Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Side 24
föstudagur 20. mars 200924 Helgarblað
„Ég man að ég hugsaði strax að ég
ætlaði að vinna að sportinu og halda
áfram að lifa lífinu af krafti ef ég væri
lamaður,“ segir Lexi um fyrstu hugs-
anirnar sem fóru í gegnum huga
hans þegar hann lá á grúfu, fastur
undir vélsleða með andlitið á kafi í
vatni eftir hörmulegt slys sem hann
lenti í árið 2000.
Lexi, eins og ég mun kalla hann
í þessu viðtali enda er þessi reyndi
sleðakappi best þekktur undir því
nafni, var að keppa um Íslandmeist-
aratitilinn þegar sleðinn hans drap á
sér í miðri braut eftir vænt stökk. Lexi
var að rembast við að setja sleðann í
gang á ný þegar liðsfélagi hans kom
brunandi inn brautina, sá hann ekki
vegna stökkpallsins og keyrði þar af
leiðandi á bakið á Lexa. Lexi kastað-
ist fram fyrir sleðann sinn við höggið
og dróst áfram með sleðanum sem
ók á hann og varð á endanum und-
ir honum, fastur með andlitið í polli.
„Höggið sem ég fékk á bakið var tal-
ið jafngilda sjö hundruð kílóa höggi,“
rifjar hann upp.“
Með herkjum tókst Lexa að teygja
úr hálsinum og ná sér í örlítið súrefni
á meðan viðstaddir reyndu að ná
sleðanum af honum, sem gekk hálf-
illa sökum þess hve blautur snjórinn
var.
„Ég man að í fyrstu fann ég ekki
mikinn sársauka en svo þegar verk-
irnir fóru að gera vart við sig hugs-
aði ég strax hvernig ég myndi reyna
að gera það besta úr lífi mínu ef á
versta veg færi og að ég ætlaði að
vinna fyrir sportið. Ég hef alltaf verið
með hausinn á réttum stað og tekist
á við það sem yfir mig dynur. Þegar
sleðinn var loks farinn af mér kipptu
þeir sem þarna stóðu í hendurnar á
mér og drógu mig upp úr pollinum.
Ég hugsaði með mér að ef ég væri
ekki í stórslasaður fyrir væri ég það
pottþétt núna, svo mikill var sárs-
aukinn þegar þeir drógu mig upp úr.“
Með einhverjum undraverðum hætti
tókst Lexa að standa á fætur, veifa til
áhorfenda en hneig því næst niður.
Beðið eftir skaðanum
Við höggið sprakk brjóstkassinn á
Lexa eins og hann sjálfur orðar það
og bendir á aðra síðuna. „Það fóru í
sundur nokkur rifbein og kitlaði eitt
þeirra annað lungað á mér. Þar af
leiðandi átti ég mjög erfitt með að
anda og blánaði fljótt sökum súrefn-
isskorts. Lexi var fluttur með sjúkra-
bíl til Akureyrar með morfín í æð til
að hjálpa honum að slaka á og ná
andanum. Þegar ég fékk morfínið fór
þetta aðeins að skána,“ rifjar hann
upp.
Spurningin var ekki hvort heldur
hvar innvortis blæðing hefði átt sér
stað hjá Lexa og hvenær hún kæmi í
ljós. Í fimm daga lá Lexi á gjörgæslu
þar sem fylgst var náið með honum
en hvergi sást blæðing. Með trega út-
skrifuðu læknarnir hann því af spít-
alanum.
„Ég útskrifaðist á föstudegi,
hringdi strax í sjúkraþjálfarann minn
og bað hann að teipa mig saman, svo
að ég gæti keppt daginn eftir. Það
voru dýrmæt stig í pottinum og ég
ætlaði ekki að missa af þeim.“
Lexi viðurkennir að honum hafi
ekki liðið neitt sérstaklega vel á með-
an hann keppti þennan daginn. Þrátt
fyrir ótrúlegan baráttuanda og já-
kvæðni tapaði Lexi titlinum þetta
árið og kennir hann slysinu
þar um.
Brynj-
an skipti
sköpum
Kraftaverki líkast er að ekki fór verr
í þessu hræðilega slysi og getur Lexi
þakkað það brynju sem hann var
með yfir bak og brjóstkassa, líklega
einu brynjuna sem til var á landinu á
þessum tíma. „Þetta var brynja sem
ég hafði fengið erlendis en það eru
sem betur fer breyttir tímar í dag hér
á landi. Núna er komið inn í keppnis-
reglur að allir þurfi að vera með slík-
ar brynjur í keppni.“
Það þykir þó ekki bara einstakt
að ekki fór verr heldur náðist upp-
taka af sjálfu slysinu sem þykir einn-
ig nokkuð merkilegt. Blaðamaður
fær að sjá upptökuna sem var meðal
annars sýnd í þættinum The Worlds
Most Amazing Videos og á vart orð til
að lýsa undrun sinni. „Það er í raun
ótrúlegt að það hafi náðst myndir af
þessu,“ segir Lexi og við-
urkennir að það hafi verið skrítið að
horfa á þetta eftir slysið.
Kunni ekki neitt
Lexi fæddist í Reykjavík árið 1975
en fluttist með foreldrum sínum,
þeim Kára Þórðarsyni og Rósu V.
Guðmundsdóttur, til Akureyrar að-
eins tveggja ára gamall. Þar ráku þau
prentsmiðju og ólu upp sína þrjá
drengi, Þórð, Ólaf og Lexa sem er
yngstur þeirra bræðra.
Miðað við feril Lexa í snjósleða-
Vinsældir sleðasports á Íslandi hafa farið stigvaxandi und-
anfarin ár. Veturinn þetta árið hefur reynst sleðamönnum
einstaklega vel enda mikið um snjó og veðurblíðu. Kolbrún
Pálína Helgadóttir settist niður með einum reyndasta
sleðamanni landsins, Alexander Kárasyni, eða Lexa
eins og flestir þekkja hann. Lexi rifjar upp slys sem
hefði getað breytt lífi hans ef ekki hefði verið fyrir
rétta búnaðinn og ítrekar fyrir sleðamönnum að
fara sér hægt og vera vel búnir.
SÉ EKKI
EFTIR NEINU
Lexi alexander Kárason eða
Lexi eins og flestir kalla hann.
mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon
Á flugi glæsileg
mynd af Lexa stökkva
á sleðanum sínum.
mynd úr einKASAfni