skapa í kringum þig. Þú getur
hins vegar ekki hindrað það að ein-
hver sem er í þessum vinahópi þín-
um taki það sem þú setur á Facebook
og færi það öllum heiminum með því
að flytja það yfir á vefsíðu.“
Facebook er afar einfalt í notkun
sem Þorbjörn segir einn aðalstyrk-
leika þess. Gildisfelling á orðinu „vin-
ur“ er á hinn bóginn nokkuð sem
Þorbirni finnst athyglisvert við Face-
book. „Þarna er gott og gilt orð tek-
ið og gefið algjörlega nýtt inntak. Ég
vil frekar kalla Facebook samfélag en
vinahóp og þarna ræður þú því dálít-
ið hvernig þetta samfélag er sett sam-
an. En ef þú ætlar að kalla þetta „vini“
ertu eiginlega búinn að ógilda þetta
ágæta orð. Mér finnst óþarfi að taka
þetta orð og spilla góðri notkun þess
af því að við eigum nóg af orðum sem
hægt væri að nota í staðinn.“
Klúbbar innan heimsþorpsins
Kanadíski bókmennta- og fjölmiðla-
fræðingurinn Marshall McLuhan
setti fram ýmsar skýrar hugmyndir
um tækni og miðla á sjöunda og átt-
unda áratug síðustu aldar og ýmsa
spádóma sem rættust um tölvu-
heima. Hann er meðal annars höf-
undur hugtaksins „heimsþorpið“
sem hann kom fram með löngu áður
en internetið varð að veruleika.
Að sögn Þorbjörns er vefurinn
í sinni klassísku mynd heimsþorp
McLuhans. Facebook sé einnig geysi-
lega sterk birtingarmynd á heims-
þorpinu, en um leið tilraun til að skil-
greina það í hólf þar sem það krefst
ákveðinnar aðgerðar fólks til að ger-
ast þátttakandi.
„Þú verður að skrá þig, en svo er
hægt að meina þér þátttöku. Á vefn-
um getur hins vegar enginn stoppað
þig. Facebook er því nokkurs konar
klúbbur, eða öllu heldur klúbbar, í
heimsþorpinu,“ segir Þorbjörn.
Spurður hvort hann telji að Face-
book eigi eftir að lifa um ókomna tíð
segir Þorbjörn það velta á því hvort
eitthvað annað komi fram sem slái
þessu vefsamfélagi við. Rétt eins og
með faxið sem kom og fór. „Faxið
var alveg stórkostlegur hlutur um
tíma en er nokkurn veginn úr sög-
unni núna. Aðrir hlutir, eins og sím-
föstudagur 23. janúar 200938 Helgarblað
„Ég sá það á Facebook“
„Ég sá það á Facebook“ er frasi sem heyrist sífellt oftar hér á landi. Fjöldi íslenskra
Facebook-notenda fer enda stigvaxandi og nú er svo komið að nánast helmingur Ís-
lendinga sem komnir eru af barnaskólaaldri hafa markað sér skika í víðáttum Fés-
bókarinnar. Nánast allir á aldrinum 20 til 29 ára eru þátttakendur í þessu vefsamfélagi
og dæmi eru um að fólk sem fyllir brátt heila öld í aldri sé komið með Facebook-síðu.
DV kannaði hvaða fyrirbæri þetta er, kosti þess og galla og möguleika Facebook á að
lifa lengur en hver önnur bóla.
Guðberg K. Jónsson, sálfræðingur
hjá Heimili og skóla „Við vitum að
facebook hefur sinnt ábendingum um
nettælingu og kynferðisbrotamenn og
vísað einhverjum burt.“
Elvar Arason hjá ABS Fjölmiðla-
húsi „útbreiðslan á facebook hefur
verið alveg gríðarleg.“
MYND HEiðA HElGADÓTTir