Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2009, Page 56
Aðdáendur Bruce Springsteen eiga
svo sannarlega von á góðu ári í ár.
Gamla kempan er að fara að senda
frá sér sína sextándu breiðskífu á
þriðjudaginn sem nefnist Working
on a Dream, vann til Golden Globe-
verðlauna fyrir titillag hinnar geysi-
vinsælu kvikmyndar The Wrestler
og ætlar að gefa lögin sín í gegnum
tölvuleikinn Guitar Hero.
Bruce Frederick Joseph Spring-
steen, einnig þekktur sem The Boss,
fæddist tuttugasta og þriðja sept-
ember 1949 og hefur á tónlistarferli
sínum meðal annars unnið til átján
Grammy-verðlauna, tvennra Gold-
en Globe-verðlauna og Óskarsverð-
launa. Hann hefur selt yfir sextíu og
fimm milljónir platna í Bandaríkjun-
um og yfir hundrað og tuttugu millj-
ónir um heim allan sem gerir hann
að einum af vinsælustu tónlistar-
mönnum heims.
Tók lán fyrir gítarnum
Þrettán ára gamall keypti Spring-
steen sinn fyrsta gítar á heila átj-
án dollara. Þremur árum síðar tók
móðir hans lán til að geta keypt fyr-
ir son sinn gítar af gerðinni Kent
sem í þá daga kostaði sextíu doll-
ara. Þess má geta að Bruce minntist
góðverksins í laginu The Wish.
Eftir það fór tónlistarferill Spring-
steens að rúlla fyrir alvöru. Fyrsta
hljómsveit hans var The Castiles sem
gaf út tvær plötur og eftir það var ljóst
að þessi ungi gítarleikari myndi slá í
gegn.
Árið 1972 var hljómsveit Spring-
steens, The E Street band, stofnuð en
hann hefur spilað með sveitinni allar
götur síðan. Meðal meðlima í sveit-
inni er eiginkona Bruce, Patti Scialfa.
Fimm stjörnu plata
Bruce hefur verið innblástur margra
frægra tónlistarmanna og hljóm-
sveita í gegnum tíðina. Meðal annars
The Killers, Bon Jovi, Kings of Leon,
U2, Pearl Jam og Rage Against the
Machine svo fáir séu nefndir.
Einn af helstu aðdéndum rokkar-
ans er nýkjörinn forseti Bandaríkj-
anna, Barack Obama, og tók Bruce
virkan þátt í kosningabaráttu kapp-
ans sem hefur jafnvel aukið á vin-
sældir þeirra beggja.
Síðasta breiðskífa Springsteens,
We Shall Overcome, kom út í apr-
íl árið 2006 og fékk nánast einróma
lof gagnrýnenda. Því þarf engan að
undra að mikil eftirvænting ríki eft-
ir Working on a Dream. Sem dæmi
má nefna að tímaritið Rolling Stone
hefur þegar dæmt plötuna og gefið
henni fimm stjörnur og samkvæmt
Amazon.com er þetta eftirsóttasta
óútkomna plata vefverslunarinn-
ar. Working on a Dream kemur út
þriðjudaginn tuttugasta og sjöunda
janúar og ætti enginn sannur rokkari
að láta hana framhjá sér fara.
krista@dv.is
fÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 200956 Tónlist
TöffaralegT Tvíeyki Nýjasta tvíeyki tónlistar-
bransans eru þeir Jack White og gamli töffarinn Seasick
Steve. Seasick Steve, sem tilnefndur er til BRIT-verðlaun-
anna, staðfesti í tilnefningapartíinu að hann væri að vinna
að verkefni með Jack White. „Ég ætla að hitta Jack White
til að taka upp bráðlega svo allt hefur gengið vel hingað
til,“ sagði hann. Þess má geta að Steve er elsti maðurinn til
að hafa verið tilnefndur til BRIT-verðlaunanna en kallinn er
orðinn sextíu og sjö ára.
UmSJóN: kRISTA hAll, krista@dv.is
Rokkgoðsögnin Bruce
Springsteen sendir frá
sér sína sextándu breið-
skífu eftir helgi, Work-
ing on a Dream. Tónlist-
armaðurinn er einn
áhrifamesti tónlistar-
maður heims og hefur
sjaldan verið vinsælli
en einmitt í dag.
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
sogæðakerfisins
Snyrtisetrið
Heilsuverndarstöðin (norður endi) l Barónsstíg 47 l 101 Reykjavík l Sími 533- 3100
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
l
l
l
l
l
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
Munið gjafakortin!
Óbreytt verð!
TILBOÐ
Draumurinn
Sjaldan verið vinsælli en nú
Bruce Springsteen sendir frá sér
sína sextándu breiðskífu eftir helgi.
tilbúinn