Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Blaðsíða 4
föstudagur 20. mars 20094 Fréttir Sandkorn n Þorvaldur Gylfason hag- fræðingur og Anna Karitas Bjarnadóttir, kona hans, lögðu 101 Skugga að velli í Hæstarétti á fimmtudag. Fasteignafélagið var dæmt til að greiða hjón- unum 5,3 milljónir króna vegna galla og skemmda á íbúð þeirra í einum turn- anna við Lindargötu í Skugga- hverfi. Hæstiréttur hækkaði bæturnar um rúma milljón frá því sem Héraðsdómur Reykja- víkur ákvað í sínum úrskurði. Bæturnar eru þó sýnu lægri en þær rúmu tólf milljónir sem Þorvaldur og Anna Karitas kröfðu félagið um. n Franklin Kristinn Stiner, sem varð þekktur undir nafninu Franklin Steiner, þegar hann var talinn meðal umsvifa- mestu fíkniefnasala lands- ins tapaði meiðyrðamáli sínu gegn Sigurjóni M. Egilssyni og Trausta Hafsteinssyni vegna skrifa Blaðsins um feril Stein- ers. Franklin taldi vegið að æru sinni með umfjöllun um fíkni- efnaviðskipti og náin tengsl við lögregluna og krafðist þess að fá milljón í bætur frá báðum aðilum. Hæstiréttur komst að sömu niðurstöðu og Héraðs- dómur Reykjavíkur um að ekk- ert væri út á umfjöllunina að setja. Þess vegna varð Franklin að sætta sig við að greiða þeim Sigurjóni og Trausta tæpa millj- ón króna til að standa straum af lögfræðikostnaði þeirra vegna málshöfðunar Franklins. n Bjarni Harðarson, þingfram- bjóðandi og fyrrverandi þing- maður, heldur áfram baráttu sinni gegn Fréttablað- inu og nú síðast með því að birta á bloggsíðu sinni sam- skipti sín við Berg- stein Sig- urðsson, blaðamann Frétta- blaðsins, um hvaða greinar fáist birtar og hverjar ekki. Bjarni er ekkert að skafa utan af því og fullyrðir að meira að segja gömlu flokksblöðin hafi ekki stundað álíka ritskoðun og Fréttablaðið geri nú. Hefur eftir það upprifist hin fjörug- asta ritdeila Bjarna annars vegar og Bergsteins og Kol- beins Óttarssonar Proppé, blaðamanns á Fréttablaðinu, hins vegar og ljóst að himinn og haf skilja að upplifun þeirra á blaðinu. Stakir ljósatímar Verð frá 450. – Selásbraut 98 - 110 Reykjavík Sími: 577 3737 inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif- stofustjóri Íþrótta- og tómstunda- „Við lítum svo á að börnin séu að taka þátt í formlegu frístunda- starfi á frístundaheimilunum en þar fer fram margs konar starf- semi sem er sniðin að aldri þeirra og þörfum. Þá taka ekki öll börn sem sækja frístundaheimilin þátt í öðru frístundastarfi og þótti ástæða til að gefa foreldrum þeirra möguleika á að nýta kortið til að greiða niður dægradvölina. Það skal þó tekið fram að full vistun á frístundaheimili kostar um 8.000 Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar í úrvali Séra gunnar bíður dómS kirkjunnar Séra Gunnar Björnsson hefur verið sýknaður í Hæstarétti af ákærum fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum fæddum árið 1991 og 1992. Héraðs- dómur Suðurlands hafði áður sýknað Gunnar af ákærunum. Séra Gunnar var ákærður í tveimur liðum. Í fyrsta lið fyrir að hafa framið kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa faðmað aðra stúlk- una og strokið henni um bakið utan- klæða og látið þau orð falla að honum liði illa og að straumarnir streymdu úr líkama hans við það faðma hana. Gunnar hefur ekki sagst hafa látið þessi orð falla heldur hafi hann sagt: „Gefðu mér kraft.“ Hæstiréttur taldi að þarna stæði orð gegn orði. „Þú ert alltaf jafn- indæl og elskuleg“ Í öðrum ákæruliðnum var honum gefið að sök að hafa faðmað hina stúlkuna, kysst hana nokkrum sinn- um á kinnina, reynt að kyssa hana á munninn og látið þau orð falla að hann væri skotinn í henni og hún væri falleg. Gunnar viðurkenndi að hafa faðmað hana og kysst hana með kossi á hvora kinn, kossarnir hafi hins vegar verið tveir og hann hafi ekki reynt að kyssa hana á munninn. Hann hafi hins vegar óskað henni til hamingju með sigur í söngvakeppni og sagt: „Þú ert alltaf jafnindæl og elskuleg.“ Frásögn stúlkunnar var hins vegar á þá leið að hann hefði haldið mjög fast utan um hana og ætlað að kyssa hana á munninn „En hann strauk varirnar, náði samt ekkert að kyssa mig alveg af því ég færði mig svona frá, svo kyssti hann mig nokkrum sinnum á hina kinnina, og hélt svo lengur utan um mig og sleppti mér svo alveg bara,“ sagði hún. Gunnar hefði svo sagt við hana: „Ég er alveg ofsalega skotinn í þér, þú ert ofsalega falleg.“ Biskup metur stöðuna „Við eigum eftir að fara yfir dóminn og munum bregðast við í framhaldi af því. Við viljum því ekkert segja um þetta fyrr en við erum búnir að skoða nákvæmlega hvernig þetta liggur,“ segir Árni Svan Daníelsson, upplýs- ingafulltrúi Biskupsstofu. Árni segist reikna með að niðurstaða muni liggja fyrir á allra næstu dögum. Í dómsorði Hæstaréttar segir að háttsemi Gunnars sem var talin sönnuð, að hann hafi faðmað stúlk- urnar og jafnframt strokið annarri þeirra á bakið, utan klæða og kysst hina á sitt hvora kinnina, hafi ekki verið refsiverð. Hæstiréttur féllst ekki á að Gunnar hefði sýnt stúlkunum yf- irgang, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi, sært þær eða móðgað. Óvíst um endurkomu „Þetta er algjörlega í höndum bisk- ups hvað verður,“ segir Eysteinn Ó. Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju, aðspurður hvort séra Gunnar muni snúa aftur til starfa sem sóknarprestur. Eysteinn segist hafa reiknað með því að málið færi svona en segir að sóknarnefndin hafi aldrei feng- ið nein svör frá Biskupsstofu um hvernig tekið yrði á því færi svo að Gunnar yrði sýknaður. „Við erum því í óvissu eins og allir aðrir,“ segir Ey- steinn. Aðspurður hvort Eysteinn sé sátt- ur með að málinu skuli vera lokið seg- ir hann: „Þetta er búið að vera mjög þrúgandi að hafa þetta mál í gangi og maður var alltaf að bíða eftir því að það kæmi einhver lokaniðurstaða. Nú bíður maður bara eftir framhald- inu og sér til hvað gerist.“ Séra Gunnar vildi ekki tjá sig um niðurstöðu Hæstaréttar þegar DV hafði samband við hann í gær og vís- aði á lögmann sinn Kristin Bjarna- son. Kristinn segir að þessi niður- staða hafi í raun verið óumflýjanleg. „Þetta var viðblasandi að mínu mati að þetta yrði niðurstaðan.“ valGEIR ÖRN RaGNaRSSON OG EINaR ÞÓR SIGuRðSSON blaðamenn skrifa: valgeir@dv.is og einar@dv.is „Þetta var viðblasandi að mínu mati að þetta yrði niðurstaðan.“ Hæstiréttur Íslands sýknaði í gær séra Gunnar Björnsson, sóknarprest á Selfossi, af ákærum um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum úr sókninni. Ekki þótti sýnt að hátt- semi Gunnars væri refsiverð. Hann klappaði stúlku á bakið og faðmaði hana og kyssti hina á báðar kinnar. Biskupsstofa metur nú hvort Gunnar snúi aftur til starfa. Séra Gunnar Björnsson séra gunnar var ákærður í tveimur liðum en sýknaður af báðum í Hæstarétti Íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.