Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Page 54
Fjallagarpurinn Jökull Bergmann býður upp á nýja afþreyingu í íslenskri
útivist, þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga. „Skemmtileg og öðruvísi nýjung í framboði á
afþreyingu,“ segir Jökull en ferðirnar hefjast í vor.
föstudagur 23. janúar 200954 Lífsstíll
Lært að eLda yfir matnum Búið er að opna
nýjan nepalskan stað á Laugavegi þar sem gestum
gefst kostur á að læra að elda nepalskan mat um leið
og þeir snæða á veitingastaðnum. Í veitingasalnum er
sjónvarpsskjár með upptökum beint úr eldhúsinu. að
sögn eiganda staðarins er hann svo tilbúinn að svara
spurningum sem vakna á meðan borðað er. staðurinn
heitir Kitchen og var opnaður í síðustu viku.
Uppskrift úr Gestgjafanum:
Suðrænt á Þorranum
umsjón: KoLBrún páLÍna heLgadóttir, kolbrun@dv.is
„Þetta er skemmtileg og öðruvísi
nýjung í framboði á afþreyingu á Ís-
landi,“ segir fjallaleiðsögumaður-
inn Jökull Bergmann sem í vor ætl-
ar að bjóða upp á þyrluskíðaferðir á
Tröllaskaga í fyrsta skipti á Íslandi.
Það er óhætt að segja að kreppan
hafi lítil áhrif á Jökul en ferðirnar
eru ekki fyrir neinar nánasir. Þannig
kostar fjögurra daga ferð frá 4.500
dollurum upp í 6.500 dollara, eða frá
560 þúsund íslenskum krónum upp í
rétt rúmar 800 þúsund krónur.
Alveg þess virði
„Við byrjuðum að skoða þetta af al-
vöru síðastliðið vor. Þá gerðist það í
fyrsta skipti að það kom til landsins
þyrla sem hægt er að nota við þessa
vinnu. Ég fékk hingað sérfræðinga
frá Kanada þar sem við skoðuðum
þetta og tókum meðal annars upp
kynningarmyndband. Eftir að hafa
skoðað þetta vel komumst við að því
að það væri þess virði að gera frek-
ari tilraunir með þetta,“ segir Jökull
sem marga fjöruna hefur sopið sem
fjallaleiðsögumaður og eru fjöll-
in nánast hans annað heimili. Jök-
ull er eini Íslendingurinn sem hefur
starfsréttindi í evrópsku Ölpunum
en hann hefur meðal annars starfað
við fjallaleiðsögn í Afríku, Nepal og
Suður-Ameríku.
Sérstakar aðstæður
Kreppan hefur haft sitt að segja fyr-
ir almenning á Íslandi. Þrátt fyr-
ir það segir Jökull að ferðirnar séu
hugsaðar jafnt fyrir Íslendinga og
útlendinga. „Þetta er helvíti dýrt og
því vissulega jákvætt að fá erlenda
ferðamenn til að dæla gjaldeyri
inn í landið. Annars erum við mjög
samkeppnishæfir miðað við önnur
lönd þar sem boðið er upp á þyrlu-
skíðun. Aðstæðurnar á Íslandi gera
þetta líka mjög sérstakt. Það er nán-
ast hvergi þannig að þú getir skíðað
niður 1.200 metra langa brekku og
endað niðri í fjöru.
Þegar komið er fram á
þennan árstíma er líka
nánast hægt að skíða
allan sólarhringinn,“
segir Jökull.
Allt innifalið
Ferðirnar verða í boði
í einn mánuð, eða frá
1. maí til 1. júní. Máltíðir,
þjálfun og gisting á Klængs-
hóli eru innifalin í verðinu en
kjósi menn að vera lengur við
þyrluskíðun en í fjóra daga er hægt
að semja um lengri tíma. Það eina
sem menn þurfa að hafa með sér
er viðunandi skíðabúnaður og
góða skapið. Hægt er að nálg-
ast allar upplýsingar um þyrlu-
skíðunina á heimasíðu Jökuls,
Bergmenn.com, en þar er einnig
að finna fjölda ljósmynda frá
svæðinu
einar@dv.is
ferðir
ÞyrLuSkíðaferðir á
tröLLaSkaga
Fallegt umhverfi Það er varla
hægt að hugsa sér fallegra umhverfi
en tröllaskagann til skíðaiðkunar.
Mynd BergMenn.coM
göngugarpur jökull er þekktur
fjallaleiðsögumaður en hann er
maðurinn á bak við þyrluskíða-
ferðirnar á tröllaskaga.
Mynd BergMenn.coM
rjómaoStur í
matargerðina
rjómaost er hægt er að nota í
nánast hvers konar matargerð sem
er og gildir það jafnt ofan á brauð,
með kjöti, fiski, ávöxtum, kökum,
nachos-flögum og í fleiri smárétti.
Það er um að gera að láta hug-
myndaflugið ráða. dV gefur þrjár
uppskriftir að hvítlauksdressingu,
laxakæfu og ómótstæðilegum
kjúklingarétti.
HvítlAukSdreSSing
n 200 g hreinn smurostur
n 3 til 4 hvítlauksrif, smátt söxuð
n 1/2 búnt steinselja, smátt söxuð
n 1 dl mjólk eða rjómi
n svartur pipar
n sjávarsalt
lAxAkæFA
n 200 g smurostur
n 200 g reyktur lax
n 2 til 3 msk. sítrónusafi
n svartur pipar
setjið allt innihald í matvinnsluvél
og blandið vel saman. Laxakæfan
hentar einnig mjög vel sem
smáréttur, ofan á snittubrauð eða
ristað brauð. gott er líka að smyrja
henni á tortillakökur sem er rúllað
upp og skornar í bita. Verður þá að
setja tannstöngul á hvern bita til að
halda þeim uppvöfðum.
kJúklingABringur Með
HvítlAukSMAuki og kArt-
öFluM (Fyrir FJórA)
n 4 stk. kjúklingabringur, skornar
þversum í tvennt
n 4 stk. bakaðar kartöflur
n 1 uppskrift að hvítlauksdressing-
unni
n 2 stk. tómatar, skornir í sneiðar
n 200 g rifinn ostur
n 1 dl hvítlauksolía
n svartur pipar
n 2 dl fersk basilíka, smátt söxuð
skerið kartöflurnar í tvennt langsum,
setjið á plötu, dreypið ólífuolíu yfir
og kryddið með salti og pipar. Bakið
í ofni í 20 mínútur við 200 gráður.
skerið djúpa rauf í þykkari hluta
hvers bringuhelmings og fyllið með
1 til 2 matskeiðum af hvítlauks-
dressingunni. raðið bitunumí
eldfast mót. setjið tómatsneiðar á
hvern þeirra. dreypið hvítlauksolíu
yfir bringurnar, piprið og stráið að
lokum rifnum osti yfir kjúklinginn.
Lækkið ofninn í 180 gráður og
setjið kjúklinginn við hliðina á
kartöflunum og bakið í 20 mínútur
í viðbót. Borið fram með restinni af
dressingunni.
asdisbjorg@dv.is
matur&vín
Ekki eru allir sem kunna að meta hinn
alíslenska þorramat sem er á boðstól-
um víða um þessar mundir. Sumir
vilja súrar dýrshreðjar en aðrir ekki.
Fyrir þá sem eru lítið fyrir hreðjarn-
ar er um að gera að hafa það suðrænt
á þorranum og skella í mexíkóskan
partímat.
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
2 msk. olía
1 gulrót, fínt rifin
400 g nautahakk
1 dós (227 g) krydduð tómatsósa frá
hunt‘s
1 dós nýrnabaunir (u.þ.b. 400 g)
steikið lauk og hvítlauk í olíu við frekar
vægan hita þar til hann fer að verða glær.
Bætið gulrót út í og steikið í 1 mín. til
viðbótar. Bætið hakki á pönnuna og
steikið vel. setjið tómatsósu saman við
og látið malla aðeins áfram. hellið safa af
nýrnabaunum og bætið þeim í. hitið vel
í gegn.
1 poki tortillaflögur
100 g ostur
Sósa:
1 lárpera
1/2 dl sýrður rjómi
1 msk. sítrónusafi
salt og pipar
hitið ofninn í 200°C. stráið tortillaflögum á
smjörpappírsklædda ofnplötu eða fat sem
má fara í ofn. hellið hakksósunni yfir svo
hún þeki miðjuna en ekki alveg kantana.
stráið osti yfir og setjið í ofninn þar til ost-
urinn hefur bráðnað. Látið mesta hitann
rjúka úr réttinum. Blandið öllu saman sem
á að fara í sósuna og setjið síðan í toppa á
4-6 staði ofan á ostinn. Þið getið líka notað
tilbúið guacamole í krukku.
tortillur
tilvaldar fyrir þá sem
ekki vilja þorramat.