Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Qupperneq 27
Árið 1975 fæddist heilbrigð-ur drengur í Reykjavík að nafni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Drengurinn
ætlaði sér snemma stóra hluti og nú
aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri
hefur hann tekið við formennsku
Framsóknarflokksins.
Sigmundur ólst að mestum hluta
upp í Breiðholti en einnig bjó hann
í nokkur ár ásamt foreldrum sínum
og systkinum í Bandaríkjunum. Þeg-
ar fjölskyldan fluttist heim á ný hélt
hún aftur í Breiðholtið þar sem Sig-
mundur segist hafa átt góða æsku og
alist upp við frelsi. „Í þá daga hlupu
börn bara út í móa og léku sér dag-
inn út og daginn inn. Í því fólst mik-
ið frelsi.“
Sigmundur er elstur þriggja systk-
ina. „Ég á einn bróður og svo systur
sem er yngst.“ Sigmundur vill ekki
meina að hann hafi verið leiðtogi
innan systkinahópsins en segir að
það megi vera að syskini hans hafi
aðra sögu að segja. „Ég gæti trúað því
að þeim fyndist ég oft hafa skipt mér
of mikið af,“ segir hann glettinn.
Námsmaður mikill
Að grunnskóla loknum lá leið Sig-
mundar í Menntaskólann í Reykja-
vík þar sem hann segist hafa not-
ið sín vel. „Ég upplifði sögu skólans
sterkt og naut þess að sitja á bóka-
safninu innan um allar bækurnar
sem merkir menn þjóðarinnar hafa
lesið síðustu hundrað árin. Það var
eitthvað sjarmerandi við þennan
gamla skóla, brakandi veggi hans og
sturtur sem þurfti að beygja sig und-
ir í leikfimi sökum þess hve lágt var
til lofts.“ Þrátt fyrir góð skólaár fannst
Sigmundi þó margt mega betur fara
í skólanum enda ekki þekktur fyrir
annað en að hafa skoðir á hlutun-
um og láta sig þá varða. „Á þessum
tíma var örlítið hnignunartímabil í
skólanum. Menn voru orðnir örlítið
værukærir um sögu skólans að mínu
mati, við náðum ekki góðum árangri
í spurningakeppnum og svo fram-
vegis.“ Aðspurður hvort hann hafi
reynt að bæta úr ástandinu með ein-
hverjum hætti, segist hann vissulega
hafa reynt það.
Sigmundur hélt skólagöngunni
samviskusamlega áfram og nam
viðskiptafræði í Háskóla Íslands að
loknu stúdentsprófi. Úr Háskóla Ís-
land lá leiðin svo í Háskóla Kaup-
mannahafnar þar sem hann lærði
stjórnmálafræði, því næst hélt náms-
maðurinn metnaðarfulli í Plekhan-
ov-háskólann í Moskvu þar sem
hann lærði um hagþróun Austur-
Evrópu sem og rússnesku. Að lok-
um ber að nefna framhaldsnám Sig-
mundar í Oxford.
Skortur á naglaklippum
„Þetta var árið 1998 og um það leyti
sem ég og íslenskur vinur minn vor-
um að leggja af stað til Moskvu varð
mikið banka- og efnahagshrun í
Rússlandi, um sumt líkt því sem Ís-
land gengur nú í gegnum. Ýms-
ar sögur voru sagðar af ástandinu í
Rússlandi í fjölmiðlum, meðal ann-
ars greint frá miklum vöruskorti.
Vinur minn hafði heyrt af því að sér-
staklega mikill skortur væri á nagla-
klippum og rúðuþurrkum í Rúss-
landi. Við veltum því þar af leiðandi
fyrir okkur hvort ástæða væri til að
fara út með fullar töskur af nagla-
klippum og rúðuþurrkum til að nota
í vöruskiptum. Á daginn kom að sög-
urnar voru verulega ýktar. Hins vegar
fóru þeir sem voru verr staddir efna-
hagslega mjög illa út úr hruninu og
gjáin milli ríkra og fátækra varð meiri
en nokkru sinni. Í því liggur einmitt
ein helsta hættan af efnahagshruni,
að það auki enn á ójafnvægi í sam-
félaginu. Rúblan hrundi á þessum
tíma svo hratt að við félagarnir sváf-
um með dollaraseðlana okkar undir
koddanum og dagurinn hófst á því
að kanna hvaða gjaldeyrissjoppa
byði hagstæðasta gengið. Svo var
skipt eins miklu og maður gerði ráð
fyrir að nota þann daginn. Það var
ómetanleg reynsla að geta dag frá
degi fylgst með afleiðingum hruns-
ins, og viðbrögðum við því, undir
handleiðslu fræðimanna en skynja
um leið áhrifin af eigin raun,“ segir
Sigmundur meðal annars um reynsl-
una í Rússlandi á heimasíðu sinni.
Fimm ára með stóra drauma
„Þegar ég var fimm ára gamall var
ég staðráðinn í að verða forsætis-
ráðherra en það var fljótt að breyt-
ast,“ leggur Sigmundur áherslu á er
talið berst að stjórnmálunum. „Ég
gleymi því aldrei þegar pabbi byrj-
aði á Alþingi og kom heim hálfniður-
brotinn maður eftir fyrsta daginn. Þá
hafði hann strax gert sér grein fyrir
því að hlutirnir gerðust allt of hægt á
þessum annars ágæta vinnustað. Ég
missti trúna á stjórnmálum og trúna
á að breytingar gætu átt sér stað.
Fyrir stuttu fékk ég þó á tilfinn-
inguna að stjórnmál gætu verið vett-
vangur breytinga og að það væri
hægt núna það, sem hefur ekki ver-
ið hægt undanfarin ár, að skoða allt
upp á nýtt. Ekki bara er fólk að biðja
um breytingar heldur er fólk tilbú-
ið að taka þátt í þeim. Stjórnmál eru
því ekki bara orðin spennandi held-
ur mjög mikilvæg. Það má því segja
að ég hafi öðlast trúna á stjórnmál-
um á ný.“
Aðkoman að stjórnmálum
Blaðamaður forvitnast nú um hvern-
ig það kom til að Sigmundur leiddist
út í pólitík og það með þeim hraða
sem hann gerði. „Í lengri tíma hafði
ég verið argur yfir sinnuleysi stjórn-
valda, sérstaklega með það í huga að
árið 2007 var fyrirséð í hvað stefndi.“
Sigmundur tók sig til og skrifaði
nokkrar skýrslur og reyndi eftir
fremsta megni að útlista hvers konar
hættur væru fram undan, en skýrsl-
urnar skiluðu engum árangri.
„Um sumarið 2008, þegar bank-
arnir fóru að halda kynningarfundi
hver á fætur öðrum þar sem þeir
sögðu fólki hve bjart væri fram und-
an, var mér nóg boðið. Ég og nokkr-
ir góðvinir mínir ákváðum að halda
okkar eigin kynningarfundi um land
allt og segja fólki í raun og veru hvert
ástandið væri. Þegar við vorum í
miðjum klíðum að undirbúa kynn-
ingarfundina okkar varð svo Glitnis-
hrunið mikla. Eftir það áttuðum við
okkur á því að ástandið myndi ekki
lagast.“
Það varð úr að Sigmundur tók
saman allsherjar aðgerðaáætlun og
kom henni á framfæri. „Hún virtist
skila litlu eins og flest annað.“ Einn-
ig höfðu breskir lögfræðingar sam-
band við Sigmund og félaga hans
sem hann þekkti frá fyrri tíð sem
sögðust gera ráð fyrir því að íslensk
stjórnvöld myndu grípa til varnar-
aðgerða og buðu fram aðstoð sína
við það. „Við komum þessum upp-
lýsingum einnig áleiðis en án ár-
angurs.“
Á þessum tíma fór hins vegar af
stað hröð atburðarás hjá Sigmundi
og félögum.
Hálfgerð leyniþjónusta
Eftir að Sigmundur hafði birst í
nokkrum sjónvarpsviðtölum hér-
lendis og unnið mikla vinnu hafði
maður að nafni Ólafur Elíasson
samband við hann og lýsti áhuga
á að stofna samtök fyrir alla þá
hópa sem sátu hver í sínu horni og
hneyksluðust á ástandinu, sem og
þeir gerðu. Samtökin In Defence of
Iceland litu dagsins ljós og unnu
samtökin hörðum höndum að því
að kynna málstað Íslands út á við.
Sigmundur segir til gamans að hóp-
urinn hafi verið eins og hálfgerð
leyniþjónusta.
„Fólk kom saman og hjálpaðist
að við að heyra í sérfræðingum alls
staðar að úr heiminum og fá góð ráð
og upplýsingar um ástandið sem við
reyndum að miðla áfram.
Við fórum í fjölda erlendra við-
tala og varð niðurstaða okkar sú
að erlendir fjölmiðlar vissu nánast
ekki neitt um ástandið og að íslensk
stjórnvöld hefðu ekki staðið sig í að
verja heiður Íslands. Út frá þessu
fór ég að blanda mér fyrir alvöru í
stjórnmálin.“
Áskorunin kom á óvart
Í desember skoraði hópur framsókn-
armanna á Sigmund að gefa kost á
sér til formennsku í Framsóknar-
flokknum. „Áskorunin kom mér á
óvart þar sem ég hef ekki verið virkur
þátttakandi í stjórnmálum, hafandi
ýmist búið erlendis eða starfað við
fjölmiðla síðastliðinn áratug.“
Í fyrstu fannst Sigmundi áskorun-
in mjög óraunhæfur kostur en áður
en hann vissi af fór áskorununum
fjölgandi. „Ég fékk símtöl frá fólki alls
staðar af á landinu sem hvatti mig til
að taka slaginn.“
Sigmundur viðurkennir að hon-
um hafi fundist mikið til þess koma
að fólk hafi haft svona mikla trú á
honum. „Eftir að hafa svo ráðfært
mig við fjölda flokksmanna ákvað ég
að gefa kost á mér.“
Framhaldið þekkja svo flestir. Sig-
mundur bar glæsilegan sigur úr být-
um eftir tveggja vikna kosningabar-
áttu. ,,Þetta var allt mjög óskipulagt
og sjálfsprottið. Fólk sem hafði trú á
þessu hér og þar um landið tók upp
á því hjá sjálfu sér að afla mér fylgis.
Í mörgum tilvikum vissi ég ekki einu
sinni af því.”
föstudagur 23. janúar 2009 27Helgarblað
missti trúna á
stjórnmálum
„Þegar ég var fimm ára
gamall var ég staðráðinn
í að verða forsætisráðherra.“
Með góða konu sér við hlið
sigmundur davíð ásamt
sambýliskonu sinni önnu
sigurlaugu Pálsdóttur.
Framhald á
næstu opnu