Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Blaðsíða 34
föstudagur 23. janúar 200934 Helgarblað öxl, norðan við Akrafjall, árið 1955. Hún er næstyngst sex systkina og flutti móðir Sigurbjargar með barnahópinn til Akraness þegar hún var fjögurra ára eftir að faðir Sigurbjargar lést. Hún flutti svo til Reykjavíkur þegar hún hóf nám við MR, þaðan sem Sigurbjörg útskrif- aðist árið 1976. Að því loknu fór hún til Óslóar í Noregi til að læra félags- ráðgjöf, kom síðan aftur heim, giftist og vann sem félagsráðgjafi hjá Rík- isspítölum. Árið 1982 fluttu þau hjónin til Reyðarfjarðar þar sem maður Sig- urbjargar, Sigursteinn Gunnarsson, hóf tannlækningar. Eftir tveggja ára dvöl þar fluttu þau aftur til Reykja- víkur og starfaði Sigurbjörg þar lengst af sem yfirmaður öldrunar- mála hjá Reykjavíkurborg. Eiginmaðurinn svipti sig lífi Rétt fyrir jólin 1997 urðu straum- hvörf í lífi Sigurbjargar. Eiginmað- ur hennar svipti sig lífi. Það var sem heimurinn hefði hrunið án fyrir- vara. „Sumir sjá einkenni þung- lyndis í aðdraganda svona atburða. En mér fannst ég ekki sjá neitt slíkt,“ segir Sigurbjörg sem þekkt hafði Sig- urstein í tuttugu og fimm ár. „Þetta var eitthvað sem ég hafði aldrei lát- ið hvarfla að mér að gæti hent hann. Þetta var mjög erfið og martraðar- kennd upplifun. Ég hafði áður misst föður minn og yngri bróður þannig að ég hafði áður misst nána ástvini. Enginn missir er eins, en að missa ástvin á þennan hátt er allt öðruvísi en nokkur annar missir. Manni gengur svo illa að byrja að syrgja því maður lendir í þeirri stöðu að þurfa enda- laust að reyna að svara spurning- um sem maður hefur ekki svör við. Það var alveg eins og ég hefði átt að vita eitthvað sem ég vissi ekki og því upplifir maður sig svolítið eins og í yfirheyrslu, jafnvel í samtali við vini sína og ættingja. Það endar með því að maður lokar sig af og byrjar að verja sig, þann látna og þær minn- ingar sem við áttum saman.“ Líkamsrækt til að geta borðað Eftir þetta áfall ákvað Sigurbjörg, sem þarna var orðin 42 ára, að söðla algerlega um í lífi sínu. Hún flutti til Bretlands, hóf nám í stjórnsýslufræð- um við London School of Economics og hóf einnig að stunda líkamsrækt af miklum krafti. Hún hleypur, syndir og hjólar; hefur til að mynda hlaupið tvö maraþon, mörg hálfmaraþon og hjólað tvisvar sinnum langferðir nið- ur í gegnum Evrópu. „Ég byrjaði í líkamsræktinni til að geta sofið og borðað. Ég missti alla matarlyst og varð að hreyfa mig mik- ið til að geta borðað og haldið heilsu. Það veitti mér öryggiskennd að geta fengist við eitthvað sem mér fannst vera á mínu valdi, eitthvað sem ég hafði stjórn á og gat séð árangur af, til að mynda við að byggja upp líkam- legan styrk og ná áföngum í náminu. En ég hafði ekki stjórn á því frekar en hver annar hversu hratt ég fór í gegn- um þetta sorgarferli. Maður styttir sér víst ekki leið í gegnum sorg, hún virðist þurfa að hafa sinn gang. Og þetta ferli tók mig heil tíu ár. Þá fyrst fór ég að kannast við eitthvað í sjálfri mér á ný, finna sama húmorinn, geta skemmt mér á sama hátt og áður, geta sungið og dansað.“ Í fjarbúð með prófessor Wade Í London kynntist Sigurbjörg Robert Wade, prófessor í stjórnmálahag- fræði, sem einnig flutti erindi á borg- arafundinum síðastliðinn mánudag. Það var fyrir tæpum sjö árum. „Hann bara sá mig á skólalóðinni,“ segir hún sposk á svip. Robert, sem er frá Nýja- Sjálandi en á ættir að rekja til Dan- merkur, býr í London en Sigurbjörg á Íslandi. Sú fjarbúð hefur varað frá því Sigurbjörg fluttist heim sumarið 2007 en fram að því höfðu þau verið í sambúð í Bretlandi. „Við höfum aldrei skilgreint okkur sem par. Þetta er bara svona frjálslegt nútímasamband sem kemur ágæt- lega til móts við þarfir okkar beggja. Erum góðir vinir, finnum það besta hvort í öðru og eigum margt sam- eiginlegt,“ segir Sigurbjörg og brosir breitt. Auk þess að hafa bæði mik- inn áhuga á heimsmálunum, stjórn- málum og hagfræði eru þau bæði jafn „húkkt“ á hlaupum og sundi, en prófessorinn hefur margoft hlaupið maraþon. „Það er svona þegar mað- ur byrjar að taka þetta eitthvað al- varlega, þá verður þetta eins og hver önnur stúdía, maður leggst í bækur, pælir í hlaupastílum, hraðamæling- um, næringu og þess háttar.“ Þegar blaðamaður spyr hvor sé betri hlaupari færist bros yfir andlit Sigurbjargar. „Ég er betri í dag,“ svar- ar hún hlæjandi. „Það er að segja, ég hef meira úthald. Hann er betri í styttri hlaupunum en átti betri tíma í langhlaupunum þegar hann var yngri.“ Þess má geta að Robert er fæddur í Sydney í Ástralíu á íslenska lýðveldisárinu 1944. „Fjarbúðin er allt í lagi,“ segir Sig- urbjörg. „Þetta hentar okkur mjög vel. Robert vinnur mjög mikið og er alltaf á fleygiferð um allan heim með fyrirlestra og á fundum. Oft líða mánuðir á milli þess sem Sigurbjörg og Robert hittast. „Það er bara þeim mun meira gaman að hittast,“ seg- ir Sigurbjörg og hlær. En hún viður- kennir að auðvitað sé viss söknuður sem geri vart við sig þegar langt líður á milli samverustunda. Fékk andstyggilega pósta Robert komst í fréttirnar hér á landi síðastliðið sumar þegar grein eft- ir hann birtist í Financial Times þar sem hann varaði við þróun íslensks fjármálaheims. Greinin vakti ekki mikla lukku hér á landi og fékk Ro- bert marga andstyggilega tölvupósta frá Íslendingum í framhaldinu. Sig- urbjörg fór heldur ekki varhluta af viðbrögðum landans. „Víða annars staðar, sérstaklega í Bretlandi og Bandaríkjunum, vakti greinin hins vegar mikinn áhuga,“ segir Sigurbjörg. „Robert þekkir vel til hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og fleiri alþjóðastofnunum. Var honum til að mynda þakkað sérstaklega fyrir að fjalla um þetta því þetta var þróun sem menn víða erlendis höfðu fylgst með og gátu heldur ekki annað séð en að sprenging væri í uppsiglingu. En á þessum tímapunkti varð bara ekkert aftur snúið.“ Fær kannski enga vinnu Sigurbjörg telur að óþægilegar upp- lýsingar séu oft teknar sem gagnrýni og að Íslendingar taki gagnrýni afar illa. „Hvað er það annars sem ger- ir það að verkum að yfirvöld hlusta ekki? Erum við svona viðkvæm fyr- ir gagnrýni eða kunnum við ekki að vinna úr henni? Nú er bara að koma sá tími að við verðum að vera opnari fyrir því að læra og takast á við nýja hluti. Það bíða okkar allra ný og erfið verkefni. En við getum lært margt af öðrum. Banka- og fjármálakreppur hafa jú gerst svo oft áður,“ segir Sig- urbjörg og setur í brýrnar. Sigurbjörg hefur ekki fengið vinnu hér á landi frá því verkefni hennar í heilbrigðisráðuneytinu lauk í sept- ember síðastliðnum. „Ég man þeg- ar ég skrifaði fyrstu greinarnar mínar um heilbrigðismál í Morgunblaðið haustið 2005. Einn vinur minn hér heima á Íslandi sagði við mig: „Það er greinilegt Sigurbjörg að þú ert ekki á leiðinni heim.“ Þegar ég spurði hvað hann ætti við svaraði hann: „Við Ís- lendingar tökum ekki svona gagn- rýni. Þú færð aldrei vinnu hér með svona afstöðu.“ Kannski hefur hann bara haft rétt fyrir sér.“ kristjanh@dv.is Davíð til Vanúatú robert sagði að réttast væri að gera davíð Oddsson að sendiherra Íslands á Vanúatú í erindi sínu á borgarafundinum í Háskólabíói á dögunum. MYND HEiða HELgaDóttir „Fyrir mig var annaðhvort að láta undan þessari ógnun og láta vonleysi ná tökum á mér eða skora þessar aðstæður á hólm og berjast með allri þeirri áhættu sem það heFur í För með sér Fyrir mig.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.