Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Qupperneq 34
föstudagur 20. mars 200934 Helgarblað HIN HLIÐIN Útlit Umu Thurman, skap Hemma Gunn Nafn og aldur? „Lilja Nótt Þórarinsdóttir, 29 ára.“ Atvinna? „Leikaranemi í smástund enn allavega.“ Hjúskaparstaða? „Í sambúð.“ Fjöldi barna? „Núll.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já, fullt af þeim. Hunda, ketti, lömb og fólk.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Kroistanz á Grand rokk.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Nei.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Mér þykir vænt um svo margt sem ég á að ég vil ekki velja á milli. Ekki sann- gjarnt.“ Hefur þú farið í megrun? „Já, það er sérstakt áhugamál hjá mér.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mót- mælum? „Já, alltaf þegar mér misbýður framferði yfirvalda og ráðamanna. Þá finnst mér það skylda okkar að láta í okkur heyra. Nú síðast búsáhaldabyltingin. Ég er ekk- ert smá ánægð með Íslendinga.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Já.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Eitt Scooter-lag þegar ég var 16 ára. Man ekki alveg hvað það heitir. ...It is nice to be important but it is more imp- ortant to be nice...“ Hvaða lag kveikir í þér? „Mörg, mörg, mörg. Ég hlusta núna á Yelle og MGMT en finnst eighties-tónlist alltaf hress.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Að sýna. Þrettándakvöld í Þjóðleikhús- inu, klára BfA-ritgerðina og útskrifast svo úr Listaháskóla Íslands í vor.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „Þær eru nokkrar. Sumar eru svona feel good myndir ef maður er leiður eða bara ef þær eru mjög áhugaverðar og halda í mann. Bridget Jones´s Diary af því ég sofna alltaf yfir henni.“ Afrek vikunnar? „Frumsýning á Þrettándakvöldi eftir Shake- speare á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, oft en aldrei fengið sömu svörin.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Klarinett, píanó (smá) og svo syng ég.“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið? „Hef ekki kynnt mér málið nógu vel til að taka alveg afstöðu en er á „to do“-listanum.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Gleði, hlátur og ást.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Herra Ólaf Ragnar forseta og helst ef Dorrit væri líka með.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Það er ekkert einfalt svar til við þessu Það fer eftir því hvaða dagur er. Akkúrat núna væri það Will Shakespeare til að fá botn í hvort hann hafi í alvöru skrifað þetta allt einn.“ Hefur þú ort ljóð? „Já, sérhæfi mig í oddhendum og haikum.“ Nýlegt prakkarastrik? „Ég elska prakkarastrik. Ég skvetti fullu glasi af ísköldu vatni á manninn minn þegar hann var í sturtu.“ Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest? „Mér hefur mjög oft verið líkt við Umu Thur- man og stundum Cameron Diaz en skap- gerðin held ég að sé líkari Hemma Gunn eða David Brent.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Ef ég kjafta frá verða þeir ekki leyndir...“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Veit ekki með það sko.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Úti í íslenskri náttúru um hásumar.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Loka augunum.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Áfram og upp, upp, upp. Ég vil fá Evu Joly í vinnu fyrir Íslendinga til að hreinsa upp ruslið.“ LiLja Nótt ÞórariNsdóttir er að kLára Nám í LeikList í ListaháskóLa ísLaNds. LiLja hefur Þó fyrir LöNgu skapað sér NafN í LeikListiNNi og sLó meðaL aNN- ars í gegN í myNdiNNi reykjavík rotterdam sem sýNd var í fyrra. LiLja sofNar aLLtaf yfir Bridget joNes´s diary og eLskar prakkarastrik. myNd xxx30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið Sími 565-4440 & 616-3078 smurning@smurning.is www.smurning.is Land Cruiser 100 -WW Bora - Mazda 2 Engin skipti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.