Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Side 6
föstudagur 20. mars 20096 Fréttir Sandkorn n Samfylkingarfólk varpar önd- inni léttar nú þegar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra hefur gefið út að hún sé reiðubúin að gerast formaður flokksins um skeið. Jóhanna hefur þar með látið undan mikl- um þrýst- ingi sam- herja sinna sem ótt- uðust for- ystukreppu tæki hún ekki við af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Jóhanna verður þar með þriðji formaðurinn í tæplega tíu ára sögu Samfylk- ingarinnar. Við stofnun flokks- ins vildu margir fá Jóhönnu sem formann en aðrir sögðu hana of þvera og ákveðna til að gegna slíku embætti. Nú eru hins vegar breyttir tímar og það sem eitt sinn var álitið galli er nú metið sem hinn mesti kostur. n Félagar í Samfylkingunni höfðu ekki bara ástæðu til að fagna formannsframboði Jóhönnu Sigurðar- dóttur á fimmtudag heldur líka niðurstöð- um nýrrar skoðana- könnunar sem sýndi flokkinn með 31 prósents fylgi og vinstriflokkana með drjúgan meirihluta þingsæta. Guðjón Arnar Kristjáns- son og aðrir forystumenn og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins hljóta hins vegar að fara að örvænta um fram- tíð flokksins sem nú mælist með minna fylgi en öll önnur framboð, þar á meðal nýju framboðin. Flokkurinn hefur oft mælst með lítið fylgi en sennilega aldrei jafnlítið og nú. n Sérstaki saksóknarinn Ólaf- ur Þór Hauksson hefur ekki átt sjö dagana sæla að undan- förnu. Bæði er að hans bíður erfitt starf og svo hitt að fjöl- margir eru þeirrar skoðunar að hann sé afskaplega lítið farinn að gera. Og ekki kætast menn þegar í ljós kemur að hann hefur ekki haft frumkvæði að neinni rannsókn heldur beðið eftir ábendingum frá öðrum. Þetta fer mjög fyrir brjóstið á Páli Ásgeiri Ásgeirssyni sem skrifar á bloggi sínu: „Ég hlýt náttúrulega að spyrja eins og afgangurinn af þjóðinni: Hvern andskotann er þessi sveitasýslumaður eiginlega að þvælast upp á dekk?“ STRAUM BLIK Raflagnir, dyrasími, töfluskipti. Bjóðum upp á ástandsskoðun á raflögnum í eldra húsnæði með tillögum um úrbætur án skuldbindinga. Löggiltur rafverktaki S.: 663 0746 fridhelgi@internet.is Yfir tvö þúsund og þrjú hundruð manns vilja lögleiða og skattleggja kannabisefni á Ís- landi en hópur þess efnis var stofnaður á Facebook fyrir fjórum dögum. Ólafur Skorrdal skáld stofnaði hópinn en hann hefur lengi talað fyrir lögleiðingu kannabiss. Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir, fjölmiðlafulltrúi hópsins, segir lögleiðingu tímaspursmál. ÚT ÚR KREPPU MEÐ KANNABISEFNUM Kannabisefni voru bönnuð hér á landi með lögum sem tóku gildi 11. júní árið 1974. Lítið hefur verið rætt um lögleiðingu efnanna fyrr en nú. Yfir tvö þúsund og þrjú hundr- uð manns hafa nú lýst því yfir á hinni vinsælu Facebook-síðu, á að- eins fjórum dögum, að þau vilji lög- leiða kannabisefni og skattleggja neysluna. Þannig mætti bjarga fjár- hag heilbrigðiskerfisins, lögregl- unnar og Fangelsismálastofnunar. Þetta segir Kleópatra Mjöll Guð- mundsdótir, fjölmiðlafulltrúi hóps- ins, en hún segir gríðarlega fjár- muni fara framhjá ríkissjóði. „Markmið hópsins er að vekja athygli á því ómælda fé sem fer fram hjá ríkissjóði. Þetta fé er hægt að nota til margra þarfra hluta,“ seg- ir Kleópatra Mjöll. Vilja frjálsa umræðu Kleópatra Mjöll segir upplýsinga- flæði um kosti og galla kannabiss hafa staðnað og að það hafi verið þannig í mörg ár. „Skoðanir fólks eru margar hverjar byggðar á bábiljum sem eiga engar stoðir í raunveruleik- anum og þar af leiðandi brýnt að opna fyrir frjálsa umræðu og án áróðurs. Einnig viljum við vekja athygli á því að fíkn ætti að með- höndla af læknum og hjúkrunar- fólki en ekki með lögregluaðgerð- um,“ segir Kleópatra Mjöll sem vill undirstrika að það sé fullt af fólki sem notar kannabis án þess þó að vera ánetjað því. „Ekki má gleyma að til eru marg- ir sjúklingar sem gætu notið góðs af þessari plöntu. Til að mynda gigt- ar- og krabbameinssjúklingar.“ Auðfáanlegt kannabis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið ótrúlegt magn af kanna- bisplöntum á ýmsum stigum rækt- unar að undanförnu. Plönturnar skipta hundruðum og því ljóst að gríðarlegt magn af kannabisefnum er nú þegar í umferð hér á landi. Kleópatra Mjöll segir aðgengið að slíkum efnum mjög gott – eiginlega of gott. „Já, það er eiginlega of auðvelt að redda sér kannabisefnum hér á Íslandi miðað við til dæmis Hol- land. Í Hollandi er mun erfiðara fyr- ir unglinga yngri en 18 ára að nálg- ast kannabis en á Íslandi. Þá eru líka harðar refsingar fyrir þau kaffihús sem brjóta lögin, þeim er hreinlega lokað án fyrirvara,“ segir Kleópatra Mjöll og bendir á að með lögleið- ingu sé hægt að hafa eftirlit. „Með því að lögleiða efnið get- um við verið með eftirlit á sölunni líkt og gert er með áfengi og tóbak.“ Áfengi hættulegra Kleópatra bendir einnig á að rann- sóknir hafi sýnt fram á að áfengi sé hættulegasta vímuefnið sem notað er í dag. „Hegðun manna undir áhrif- um áfengis er oft á tíðum til mikilla vandræða á móti mun afslappaðri hegðun kannabisneytanda. Um hverja helgi sjáum við skýrt dæmi um það hvernig fólk missir stjórn á hegðun sinni undir áhrifum áfeng- is. Ár hvert eru hundruð þúsunda dauðsfalla tengd áfengi á móti eng- um staðfestum dauða af völdum kannabiss,“ segir Kleópatra. En hefur hún fundið fyrir for- dómum frá því hún tók að sér starf fjölmiðlafulltrúa? „Nei, þvert á móti. Stuðningur- inn sem ég og aðrir hafa fengið hef- ur verið hvetjandi. Það litla mótlæti sem við fáum einkennist ávallt af sömu endurtekningum af huldu- sögum sem rannsóknir sýna fram á að eiga engar stoðir í raunveruleik- anum.“ Óréttlátar sviptingar En Kleópatra og hennar fólk vill vekja athygli á fleiri hlutum en lög- leiðingu á kannabisefnum. Hún vill líka vekja athygli á þeirri staðreynd að fólk er að missa ökuleyfi sín í hrönnum fyrir það eitt af hafa reykt aðeins endrum og eins. Kleópatra vitnar þá til þeirra fjölda ökumanna sem hafa verið og eiga von á því að vera sviptir vegna aksturs und- ir áhrifum kannabisefna en þeir skipta hundruðum hér á landi. „Þetta fólk getur átt þá hættu að missa ökuréttindi sín dögum og jafnvel vikum eftir inntöku jafnvel þótt vímuáhrif vari aðeins í örfáar klukkustundir. Samkvæmt rannsóknum er THC í þvagi allt upp í sex vikur eft- ir neyslu efnisins. Þetta þýðir að sá sem neytir einu sinni kannabisefna á það á hættu að falla á þvagprufu í allt að einn og hálfan mánuð eftir inntöku. Bjartsýn á framhaldið Kleópatra segir söguna ávallt endurtaka sig reglulega og því sé það á hreinu að bann við kanna- bisefnum líði undir lok rétt eins og áfengisbannið hér um árið. „Áfengisbannið gerði lítið annað en að framleiða glæpa- menn. Þessu mun verða aflétt, það er bara spurning um tíma. Þetta er stoð sem mikilvægt er að taka frá fíkniefnaheiminum ef við ætlum að eiga séns á móti skipu- lagðri glæpastarfsemi og þá nota fjármunina í uppbyggingu á sam- félaginu okkar. Mér finnst líka mikilvægt að það komi fram að það eru ekki allir fíklar sem neyta kannabiss frekar en það eru all- ir alkóhólistar sem neyta áfeng- is. Þeir aftur á móti stimplast sem glæpamenn sökum lagaramm- ans,“ segir Kleópatra Mjöll sem vill í lokin benda fólki á að kynna sér vefsíðuna kannabis.net. „Ætlunin er að vera með fræðslu- efni, greinar, skýrslur og rannsóknir á kannabis. Þá einnig upplýsingar um afleiðingar af núverandi stefnu í vímuefnamálum. Þetta gerum við svo almenningur geti kynnt sér mál- efnið af eigin rammleik og myndað sér sjálfstæða skoðun á baráttumál- um okkar.“ Atli MÁr GylfASon blaðamaður skrifar atli@dv.is Kannabis Lögreglan hefur lagt hald á mikið magn kannabisefna að undanförnu enda ólögleg framleiðsla mjög mikil. Vill leyfa kannabis Kleó- patra mjöll guðmundsdóttir mælir fyrir hóp fólks sem vill lögleiða kannabis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.