Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Qupperneq 22
föstudagur 20. mars 200922 Fókus um helgina Ljósmyndasýning d´ambrosi Myrkur sannleikur nefnist ljósmyndasýning ítalska blaðaljósmynd- arans Cinziu D´Ambrosi sem verður opnuð á morgun, laugardag- inn 21. mars í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Sýningin er fréttamyndasería og sýnir líf og harðindi kolanámumanna í Kína. Myndir D´Ambrosi varpa ljósi á vinnuaðstæður þessara manna í stærsta kolaiðnaði heims. Sýningin verður opnuð klukkan 14. guðrún daLía í saLnum Píanóleikarinn Guðrún Dalía Saló- monsdóttir heldur sína fyrstu ein- leikstónleika í Salnum á morgun, 21. mars. Á efnisskrá eru tvær sónötur eftir Beethoven, verk eftir Rameau, Schumann og Debussy. Guðrún Dalía stundaði píanónám í Tón- menntaskólanum í Reykjavík og síðar í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Fyrir sex árum hélt hún til Stuttgart í áframhaldandi nám. Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og miðaverð er 2.500 krónur. TiLnefnd TiL Ljósmynda- verðLauna Bjargey Ólafsdóttir ljósmyndari hefur verið tilnefnd til hinna virtu Leopold Godowsky, Jr. Color- ljósmyndaverðlauna fyrir sýning- una sína TÍRU sem nú stendur yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Tilgangurinn með verðlaununum er að verðlauna framúrskarandi framlag á sviði samtíma litljós- myndunar. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1987. Sýning Bjarg- eyjar TÍRA stendur til 10. maí í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og er opið alla virka daga frá 12 til 19 og frá 13 til 17 um helgar. Að- gangur er ókeypis. gus gus snýr afTur Hljómsveitin Gus Gus heldur sína fyrstu tónleika á þessu ári í kvöld á NASA. Aðdáendur sveitarinnar hafa beðið með eftirvæntingu eftir breiðskífunni 24/7 sem er væntanleg í júlí næstkomandi, en síðasta breið- skífa sveitarinnar, Gus Gus Forever, naut þvílíkra vinsælda fyrir tveimur árum. Það er þýska raf- og danstón- listarmerkið Kompakt sem gefur út plötuna. Kompakt er afar virkt á sínu sviði og gefur meðal annars út tónlistarmenn á borð við DJ Koze, The Field og Orb. Tónleikar Gus Gus hefjast á miðnætti á NASA og kostar 2.500 kr. inn. Við upphaf myndarinnar velti ég fyrir mér hvaða engilsaxneska smá- borgarahelvíti ég hefði villst inn á. En fyrstu setningar myndarinn- ar gáfu strax góð fyrirheit. Harvey Shine (Dustin Hoffman) hefur lagt allt undir til að verða djasspíanisti. Í því ferli tapar hann frá sér fjölskyld- unni en situr uppi í ævistarfi við gerð stefja fyrir auglýsingar. Þegar hann mætir síðan til Englands í brúð- kaup hinnar vanræktu dóttur sinn- ar er honum tilkynnt að fósturpabbi hennar muni gefa hönd hennar við athöfnina. Algjör vonbrigði. Harvey er vel hannaður og frá- bærlega leikinn karakter. Hann hef- ur valið sér leið í lífinu sem veld- ur honum ekki ánægju og hann þumbast áfram utanveltu. Það skín af honum óöryggið við brúðkaup dóttur hans. Hann er sérstaklega vandræðalegur og þjáist sem fórn- arlambið sem getur sennilega kennt sjálfu sér um sína stöðu. Þegar vonbrigðin keyra um þver- bak kynnist hann breskri kynn- ingardömu á Heathrow sem hann tengir snögglega við. Kate (Emma Thompson) er ekki í öfundsverðum sporum. Hún á sér tæpast líf og er þar að auki með aldraða bitra móð- ur sína á bakinu, spælda eftir hjóna- band við föður Kate. Hún hefur ekki skapað sér sitt víti sjálf en er að sama skapi utanveltu og að mörgu leyti í sömu sporum og Harvey. Myndin hefur engan „Disney- brag“ á sér og maður veit ekkert hvort þau nái að finna sameigin- lega leið út úr sínum persónulegu kreppum. Myndin er öll mjög hvers- dagsleg og það tilheyrir hversdeg- inum að hamingjusamur endir er ekkert endilega hinum megin við hornið. Last Chance Harvey hef- ur enga tilgerðarlega yfirbyggingu eða stíliseringu. Hvorki í leikara- vali, fatnaði né umgjörð. Bara raun- verulega „ljótar“ breskar konur með skakkar tennur vafrandi um í lífinu og feita plebbalega larfa dansandi raunverulega hallærislega dansa í brúðkaupsfylliríi. Það er frábært. Þetta er nefnilega „kellingamynd“ í jákvæðri merkingu orðsins og alveg laus við hefðbundinn heiladauða slíkra mynda. Last Chance Harvey er full af vel skrifuðum samræðum, stórkostlega leikin og mögnuð í lát- leysi sínu. Erpur Eyvindarson góð kellingamynd fyrir kalla Last ChanCe harvey Leikstjóri: Joel Hopkins Aðalhlutverk: dustin Hoffman, Emma thompson, Kathy Baker, James Brolin. kvikmyndir Last Chance Harvey dustin Hoffman og Emma thompson leika aðalhlutverkin. DV090319874 Þórir Sæmundsson Lærði leiklist úti í Noregi Eterinn „Hátækniárás á stóru spurningarnar.“ „Ég hef alltaf verið glaðvær og bjartur piltur en ég fann fyrir einhverri óút- skýranlegri ókyrrð síðustu árin mín í Noregi,“ segir Þórir Sæmundsson leikari en verk hans Eterinn verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þórir ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þessum einleik sín- um en hann segir markmiðið að gera atlögu að stóru spurningum alheims- ins og fanga leikhús augnabliksins. Til þess notar Þórir stafræna tækni en engin sýning af Eternum verður eins og sú sem á undan kom. Sýning en ekki leikrit „Þetta er ekki leikrit en þetta er sýn- ing,“ segir Þórir um hinn æði sérstaka einleik Eterinn. „Það er ekkert hand- rit þannig séð. Þetta eru í raun bara minnispunktar og smásögur, vís- indalegar upplýsingar og rannsóknir á allskyns hlutum, tímaflakk og end- urholdgun,“ heldur Þórir áfram um þessa hugarsmíð sína. „Þetta eru í raun djúsí stórar spurningar um lífið, lífið eftir dauðann og þennan gríðar- stóra alheim sem við lifum í en vitum svo óskaplega lítið um.“ Til þess að örva áhorfendur og varpa fram spurningum sínum og pælingum notar Þórir nýjustu mynd- og hljóðtækni. „Ég notast við algjör- lega nýjustu háskerputækni. Flotta og nýstárlega vídeótækni og einhvers konar rafmagnaða skúlptúra sem samanstanda af hlutum sem passa ekki endilega saman. Hlutir sem hafa ekkert að gera saman en ég er búinn að tengja. Þeir fara svo að mynda ein- hverja heild.“ Þórir segir að í Eternum séu áhorfendum gefnar algjörlega frjálsar hendur í túlkun á verkinu. „Það er ekkert hlutverk á sviðinu. Ég stend bara þarna sem Þórir.“ Þórir segist ræða bæði hluti sem hafa gerst í hans lífi sem og ýmsar dæmisögur sem tengist honum ekki beint. „Þetta er alls ekki hefðbund- ið leikhús og ég vona að þetta verði mjög persónuleg sýning sem er ólík öllu öðru sem er hér í gangi.“ Súrefnisskortur eða sálnaflakk? Þórir hefur alla tíða verið upptek- inn af stórum spurningum og pæl- ingum sem tengjast þeim. „Við virð- umst vera svo meðvituð um allt sem er að gerast á jörðinni og í þessu sól- kerfi okkar. Hvar þessi veruleiki okk- ar hefst og hvar hann endar. Það eru 365 dagar í ári, árstíðirnar eru fjórar og náttúran einhvern veginn andar með okkur eða við með henni. Við erum mjög kammó gagnvart plá- netum eins og Venusi, Mars og Sat- úrnusi því þær eru svo nálægt okkur og við þykjumst þekkja þær svo vel. En því meira sem maður pælir í því kemur í ljós að við höfum mjög lítinn grun um hvernig þetta er og af hverju þetta er hérna.“ Þórir segir því efnivið Etersins vera frá honum sjálfum kominn úr hugleiðingum hans um alheiminn. „Ég tekst líka á við þessa togstreitu milli vísinda og trúar. Ekki hefbund- Þjóðleikhúsið frumsýnir Eterinn, einleik Þóris Sæmundsson- ar, í Smíðakassanum í kvöld. Þórir lýsir sýningunni sem há- tækniárás á stóru spurningar alheimsins en þar blandar hann saman smásögum, minnispunktum, vísindalegum upplýsingum og umræðu við myndbrot, tónlist og ýmsa gjörninga. Þórir bjó í Noregi í mörg ár og gekk vel í leiklistinni en hann fann sig ekki fyrr en hann snéri aftur til Íslands árið 2007. Fann sig aftur á Íslandi Þórir Sæmundsson Lærði leiklist úti í Noregi MYND KRISTINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.