Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2009, Blaðsíða 16
miðvikudagur 11. febrúar 200916 Ættfræði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra Ásta Ragnheiður fæddist í Reykjavík 16.10. 1949. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1969, stundaði nám í félags- vísindum og ensku við HÍ 1969-73, þýskunám í Lindau í Þýskalandi 1967, leiðsögunám 1972 og 1979 og stjórnunarnám við Endurmenntun- arstofnun HÍ og Iðntæknistofnun 1987, 1990 og 1993-94. Ásta Ragnheiður var flugfreyja hjá Loftleiðum 1969-72, plötu- snúður í Glaumbæ og víðar 1969- 74, kennari við Gagnfræðaskólann á Hellu 1974-76 og við Fiskvinnslu- skólann 1976-79, starfsmaður barnaársnefndar vegna barnaárs Sþ. 1979, var dagskrárgerðarmaður hjá RÚV 1971-90 og umsjónarmað- ur fjölda útvarps- og sjónvarpsþátta RÚV og þáttarins Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 1983, fararstjóri erlendis fyrir Ferðaskrifstofu Kjartans Helga- sonar, Útsýn, Veröld, Heimsklúbb Ingólfs og Úrval-Útsýn 1980-90, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins 1990-95, var alþm. Reykvík- inga fyrir Þjóðvaka, Jafnaðarmenn og Samfylkingu 1995-2003 og hefur verið alþm. Reykjavíkur suðurkjör- dæmis fyrir Samfylkingu frá 1999. Ásta Ragnheiður sat í Útvarps- ráði 1987-95, í starfshópi um end- urskoðun heilbrigðislöggjafar 1988, í nefnd um eflingu heimilisiðnaðar 1991-93, í stjórn Landssambands framsóknarkvenna 1983-89, í stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur 1983-94, í miðstjórn Framsóknar- flokksins 1984-95, og framkvæmda- stjórn flokksins 1986-95, í stjórn Friðarhreyfingar kvenna 1985-88, í undirbúningsnefnd fyrir alþjóðlegu kvennaráðstefnuna Global Forum for Women í Dublin 1992, í full- trúaráði Sólheima frá 1993, í stjórn Heilsugæslustöðvar Vesturbæj- ar, Miðbæjar og Hlíðahverfis 1994, í stjórn Regnbogans, félags um Reykjavíkurlista 1994, sat í stjórn Félags dagskrárgerðarmanna, í nefnd um endurskoðun almanna- tryggingalaga 1995. Í nefnd um for- gangsröðun í heilbrigðisþjónustu 1995-98, sat í stýrihópi geðræktar- verkefnis landlæknisembættisins, Geðjálpar og Landspítala - háskóla- sjúkrahúss 2000-2003, í ráðgjafa- hópi samgönguráðherra um stefnu- mótun í ferðamálum 2003-2004, í verkefnisstjórn um heilsufar kvenna á vegum heilbrigðisráðuneytis- ins 2001-2007, var formaður verk- efnisstjórnar Straumhvarfa, átaks- verkefnis fyrir geðfatlaða, á vegum félagsmálaráðuneytisins 2007. Varaformaður nefndar á vegum heilbrigðisráðherra um greiðslu- þátttöku almennings í heilbrigð- iskerfinu frá 2007 og á sæti í fram- kvæmdanefnd hennar, í stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinn- ar frá 2007, varaformaður nefndar þingmannasamtaka NATO um mál- efni Miðjarðarhafsríkja og Miðaust- urlanda frá 2008. Ásta Ragnheiður sat í heil- brigðis- og trygginganefnd Alþing- is 1995-2003 og 2004-2007, sam- göngunefnd 1995-99 og 2003-2004, iðnaðarnefnd 1999-2000 og 2003- 2005, félagsmálanefnd 2000-2003 og 2007, félags- og tryggingamála- nefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2005-2007, kjörbréfanefnd 2007-, utanríkismálanefnd 2007-2009, sat í Íslandsdeild Vestnorræna ráðs- ins 1995-99, sat í Íslandsdeild ÖSE- þingsins 1999-2003, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2003-2007 og í Ís- landsdeild NATO-þingsins frá 2007. Hún var varaforseti Alþingis 2007-2009. Fjölskylda Ásta Ragnheiður giftist 29.12. 1973, Einari Erni Stefánssyni, f. 24.7. 1949, félagsfræðingi og framkvæmda- stjóra. Hann er sonur Stefáns Þórð- ar Guðjohnsen, f. 29.11. 1926, d. 24.9. 1969, lögfræðings, og Guðrún- ar Grétu Runólfsdóttur, f. 5.12. 1928, fyrrv. skrifstofumanns hjá Þjóðhags- stofnun. Börn Ástu Ragnheiðar og Ein- ars Arnar eru Ragna Björt, f. 11.12. 1972; Ingvi Snær, f. 10.3. 1976. Systkini Ástu Ragnheiðar eru Guðrún, f. 22.12. 1959, félagsfræð- ingur; Ragnar, f. 9.10. 1956, efna- verkfræðingur; Bjarni, f. 9.12. 1960, viðskiptafræðingur. Foreldrar Ástu Ragnheiðar: Jó- hannes Bjarnason, f. 18.7. 1920, d. 8.6. 1995, verkfræðingur, og k. h., Margrét Sigrún Ragnarsdóttir, f. 7.11. 1924, húsmóðir. Ætt Jóhannes var sonur Bjarna, alþm. og ráðherra á Reykjum í Mos- fellssveit, bróður Þórdísar, móður Gunnars Bjarnasonar ráðunautar. Bjarni var sonur Ásgeirs, b. í Knarra- nesi Bjarnasonar, b. þar Benedikts- sonar. Móðir Bjarna ráðherra var Ragnheiður, systir Sigríðar, ömmu Hallgríms Helgasonar tónskálds. Ragnheiður var dóttir Helga, b. í Vogi, bróður Ingibjargar, langömmu Kristjáns Eldjárn forseta. Helgi var sonur Helga, alþm. á Vogi Helga- sonar. Móðir Jóhannesar var Ásta, systir Láru, ömmu Láru Margrétar Ragn- arsdóttur, fyrrv. alþm. Ásta var dóttir Jóns, skipstjóra í Reykjavík Þórðar- sonar, skipasmiðs í Engey og vita- varðar í Gróttu Jónssonar. Móðir Jóns var Guðrún Guðmundsdóttir frá Hlíðarhúsum í Reykjavík. Móðir Ástu var Vigdís, systir Þóru, ömmu Bergs Jónssonar rafmagnseftirlits- stjóra. Vigdís var dóttir Magnúsar, b. í Miðseli í Reykjavík Vigfússon- ar, b. á Grund í Skorradal Gunnars- sonar, bróður Jóns á Eyri, afa Jóns Baldvinssonar, alþm., og formanns Alþýðuflokksins og ASÍ, og afa Jóns Auðuns alþm. afa Auðar Auðuns, ráðherra og borgarstjóra. Móðir Magnúsar var Vigdís Auðunsdótt- ir, pr. á Stóru-Völlum Jónssonar, bróður Arnórs í Vatnsfirði, langafa Hannibals Valdimarssonar, ráð- herra og formanns Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, föður Jóns Baldvins, fyrrv. ráðherra og for- manns Alþýðuflokksins. Margrét Sigrún er dóttir Ragnars, bryta í Hressingarskálanum Guð- laugssonar en systir Guðlaugs var Jóhanna, amma Harðar Sigurgests- sonar, fyrrv. forstjóra Eimskips. Guð- laugur var sonur Jóns, b. í Hreiðar- skoti á Stokkseyri, bróður Þorsteins, langafa Berthu, móður Markúsar Arnar Antonssonar sendiherra og fyrrv. borgarstjóra. Þorsteinn var einnig langafi Harðar Ágústssonar, listmálara og húsasagnfræðings, og Þorsteins, föður Víglundar forstjóra. Móðir Jóns í Hreiðarskoti var Stein- unn Jónsdóttir. Móðir Steinunnar var Halla Gísladóttir. Móðir Höllu var Sigríður Ólafsdóttir, systir Mar- grétar, langömmu Ágústs, afa Ól- afs Skúlasonar biskups. Sigríður var dóttir Marínar Guðmundsdóttur, ættföður Kópvatnsættar Þorsteins- sonar. Móðir Margétar var Guðrún, systir Vilhjálms, skálds frá Skáholti. Guðrún var dóttir Guðmundar, í Skáholti Guðmundssonar, og Sigur- veigar Einarsdóttur. Jón Trausti var skáldanafn Guð- mundar Magnússonar sem fæddist á Rifi á Sléttu, sonur Magnúsar Magn- ússonar, bónda á Hrauntanga, og k.h., Guðbjargar Guðmundsdóttur húsfreyju. Jón var fimm ára er hann missti föður sinn, lenti á sveit og ólst upp á mestu harðindaárum 19. ald- ar. Hann naut engrar skólagöngu í æsku en stundaði almenn störf til lands og sjávar frá unga aldri. Er Jón var um tvítugt lærði hann prentverk í prentsmiðjunni Austra á Seyðisfirði, var fróðleiksfús og stundaði sjálfs- nám af miklum kappi, einkum um söguleg efni. Þá fór hann til Kaup- mannahafnar og ferðaðist um Mið- Evrópu til að kynna sér lönd og sögu álfunnar. Jón stundaði prentverk á Akureyri og síðan hjá Ísafoldarprentsmiðju og Gutenberg í Reykjavík 1904-1914 er hann snéri sér alfarið að ritstörfum og skrifstofustörfum. Jón hóf ungur að yrkja en var fá- lega tekið og fékk slæma dóma fyr- ir útgefin ljóð sín. Hann tók sér þá skáldanafnið Jón Trausti og sendi frá sér skáldsöguna Halla, sem út kom 1906. Sögunni var vel tekið, seld- ist vel og fékk góða dóma, jafnvel frá þeim sem áður höfðu gagnrýnt hvað harðast skáldskap Guðmundar Magnússonar. Síðan rak hver sagan aðra en þekktustu skáldsögur Jóns eru Halla og heiðarbýlið og Anna frá Stóruborg. Skáldsögur Jóns Trausta eru í vissum skilningi fyrirmyndir sagnfræðilegra skáldverka höfunda á borð við Halldór Laxnes og Guð- mund G. Hagalín. Jón Trausti lést úr spönsku veikinni í Reykjavík 1918. Jón Trausti f. 12. febrúar 1873, d. 18. nóvember 1918 „Konan verður einnig fertug á árinu og þar af leiðandi sláum við veislu- höldunum aðeins á frest og sam- einum þau svo með einni glæsilegri garðveislu í sumar,“ segir afmælisbarn dagsins, Ragnar Þór Valdimarsson, þegar spurt er um plön dagsins. „Þá verður grillaður heill skrokkur, tekið vel á móti vinum og vandamönnum og kannski spilað á einn kassagítar eða svo, við hlökkum mikið til.“ Ragnar sem fagnar fergugsafmæli sínu í dag segist samt sem áður ætla að taka sér frí í tilefni dagsins til að dytta að húsinu og njóta þess að vera heima með fjölskyldunni en Ragnar státar af góðri eiginkonu og fjórum börnum. Hann segir tilfinninguna sem fylgi því að eldast ekkert vera nema góða. „Þetta er allt hið besta mál.“ Ragnar segist þó ekki vera mjög mikið af- mælisbarn í eðli sínu og ekki hafa lagt það í vana sinn að halda stórar veislur. „Vissulega hef ég átt góðar stundir með mínum nánustu á þess- um góðu dögum en það hefur ekki farið mikið fyrir stórum partíum.“ Þegar blaðamaður spyr Ragn- ar hvers hann óski sér í afmælisgjöf kemur örlítið hik á hann en svo við- urkennir hann loks að draumur- inn sé að eignast góðan Gipson-raf- magnsgítar. „Mig langar aðeins að rifja upp gömlu taktana í bílskúrn- um þar sem við strákarnir spiluð- um stundum saman. Aldrei að vita nema að bílskúrsbandið verði bara endurvakið í kjölfarið,“ segir Ragnar og hlær. Ragnar starfar sem tölvunar- fræðingur en viðurkennir að eins og flestir smástrákar hafi hann átt stóra drauma. „Ég ætlaði lengi vel að verða vísindamaður og ætli sá draumur hafi ekki bara þróast út í tölvurnar. Einnig sá ég atvinnumennskuna í knattspyrnu í hillingum eins og flest- ir aðrir guttar. Eitt stendur samt upp úr, þegar ég hugsa til baka, og það er draumurinn um að gerast geimfari. Ég viðurkenni þó að áhuginn á því hefur dvínað með árunum og ég læt mér nægja að horfa upp í stjörnu- bjartan himininn af og til,“ segir af- mælisbarnið að lokum. Merkir Íslendingar Ragnar Þór Valdimarsson er fertugur í dag: dreymir um rafmagnsgítar 30 ára n Hákon Arason Laugavegi 19, Reykjavík n Carlos Naya de Luis Strandgötu 21, Eskifjörður n Amir Mulamuhic Spóahólum 20, Reykjavík n Hanna Guðrún Stefánsdóttir Hverfisgötu 17, Hafnarfjörður n Már Valþórsson Klausturstíg 1, Reykjavík n Dögg Guðmundsdóttir Drekavogi 4, Reykjavík n Sigurður Örn Sigurbjörnsson Eyjahrauni 32, Þorlákshöfn n Hemerson Jose Silva Da Luz Skipholti 45, Rey- kjavík n Marcin Arkadiusz Kwapisz Samtúni 38, Reykjavík n Bergþóra Ragnarsdóttir Stífluseli 9, Reykjavík n Berglind Hauksdóttir Fossvegi 8, Selfoss n Indriði Þór Einarsson Grettisgötu 80, Reykjavík n Kristján Ketill Stefánsson Eggertsgötu 18, Rey- kjavík 40 ára n Ragnar Þór Valdimarsson Grenimel 10, Reykjavík n Arna Ósk Harðardóttir Sandbakka 15, Höfn n Olga Guðrún B Sigfúsdóttir Úthlíð 9, Reykjavík n Kjartan Glúmur Kjartansson Stekkjarbrekku 11, Reyðarfjörður n Gullveig Unnur Einarsdóttir Frostaþingi 7, Kópa- vogur n Katrín Elva Karlsdóttir Snægili 4, Akureyri n Aldís Ingimarsdóttir Vættaborgum 69, Reykjavík n Björn Stefán Hilmarsson Ásabraut 10, Grindavík n Hermann Hermannsson Gnitakór 12, Kópavogur n Ingibjörg Pétursdóttir Bakkastöðum 159, Rey- kjavík n Guðbjörg F Guðmundsdóttir Heiðarbóli 17, Rey- kjanesbær n Margrét Hallgrímsdóttir Urðarbraut 13, Garður 50 ára n Mendanita Eyrún Cruz Fjólugötu 14, Akureyri n Bjarki Bjarnason Seljalandsvegi 4, Ísafjörður n Berglind Björk Jónasdóttir Þorláksgeisla 35, Reykjavík n Sigríður Nanna Sveinsdóttir Huldubraut 34, Kópavogur n Anna Atladóttir Baugstjörn 23, Selfoss n Sigurjón Gunnarsson Klapparholti 5, Hafnar- fjörður n Kári Guðmundsson Akraseli 7, Reykjavík n Esther Birgisdóttir Áshamri 46, Vestmannaeyjar n Þórhildur Guðmundsdóttir Áshamri 13, Vest- mannaeyjar n Unnur Ósk Kristjónsdóttir Mýrdal 3, Borgarnes n Halldór Jónasson Heiðarvegi 33, Reyðarfjörður n Jón Erlingur Jónasson Fornhaga 23, Reykjavík n Sólveig Brynjarsdóttir Stafholti 12, Akureyri n Sigrún Halldórsdóttir Hraunbæ 196, Reykjavík n Sigurður Kristjánsson Faxabraut 41d, Reykjanes- bær 60 ára n Haukur Gunnarsson Norðurbrún 22, Reykjavík n Ásta Sigurðardóttir Böðvarsgötu 6, Borgarnes n Óli Björn Gunnarsson Garðhúsum 8, Reykjavík n Ólafur Jakobsson Keilusíðu 7f, Akureyri n Þórir Jakobsson Álftamýri 58, Reykjavík n Björgvin Björgvinsson Gerðhömrum 40, Reykjavík n Elís Björn Klemensson Stafnesvegi 4, Sandgerði n Elín Pálsdóttir Álfkonuhvarfi 9, Kópavogur n Guðrún Osvaldsdóttir Traðarbergi 1, Hafnarfjörður n Sigurlín Jóhannsdóttir Langagerði 27, Reykjavík n Bent Frisbæk Kristnibraut 6, Reykjavík 70 ára n Ragnhildur Steinbach Háaleitisbraut 29, Rey- kjavík n Sigurrós Jónsdóttir Víðilundi 20, Akureyri n Karl Ketill Arason Hringbraut 55, Reykjanesbær n Anna Aðalsteinsdóttir Arnarhrauni 22, Hafnar- fjörður n Viggó A Jónsson Álfheimum 9, Reykjavík n Ragnheiður Stephensen Brekkutanga 23, Mos- fellsbær 75 ára n Ingibjörg Eiríksdóttir Nielsen Víkurströnd 1, Seltjarnarnes n Elísa Dagmar Benediktsdóttir Hjallavegi 5b, Njarðvík n Sólbjört Gestsdóttir Grenilundi 12, Garðabær 80 ára n Auðunn Bergsveinsson Gullsmára 11, Kópavogur n Steinunn Stephensen Sautjándajúnítorgi 7, Garðabær n Sigríður Margrét Eiríksdóttir Fróðasundi 9, Akureyri 85 ára n Rósa Kemp Þórlindsdóttir Barrholti 7, Mos- fellsbær Til haMingju Með afMælið! fólk Í fréTTuM Heima í dag ragnar ætlar að dytta að húsinu í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.