Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Side 4
miðvikudagur 11. febrúar 20094 Fréttir
Vill vera varafor-
maður áfram
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, fyrrverandi menntamálaráð-
herra, ætlar ekki að bjóða sig
fram til formennsku í Sjálf-
stæðisflokknum. Hún sækist
hins vegar eftir áframhaldandi
varaformennsku. Geir H. Haar-
de hættir sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins á landsfundi í
lok mars og alþingismaðurinn
Bjarni Benediktsson hefur þeg-
ar tilkynnt að hann muni gefa
kost á sér í formannskjöri. RÚV
greindi frá ákvörðun Þorgerðar
Katrínar fyrir skömmu og þar
kemur einnig fram að hún muni
sækjast eftir þingsæti í komandi
kosningum.
Stjórnarformenn
haldi áfram
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hefur beðið for-
menn bankastjórna Nýja Glitnis
og Nýja Kaupþings, þá Magn-
ús Gunnarsson og Val Valsson,
um að endurskoða ákvarðanir
sínar um að segja upp störfum
og gegna störfum sínum áfram í
það minnsta fram að aðalfund-
um bankanna í apríl. Magnús
Gunnarsson hjá Nýja Kaupþingi
og Valur Valsson hjá Nýja Glitni
sögðu sig úr bankaráðunum í
gær og sendu fjármálaráðherra
sameiginlegt bréf þess efnis.
Þar sögðu þeir að ný ríkisstjórn
hafi tekið við völdum og við það
verði eðlilega pólitískar áherslu-
breytingar og mannabreytingar.
Ráðherra brást við með því að
biðja þá að sitja áfram.
Kafara bjargað
Kafari var hætt kominn rétt utan
við höfnina í Garði í gærkvöld.
Hann var að koma að landi þegar
mikill straumur greip hann og
bar frá landi. Björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar voru kallaðar út klukkan 18.30.
Slöngubátur björgunarsveitarinn-
ar Ægis var fyrstur á staðinn og
með í för voru slökkviliðsmenn frá
BS. Maðurinn náðist úr sjónum
og reyndist í ágætu ásigkomulagi.
Hann var fluttur að landi þar sem
honum var komið í sjúkrabíl sem
fór með hann til skoðunar á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.
Organisti í mál
Jón Ísleifsson organisti hefur
stefnt Biskupsstofu vegna
túlkunar á einu ákvæði í
kjarasamningi sínum. Að
sögn lögfræðings Jóns telur
hann sig eiga rétt á að Bisk-
upsstofa borgi í lífeyrissjóð
eftir starfslok. Biskupsstofa
telur sig hins vegar hafa full-
efnt samninga og ekki þurfa
að greiða Jóni frekar.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á mánudaginn 25 ára karlmann í tveggja ára fang-
elsi fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega. Misnotkunin byrjaði þegar stúlkan
var rúmlega eins árs og stóð yfir í rúmlega tvö ár. Stúlkan er nú þriggja og hálfs árs
gömul og er á eftir jafnöldrum sínum í vitsmunaþroska. Sigríður Björnsdóttir hjá
Blátt áfram segir stærsta skaðann að búið er að brjóta niður traustið hjá stúlkunni.
SMÁBARN EYÐILAGT
EFTIR MISNOTKUN
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 25
ára karlmann í tveggja ára fangelsi
á mánudaginn fyrir kynferðisbrot
gegn dóttur sinni. Maðurinn var
einnig dæmdur til að greiða stúlk-
unni níu hundruð þúsund krónur í
miskabætur. Maðurinn hafði sam-
ræði og önnur kynferðismök við
dóttur sína, meðal annars með því
að sleikja kynfæri hennar, frá sumri
2006 fram í nóvember 2008. Brotin
áttu sér stað á heimili mannsins og
hófst misnotkunin þegar stúlkan var
aðeins rúmlega eins árs. Stúlkan er
tæplega fjögurra ára í dag og hefur
hlotið gífurlegan skaða af misnotk-
uninni.
Seinþroska miðað við jafnaldra
Í mati sálfræðinga í nóvember á síð-
asta ári kemur fram að málskiln-
ingur stúlkunnar virðist vera slakur.
Máltjáning hennar hafi verið tak-
mörkuð og hún eigi erfitt með að
skilja fyrirmæli og spurningar. Nið-
urstöður prófa sýndu að vitsmuna-
þroski stúlkunnar væri seinni en hjá
jafnöldrum hennar. Barnið minnt-
ist nánast ekkert á kynforeldra sína
og föðurömmu í þessu sálfræðimati
en þau höfðu áður verið henni náin.
Tengslin eru ennfremur hömlulaus
sem erfitt er að setja í samhengi við
raunverulegar aðstæður. Slíkt gæti
bent til misnotkunar eða vanrækslu
að sögn sálfræðinga.
Stúlkan sýndi einnig ótta sem
kom fram í svefni þannig að hún fékk
martraðir. Hún fróaði sér, sýndi kyn-
færum annarra óeðlilegan áhuga,
lék kynferðislega leiki með dúkkum
og notaði eigin orð yfir kynferðisleg-
ar athafnir.
Hristi bangsa við kynfærin
Á tímabilinu 24. október til 18. nóv-
ember fóru fram tvö könnunarviðtöl
og tvær dómsyfirheyrslur yfir barn-
inu í Barnahúsi. Í einu viðtali sagð-
ist hún „tyggja“ með pabba sínum
og sýndi hvað hún ætti við með
því að leggja tússpenna und-
ir rassinn og notaði annan
tússpenna til að sýna hvern-
ig hann fór fram og aftur hjá
kynfærum hennar.
Í öðru viðtali vildi hún
teikna typpi og þegar hún
var spurð hver ætti typp-
ið sagði hún að pabbi sinn
„gera það“. Þá var hún spurð
hvernig hún „tyggði“ með
pabba sínum og vildi stúlk-
an sýna það. Hún fór úr öllum
fötum nema nærfötum og fékk
viðtalandann niður á fjóra fætur
og ætlaði því næst að afklæða við-
talandann en var stöðvuð. Hún var
þá spurð hvernig hún „tyggði“. Þá
tók stúlkan niður nærbuxurnar, sett-
ist á gólfið og ætlaði að stinga fingr-
um í kynfæri sín en var stoppuð.
Í dómsyfirheyrslu var stúlk-
an spurð hvort hún ætti frænda og
sagði hún að hann væri að „tyggja“
hana og amma hennar hefði einnig
verið að „tyggja“ hana.
Í annarri dómsyfirheyrslu var
stúlkan spurð hvað pabbi hennar
gerði og þá sagði hún „svona“
og hristi bangsa við kynfæri
sín.
„Pabbi hennar er að tyggja
hana“
Stúlkan var tekin í neyðarvist frá 23.
október til 3. nóvember á síðasta ári.
Þar fróaði hún sér mörgum sinnum
á dag með fingrunum og þefaði síð-
an af þeim. Stúlkan fór í fóstur frá
3. til 18. nóvember sama ár. Fóstur-
foreldrarnir sögðu barnið hafa ver-
ið eirðarlaust og mikið á flökti. Hún
hafi talað mikið um typpi þegar hún
hafi farið í sturtu og sundlaugar.
Fósturmóður stúlkunnar virtist sem
barnið þekkti ekki hugtakið mamma
og pabbi því að hún hefði kallað fólk
úti í búð þessum nöfnum.
Núverandi fósturforeldrar stúlk-
unnar hafa verið með hana í fóstri
síðan 17. nóvember. Fósturforeldrar
hennar segjast þurfa að standa yfir
henni þegar hún fari í sturtu því hún
vilji troða öllu lauslegu inn í kynfæri
sín. Eitt sinn fór fósturfaðir henn-
ar með hana á snyrtistofu. Þar hékk
uppi á vegg mynd af nakinni konu
sem lá út af með óræðan svip. Þá
sagði stúlkan: „Pabbi hennar er að
tyggja hana.“
Allt traust brotið niður
Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram
telur stúlkuna eiga eftir að eiga við
gríðarlega erfiðleika að stríða allt sitt
líf þar sem traust stúlkunnar hefur
verið brotið niður.
„Það er búið að rífa og brjóta nið-
ur allt sem segir henni að hún eigi að
treysta. Hún á eftir að eiga erfitt það
sem eftir er lífsins með að mynda
traust við einstaklinga. Það er stærsti
skaðinn. Hún veit ekki muninn á
réttu og röngu og henni er kennt að
þetta sé eðlilegt. Í flestum tilvikum
er það einhver sem börnin þekkja og
treysta vel sem brýtur á þeim. Stúlk-
an á eftir að lifa við þetta það sem
eftir er. Þetta er ekki eitthvað sem
klárast,“ segir Sigríður sem vill brýna
fyrir foreldrum að fræða börnin sín.
„Börn sem verða fyrir ofbeldi
staðna í þroska. Þetta hefur gríðarleg
áhrif á andlegt líf og líðan. Við erum
ekki bara ábyrg fyrir okkar börnum
heldur öllum börnum í kringum
okkur. Við eigum að byrja fræðsl-
una þegar börnin eru ung og halda
henni áfram.“
Barnaverndarnefnd náði ekki
barninu
Allt frá því að stúlkan fæddist árið
2005 voru foreldrar hennar skjól-
stæðingar félagsmálayfirvalda en
þau eru bæði öryrkjar og hafa ekki
stundað vinnu. Strax eftir fæðingu
barnsins var talin ástæða til þess að
hafa eftirlit með því hvernig barn-
inu vegnaði sökum þess að báðir
foreldrar höfðu átt við mikil vanda-
mál að stríða um margra ára skeið.
Sálfræðingur var fenginn til að meta
forsjárhæfni þeirra í júní 2005. Meg-
inniðurstöður hans voru þær að
hann taldi stefnuleysi, geðsjúkdóma
og ýmsa andlega bresti einkenna
líf þeirra og hugsun þeirra væri of
óskýr og dómgreind slök, ekki síst
í tengslum við framtíð barnsins og
uppeldi þess.
Barnaverndarnefnd höfðaði mál
í febrúar 2007 á hendur foreldrun-
um þar sem gerð var sú krafa að þau
yrðu svipt forsjá yfir barninu en kraf-
an náði ekki fram að ganga. Foreldr-
ar stúlkunnar skildu í maí árið 2007
og fékk faðir stúlkunnar forsjá yfir
henni
Amman andlega búin á því
Faðir stúlkunnar sagði við yfirheyrsl-
ur að hálfbróðir hans og föðuramma
stúlkunnar hefðu hugsanlega mis-
notað hana. Hann taldi það síðar af
og frá en hálfbróðir hans er barn-
aníðingur og er búsettur í Bangkok.
Föðuramma barnsins hefur gætt
stúlkunnar mikið undanfarin ár.
Faðir stúlkunnar var handtekinn
í nóvember á síðasta ári. Við hús-
leit á heimili hans fundust kynlífs-
hjálpartæki. Við húsleit á heimili
föðurömmu barnsins fundust kyn-
lífshjálpartæki og tveir geisladisk-
ar með klámefni. Í stofu hennar
fannst myndbandsspóla sem sýnir
hinn son hennar í kynmökum við
óþekkta konu. Amma stúlkunnar
neitaði staðfastlega að hafa brotið
gegn stúlkunni.
DV hafði samband við ömmu
stúlkunnar en hún vildi sem minnst
segja um dóminn.
„Mér hefur hvorki liðið vel né líð-
ur vel núna. Ég er andlega búin og ég
kæri mig ekki um að ræða þetta.“
liljA KAtrín gunnArSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Stúlkan á eftir að lifa
við þetta það sem eftir
er. Þetta er ekki eitt-
hvað sem klárast.“
Brotin sjálfsmynd
Stúlkan hefur beðið varanlegan skaða
eftir grófa misnotkun föður hennar sem
hófst þegar hún var rétt rúmlega eins ár.
brot föðurins á henni hafa hamlað þroska
hennar en þar stendur hún jafnöldrum
sínum að baki. Sviðsett mynd.
myndin er SviðSett
Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram
Telur stúlkuna eiga eftir að eiga við
gríðarlega erfiðleika að stríða allt sitt líf þar
sem traust hennar hefur verið brotið niður.