Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Síða 14
föstudagur 20. mars 200914 Fréttir
Eirðarlaus á Kanarí
Lúðvík segir að þetta eirðarleysi
Bjarna hafi komið skemmtilega í
ljós þegar fjölskyldur þeirra fóru
saman til Kanaríeyja fyrir nokkrum
árum. „Þá var Bjarni búinn að gera
allt sem hægt var að gera á Kanarí á
fjórum dögum. Hann var búinn að
kafa, synda, fara út að hlaupa, leigja
sér bíl og allan þann pakka og þá
var heil vika eftir. Þá sagði Bjarni við
okkur að hann væri búinn að gera
allt sem hægt væri að gera þarna og
því liði honum eins og hann væri
fastur á risastóru skemmtiferðaskipi
því hann gæti ekki keyrt eða flogið í
burtu,“ segir Lúðvík.
Lúðvík segir að þessi manía
Bjarna sé kannski einnig hans helsti
galli því hann hafi stundum færst of
mikið í fang.
Þingsæti á silfurfati
Bjarni var tiltölulega óþekktur og
hafði ekki haft mikil afskipti af stjórn-
málum þegar honum var stillt upp á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi í alþingiskosningunum
árið 2003. Kjörnefnd Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu hætti við að
halda prófkjör sökum þess hversu
dýrt prófkjörið þar á undan hafði
verið. Kjörnefndin lagði til að Bjarni
myndi skipa fimmta sæti á listan-
um. Bjarni komst svo inn sem síð-
asti þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í kjördæminu og þótti sumum sem
hann hefði lítið þurft að hafa fyrir því
að ná þingsæti og að honum hefði
nánast verið ýtt inn á þing út af ætt-
artengslum.
Hlaut eldskírnina í umræðunni
um fjölmiðlafrumvarpið
Bjarni tók sæti á þingi árið 2003 og
segir Einar Mar Þórðarson stjórn-
málafræðingur að hann hafi hlotið
sína pólitísku eldskírn í umræðunni
um fjölmiðlafrumvarpið árið 2004
þegar hann var formaður allsherj-
arnefndar. „Mörgum fannst Bjarni
standa sig afskaplega vel í þessari
umræðu. Það var mikil andstaða
við þessi lög í samfélaginu en Bjarni
kom fram og var málefnalegur í sín-
um málflutningi um þetta frumvarp
á meðan margir stjórnarliðar vildu
lítið sem ekkert tjá sig um þetta mál
og voru nánast í felum. Bjarni stóð
þá fyrir máli meirihlutans og þótti
mönnum hann gera það vel, hvað
svo sem fólki þótti um frumvarpið,“
segir Einar og bætir því við að Bjarni
hafi hlotið mjög skjótan frama innan
Sjálfstæðisflokksins því í prófkjörinu
fyrir alþingiskosningarnar árið 2007
hafi hann lent í öðru sæti í Suðvest-
urkjördæmi.
Ekki þykir útlitið heldur spilla fyr-
ir Bjarna í pólitíkinni því hann þykir
myndarlegur og sjarmerandi maður
með afbrigðum. „Amma mín hefði
sagt um Bjarna að hann væri „af-
skaplega myndarlegur ungur mað-
ur“,“ segir einn af viðmælendum DV.
Einar Mar segir að Bjarni komi vel
fyrir og sé málefnalegur þegar hann
komi fram í sjónvarpi og á þingi.
„Hann hefur mikinn kjörþokka og
sjarma.“
Pólitískir andstæðingar Bjarna
bera honum vel söguna
Andstæðingar Bjarna á Alþingi
bera honum sömuleiðis vel söguna.
„Hann var ágætlega liðinn á Alþingi
af stjórnarandstöðunni. Hann þótti
diplómatískur og góður í samstarfi
þegar hann stýrði störfum í nefnd-
um þingsins. Hann þótti nokkuð
sanngjarn miðað við marga aðra í
Sjálfstæðisflokknum. Hann er frek-
ar þægilegur í samskiptum og prúð-
menni,“ segir þingmaður sem sat
í stjórnarandstöðunni fyrir ríkis-
stjórnarskiptin á dögunum.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður vinstri-grænna, sem sat með
Bjarna í allsherjarnefnd Alþingis á
síðasta kjörtímabili, segir að Bjarni
hafi staðið sig mjög vel sem formað-
ur nefndarinnar. „Ég get alveg gef-
ið Bjarna Bendiktssyni góð með-
mæli fyrir þá vinnu sem hann vann
í nefndinni. Hann var réttsýnn og
vandvirkur og fór djúpt ofan í mál, þó
svo við hefðum ekki átt samleið pól-
itískt séð,“ segir Kolbrún og bætir því
við að hann hafi lagt talsvert á sig til
að miðla málum og komast að niður-
stöðu. „Hann hefur margt til brunns
að bera og ég vona að hann eigi eft-
ir að vinna vel úr þeim góðu eigin-
leikum og láti pólitíkina ekki eyði-
leggja sig. Vonandi fellur hann ekki
í þá gryfju sem leiðtogi sjálfstæðis-
manna að reyna að stjórna öllum
þingmönnum flokksins að ofan líkt
og margir stjórnendur flokksins hafa
gert hingað til,“ segir Kolbrún.
Enginn þorir í Bjarna
Um leið og það spurðist út að Bjarni
ætlaði að bjóða sig fram til for-
mennsku í flokknum hvarf bak-
land Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur í flokknum, en bæði Hanna
Birna Kristjánsdóttir og Ásdís Halla
Bragadóttir munu hafa verið tveir af
helstu stuðningsmönnum Þorgerðar.
Hanna og Ásdís Halla munu hins veg-
ar hafa kippt að sér hendinni um leið
og Bjarni lýsti yfir áhuga á formann-
sembættinu og Þorgerður hefur lík-
lega gert sér grein fyrir því að hún ætti
ekki möguleika á móti Bjarna því all-
ir í flokknum flykktust á bak við erfða-
prinsinn úr Garðabænum.
Guðlaugur Þór Þórðarson var
einnig orðaður við formannsfram-
boðið í flokknum um tíma en hann
hefur gefið það út að hann ætli ekki
að bjóða sig fram og þótt Kristján Þór
Júlíusson hafi ekki útilokað framboð
þykir líklegt að hann bjóði sig frek-
ar fram sem varaformaður. Sigurð-
ur Kári segir að það sé til marks um
sterka stöðu Bjarna innan flokksins
að enginn hafi sagst ætla að bjóða
sig fram á móti honum. „Þetta sýn-
ir hversu margir í flokknum hafa trú
á honum í þetta embætti og treysta
honum til að sinna því.“
Svo virðist því sem Bjarni muni
verða næsti formaður Sjálfstæðis-
flokksins án mikillar fyrirhafnar og
segir Einar Mar að hann sé nokkuð
óumdeildur í þetta embætti innan
flokksins og meðal annarra kjósenda
í landinu. „Við sjáum það líka í könn-
unum meðal almennra kjósenda að
Bjarni virðist njóta nokkuð víðtæks
stuðnings í þetta embætti.“
Þykir skorta leiðtogahæfileika
Þó að Bjarni sé enn sem komið er
einn í framboði í formannskjöri Sjálf-
stæðisflokksins á komandi flokks-
þingi þykir sumum hann skorta
leiðtogahæfileika. „Mörgum finnst
Bjarna skorta leiðtogahæfileika; að
hann sé ekki að sýna neina leiðtoga-
takta,“ segir einn af viðmælendum
blaðsins.
Þessi skortur Bjarna á leiðtoga-
hæfileikum þykir hafa komið í ljós
á kjördæmaráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi, sem
haldinn var fyrir nýliðið prófkjör, þar
sem meðal annars átti að ákveða
hvort halda ætti prófkjör eða stilla
upp á lista flokksins í kjördæminu.
Formaður kjördæmaráðsins, Stefán
Pétursson, las þá upp tillögu þess efn-
is að halda ætti prófkjör því grasrótin
myndi ekki taka annað í mál. Geir H.
Haarde, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, steig þá í pontu og fór þess á leit
að fella ætti tillöguna með þeim rök-
um að þingmenn flokksins þyrftu á
öllum sínum kröftum að halda þar og
að ekki væri við hæfi að fara að etja
mönnum saman í kosningabaráttu.
„Það var hins vegar alveg aug-
ljóst að Geir var bara að verja Þor-
gerði sem var á fyrsta sæti listans í
síðustu kosningum. Bjarni sat samt
bara þarna, opinmynntur, og gerði
ekki neitt þrátt fyrir að hann væri að
bjóða sig fram í fyrsta sæti í kjördæmi
í prófkjörinu. Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir óð hins vegar upp í pontu og
sagði: „Nei, nú er ég ekki sammála
formanninum.“ Þetta sló mig alveg
rosalega því Bjarni virtist ekki ætla
að mótmæla formanninum,“ seg-
ir sjálfstæðismaður sem var á fundi
kjördæmaráðsins og bætir því við að
Bjarni sýni stundum ekki nægilega
mikið frumkvæði.
Tengsl Bjarna við viðskiptalífið
þykja vafasöm
Helsta fótakeflið á stjórnmálaferli
Bjarna er að tengsl hans við atvinnu-
lífið þykja vafasöm; Bjarni er fyrst og
fremst gagnrýndur fyrir þessi tengsl
af viðmælendum DV.
Bjarni sagði af sér stjórnarfor-
mennsku í olíufyrirtækinu N1 hf. og
BNT hf., sem á N1, í desember í fyrra
vegna þess að hann vildi einbeita sér
að stjórnmálum auk þess sem hann
taldi að ekki væri heppilegt að vera
á kafi í viðskiptum samhliða pólit-
ísku starfi. „Ég neita því heldur ekki
að mér finnst á vissan hátt óheppi-
legt að vera mjög virkur þátttakandi
í viðskiptalífinu eftir að bankarn-
ir komust í hendur ríkisins,“ sagði
Bjarni í viðtali við Viðskiptablaðið í
desember þegar hann lét af störfum
hjá N1.
Þingmaður, sem sat í stjórnarand-
stöðunni fyrir ríkisstjórnarskiptin á
dögunum, segir að það orki tvímælis
að vera bæði í viðskiptum og pólitík.
„Bjarni vék aldrei sæti við afgreiðslu
mála á þingi þar sem N1 átti hags-
muna að gæta og hann var bullandi
vanhæfur í,“ segir þingmaðurinn.
Annar viðmælandi blaðsins segir
um Bjarna: „Hann er með mjög víð-
tæk tengsl inn í fyrirtæki gamla Ís-
lands. Hann er mjög vel tengdur inn
í ættarveldið sitt og á mikilla hags-
muna að gæta víða í atvinnulífinu.
Hann kemur mjög víða við en mað-
ur verður ekki mjög var við hann.“
Spurningin sem brennur á mörgum
er því hvort Bjarni hafi alveg hætt af-
skiptum af rekstri félaganna þó svo
að hann hafi gert það formlega.
Bjarni átti 1 prósent hlut í BNT
Föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson,
tók við sem stjórnarformaður í félög-
unum og frændi þeirra, Benedikt Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri Talna-
könnunar, tók sæti í stjórnum N1 og
BNT þegar Bjarni hætti.
N1 varð til árið 2007 þegar Olíufé-
lagið Esso, Bílanaust og fleiri fyrirtæki
sameinuðust. Stærsti einstaki hluthaf-
inn í BNT er fjárfestingafélagið Máttur
sem á rúmlega 29 prósent í félaginu.
Einar Sveinsson er einnig stjórnar-
formaður í Mætti. Framkvæmdastjóri
Máttar er Gunnlaugur M. Sigmunds-
son, faðir Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, formanns Framsóknar-
flokksins. Gunnlaugur situr einnig í
stjórn BNT og er stjórnarformaður Ice-
landair. Því hefur meðal annars verið
haldið fram að þessi viðskiptatengsl
fjölskyldna Bjarna og Sigmundar gætu
hjálpað til við að liðka fyrir mögulegu
stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins í framtíðinni
ef Bjarni verður kjörinn formaður.
Bjarni átti 1 prósent hlut í BNT
þar til fyrir um ári, en þá hafði hann
átt hlutinn frá því N1 varð til. Þá seldi
Bjarni hlutinn, að því er talið er til Ein-
ars Sveinssonar frænda síns. Ástæð-
an fyrir því mun hafa verið sú að hann
vildi ávaxta sitt pund á annan hátt en
með hlutabréfaeign. Fyrir þann tíma
hafði hann einnig átt hlutabréf í fyr-
irtækjum sem skráð voru á íslenska
hlutabréfamarkaðnum, en ekki er vit-
að í hvaða fyrirtækjum það var. Sam-
kvæmt heimildum DV mun Bjarni
ekki lengur eiga hlutabréf í neinum
fyrirtækjum.
N1 ekki fótakefli fyrir Bjarna
Reikna má með að Bjarni hafi fengið
dágóða upphæð fyrir eignarhlut sinn í
BNT en félagið var rekið með rúmlega
fimm milljarða króna hagnaði sam-
kvæmt ársreikningi fyrir 2007. Eigið fé
félagsins var þá rúmlega 13 milljarðar
króna og þótti staða fyrirtækisins vera
góð um þetta leyti því N1 hefur alla tíð
verið vel rekið, samkvæmt heimildum.
Samkvæmt heimildum DV mun hins
vegar hafa harðnað á dalnum hjá BNT
árið 2008, líkt og hjá mörgum fyrir-
tækjum í landinu. Ársreikningur BNT
er ekki aðgengilegur hjá Lánstrausti en
talið er að skuldir félagsins hlaupi nú
á tugum milljarða króna, samkvæmt
heimildum.
Þessi tengsl Bjarna við viðskiptalíf-
ið munu þó sennilega ekki verða hon-
um fjötur um fót, að sögn Einars Mars.
Af vinsældum Bjarna og sterkri stöðu
hans innan flokksins að dæma virðist
því ekki sem þessi skuggi olíurisans og
viðskiptaveldis Engeyjarættarinnar,
sem hvílir yfir annars flekklausum ferli
hans, muni koma í veg fyrir að hann
feti í fótspor frænda síns og alnafna og
komist til æðstu metorða innan Sjálf-
stæðisflokksins þrátt fyrir ungan aldur
og tiltölulega skamman feril í stjórn-
málum.
„Það er alltaf hægt að treysta því að Bjarni geri
það sem hann segir.“
Enginn þorir í Bjarna talið var líklegt að Þorgerður
Katrín gunnarsdóttir byði sig fram gegn Bjarna Benedikts-
syni í formannskjöri flokksins á komandi landsfundi en
enn sem komið er hefur enginn annar gefið kost á sér í
embættið. Það er samdóma álit viðmælenda dV að þetta
sýni sterka stöðu hans innan flokksins. MyNd Bragi JósEfssoN
Manískur Bjarni Bjarni er mikill íþróttaáhugamaður og segir vinur hans að hann
verði alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og sé manískur. Þingmaðurinn lék meðal
annars knattspyrnu á sínum yngri árum auk þess sem hann spilar golf í frítíma
sínum. Bjarni á auk þess mótorhjól en hann ferðaðist um Bandaríkin á einu slíku í
fyrra. MyNd guNNar guNNarssoN
„Hann nýtur þess að
láta athyglina vera
á sér og hefur alltaf
gert.“