Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Qupperneq 20
föstudagur 23. janúar 200920 Helgarblað því að vera sagt upp. Sá sem ekki lætur það hafa áhrif á sig er ansi kaldur,“ segir hann og tekur fram hversu mikill missir er að þeim góðu blaðamönnum sem sagt var upp störfum. Óskar Hrafn bjóst við að starfs- mannafundurinn yrði mikill átakafundur og sú var sannarlega raunin. Að honum loknum náði blaða- maður tali af Lillý Valgerði Pét- ursdóttur, trúnaðarmanni starfs- manna stöðvarinnar. Hún segir að starfsmenn séu vissulega uggandi um stöðu sína í ljósi efnahags- ástandsins þannig að þeir voru áhyggjufullir áður en tilkynnt var um uppsagnirnar í gær. Hún telur að fólk hafi almennt ver- ið ánægt með fundinn. „Það var mikið spurt og stjórnendur svör- uðu spurningunum. Fólk fékk því svör við því sem á því brann. Með- al annars vildi fólk fá að vita hvort frekari uppsagnir væru væntan- legar en því svarað að ekkert væri ákveðið í því sambandi,“ segir hún. Mótbyr á nýjum stað Samkvæmt heimildum DV var þó einnig rætt mikið á fundin- um um samskiptaerfiðleika Freys við annað starfsfólk. Spurður um þetta segir Freyr að hann telji að sátt hafi náðst á starfsmannafund- inum um hvernig best sé að vinna sig út úr þessum vanda. „Þetta var misskilningur. Oftast er sam- skiptavandi byggður á misskiln- ingi. Ég held að við höfum náð að hreinsa þetta út á fundinum þar sem ég lagði til ferli sem þetta mál verður sett í,“ segir Freyr. Samkvæmt heimildum DV er ástæða samskiptavandans ein- mitt skortur á samskiptum Freys við aðra starfsmenn. Hann seg- ir oft erfitt að hefja störf á nýjum stað. „Þegar þú gengur inn á nýj- an vinnustað og mætir þar mót- byr tekur oft tíma að finna út úr því. Kannski hef ég tekið mér of langan tíma til þess. En þetta er komið í ferli þar sem við ætlum að laga það sem var gagnrýnt,“ segir Freyr. Hann bendir einnig á að þeg- ar inn koma nýir menn sem vilja gera breytingar séu ekki allir á eitt sáttir. Freyr segir uppsögn Sigmundar Ernis þó ekki að sínu frumkvæði. Óskar Hrafn starfar við hlið Freys. Spurður hvort hann kann- ist við óánægju starfsmanna með störf Freys segir Óskar Hrafn: „Það er ekki mitt að segja hvern- ig starfsmönnum líður. Það væri ósanngjarnt af mér að tala fyrir þeirra hönd.“ Sigmundur dýr Freyr og Óskar Hrafn störfuðu saman á ritstjórn DV hér á árum áður. Þeir stýra nú sitt hvoru svið- inu hjá Stöð 2. Heimildamenn blaðsins segja Óskar Hrafn nán- ast eina bandamann Freys hjá Stöð 2, að frátöldum eigendum, en Freyr sér um samskipti við yf- irmenn og fundar með þeim yfir hádegisverði á meðan Óskar legg- ur sig í líma við að finna nýjar og beittar fréttir. Þegar þeir félagar stýrðu DV sættu þeir oft mikilli gagnrýni annarra fjölmiðlamanna, og var Sigmundur Ernir meðal þeirra sem hæst fóru. Ari Edwald, forstjóri 365, seg- ir ástæðu uppsagnanna hins vegar vera skipulags- og áherslu- breytingar. „Þessar ráðstafanir eru af misjöfnum toga. Varðandi Kompás er það í ætt við aðrar ráðstafanir sem við höfum þurft að gera, til dæmis varðandi Ís- land í bítið og hádegisfréttir sem lagðar hafa verið niður. Það er of kostnaðarsamt fyrir okkur að halda úti sérstökum einingum með þeim hætti sem við höfum gert utan um þessar fréttaskýr- ingar. Aðrar ráðstafanir sem við erum í eru sambland af skipulagsbreyt- ingum og sparnaði,“ segir hann. Spurður sérstaklega um uppsögn Sigmundar segir Ari: „Hann er auðvitað dýr maður hér í frétta- lestri og dagskrárgerð.“ Drottingarviðtöl óvinsæl Aðspurður segist Ari kannast við óánægju vegna starfa Freys hjá Stöð 2. „Það hafa verið ýmsar um- ræður um þá ráðningu að setja hann yfir opnu dagskrána utan fréttatímans. Það er auðvitað okk- ar ákvörðun hverjum er falið að vera stjórnandi og aðrir verða að una því. Hann nýtur fulls trausts til sinna starfa og hann hefur ver- ið að ná mjög góðum árangri. Við erum að tala um allt að tvöföldun á þeim fjölda sem fylgist með á hverjum degi,“ segir hann. Óskar Hrafn tekur undir og segir að áherslubreytinga hafi verið full þörf hjá Íslandi í dag. „Drottingarviðtöl við stjórnmála- menn voru ekki að virka. Fólk nennti ekki að horfa á það. Áhorf- ið hefur aukist til muna eftir breyt- ingarnar,“ segir hann. Ari vill lítið tjá sig um hvort hann hafi áhyggjur af því að und- irmenn Freys séu margir hverjir ósáttir við störf hans. „Það er eitt af því sem fólk var að ræða hér,“ sagði hann eftir starfsmannafundinn. „Ég hef fulla trú á að þeim takist að leysa það, bæði Óskari og Frey, að þeir fari í gegnum það með sínu starfsfólki hvaða áherslur eru í þeirra störfum og ná að stilla saman strengina,“ segir hann. Útilokar ekki frekari uppsagnir Áherslubreytingar eru einmitt eitt af því sem stór hluti starfsfólks- ins er ósáttur við. Þegar Alþingi kom fyrst saman eftir jólafrí nú á þriðjudag bar fátt hærra í fréttum en hávær mótmæli við alþingis- húsið og átök milli mótmælenda og lögreglu. Þetta sama kvöld var ekkert fjallað um mótmælin í Ís- landi í dag en þess í stað miklum tíma eytt í nærmynd á léttu nót- unum af Bjarna Benediktssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og mögulegu ráðherraefni flokks- ins. Þar kom meðal annars fram að Bjarni væri latur við heimilis- verkin. Sölva Tryggvasyni og Sigur- laugu M. Jónasdóttur var einmitt nýverið sagt upp sem þáttastjórn- endum Íslands í dag. Eftir að nýir þáttastjórendur tóku við þættinum Íslandi í dag undir stjórn Freys hefur mörgum einmitt virst léttmeti vera uppi- staðan og það á miklum örlaga- tímum í sögu þjóðarinnar þeg- ar beittar fréttaskýringar teljast flestu mikilvægari. Ari Edwald kannast þó ekki við að efni Stöðvarinnar hafi verið af léttara taginu að undanförnu. „Ég er ekki viss um að það byggist á mjög vísindalegri greiningu á efni opinnar dagskrár hjá okkur að það sé endilega miklu léttara. Mér finnst fólk vera að vanmeta Ísland í dag út frá einstökum dagskrár- liðum sem hafa farið í taugarnar á einhverjum. Fréttaskýringar og viðskiptaumfjöllun eru enn á sín- um stað en reynt er að auka við fjölbreytnina sem hefur sannað sig með auknu áhorfi. Áhorfið er okkar æðsti dómari,“ segir hann. Spurður hvort frekari uppsagn- ir séu fyrirhugaðar hjá 365 seg- ir Ari: „Ég útiloka ekki neitt. Við bara höfum það að markmiði að lifa af og þjóna lesendum, hlust- endum og áhorfendum. Það eru engar stórar samdráttarákvarð- anir á borðinu hjá okkur. En við róum lífróður til að halda þessu fyrirtæki gangandi við mjög erf- ið rekstrarskilyrði þar sem stjórn- völd með niðurgreiðslum til RÚV gera sitt til þess að spilla rekstr- argrundvellinum fyrir öllum fjöl- miðlafyrirtækjum landsins. „Ég hef haft Sigmund Erni sem yfirmann. Ég hef líka starfað við hliðina á honum. Ég hef aldrei lært neitt af honum.“ Áfram blaðamenn Kristinn Hrafnsson og jóhannes Kristjánsson segjast síður en svo hættir í blaða- mennsku þó Kompás hafi verið lagður niður og hvetja fólk til að vera áfram í sambandi við sig í gegnum netfangið kompas@internet.is. MynD Gunnar GunnarSSon Engin áhrif auðvaldsins Óskar Hrafn segir sigmund Erni sýna mikið vanþakk- læti þegar hann skilur við stöð 2 með aðdróttunum um að auðvaldið hafi áhrif á fréttaflutning. MynD Gunnar GunnarSSon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.