Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2009, Page 36
föstudagur 20. mars 200936 Lífsstíll KonuKvöld létt Léttbylgjan óskar nú eftir tilnefningum um afrekskonu ársins inni á heimasíðu útvarpsstöðvarinnar, lettbylgjan.is. dómnefnd sér svo um að velja afrekskonu ársins og mun hún verða heiðruð á glæsilegu konu- kvöldi Léttbylgjunnar miðvikudagskvöldið 25. mars 2009. Konukvöldið hefur verið gríðarlega vinsælt meðal hlustenda Léttbylgjunnar enda ávallt verið skemmtilegt og glæsilegt kvöld og verður engin undantekning þar á í ár. söng- konan Hera Björk verður gestgjafi kvöldsins sem hefst með spennandi fordrykk. umsjón: KoLBrún páLína HeLgadóttir, kolbrun@dv.is Burstaðu Kroppinn Það er ekki langt síðan það var álitið hálfgerð vitleysa að bursta húðina með þurrum bursta. nú þykir það sjálfsagt og lesa má um þess háttar burstun í öllum tímaritum um heilsufar og snyrtingu. í bókinni Hreystin kemur innan frá má finna einfaldar leiðbeiningar um þurrburstun. notaðu þéttan bursta en ekki harðan. Líka er gott að nota lúfu á skafti en það eru jurtatrefjar af samnefndum kúrbít. í verslunum er lúfa stundum kölluð náttúrusvamp- ur þótt ekki sé um svamp að ræða. mikilvægt er að skaftið sé langt svo auðveldara sé að bursta bakið. ekki bleyta burstann eða húðina eða nota mykjandi krem af nokkru tagi því að þá loðir burstinn við húðina og það getur orðið sárt. Best er að bursta líkamann nakinn að morgni áður en farið er í föt. Þú ræður hvort þú situr eða stendur en komdu þér þægilega fyrir. Byrjaðu á fótleggjunum að framan, svo að aftan og á hliðunum í átt að hnjám. Þannig burstar þú nokkrum sinnum ökkla og kálfa. Burstaðu líkamann frá hnjám og upp á mjaðmir og rasskinnar. Burstaðu síðan handleggina frá úlnliðum upp á axlir, en farðu mýkri höndum um handleggi en fótleggi og mjaðmir. síðan yfir axlirnar, upp hálsinn að höfðinu. forðastu að bursta brjóstin, húðin á þeim er viðkvæm, og hið sama gildir um húðina á kviðnum, þar á að strjúka létt. strjúktu kviðinn í mjúka hringi sólarsinnis til þess að örva innyflin til dáða eftir nóttina. Hægt er að þurrbursta andlitið en til þess þarf mjög mjúkan bursta eða þurran mjúkan bómullarklút, því ekki er ætlunin að skaða húðina, heldur aðeins að örva blóðstreymið. Þurrburstun er æskileg á hverjum morgni til að fjarlægja dauðar húðfrumur sem sest hafa á húðina síðasta sólahringinn. allar strokur eiga að vísa að hjartastað. Hjartað dælir súrefnis- ríku blóði út í líkamann og þú hjálpar því í staðinn með því að beina súrefnissnauðu blóði í átt til hjartans. Byrjaði allt sem Koddahjal Kreppan virðist ekki eingöngu ætla að hafa slæm áhrif því stöðugt fleiri virðast sjá tækifæri til að gera nýja hluti í þessu nýja ástandi. Arnbjörg Högnadóttir er ein þeirra en á dögunum opnaði hún barnafataverslun með notuð barnaföt. Verslunin heitir Blómabörn og er í Bæjarhrauni í Hafnarfirði og fer vel af stað að sögn Arnbjargar. „Þetta byrjaði sem svona koddahjal hjá mér og manninum mínum eitt kvöld í lok janúar,“ segir Arnbjörg Högnadóttir aðspurð hvernig hug- myndin að versluninni Blómabörn- um varð til en verslunin selur notuð barnaföt fyrir lítið. „Ég fór eitthvað að segja við manninn minn að ég þyrfti að fara að kaupa nýja úlpu á son okkar þeg- ar hann spurði af hverju það væri ekki til einhvers konar skiptimarkað- ur á barnafötum. Þarna varð ekki aft- ur snúið. Ég skellti mér á fætur, byrj- aði hugmyndavinnuna og skreið ekki í rúmið fyrr en undir morgun aftur,“ segir Arnbjörg og hlær. Eitt leiddi af öðru, Arnbjörg aug- lýsti eftir notuðum fötum á hin- um ýmsu stöðum gegn vægu gjaldi, fann húsnæði og ásamt mikilli hjálp frá manninum sínum, Orra Blön- dal, tókst henni að opna verslunina Blómabörn síðastliðinn laugardag. Aðspurð hvernig þessir fyrstu dagar hafi farið af stað segir Arn- björg viðtökurnar hafa verið frábær- ar. „Það er búið að vera miklu meira að gera en ég gerði ráð fyrir.“ Arnbjörg og Orri eiga sjö mánaða son og er óhætt að segja að Arnbjörg hafi ekki horft fram á spennandi tíma áður en hún lét þennan draum sem fæddist á koddanum verða að veru- leika. „Ég hef ekkert verið að vinna í tölu- verðan tíma og sá ekki fram á að mín biði nein vinna. Hugmyndin með búð af þessu tagi var þar af leiðandi ekki eingöngu sú að skapa mér atvinnu heldur líka sú að ég gæti haft þann stutta með mér á daginn.“ Arnbjörg segir hann una sér ljómandi vel í búð- inni. „Hann hleypur um í göngugrind hérna á gólfinu á milli þess sem hann sefur hérna bak við og sýgur pelann sinn.“ Arnbjörg segir viðskiptavinina sýna honum mikla athygli og sé hann meðal annars farinn að taka að sér að máta föt fyrir mömmurnar sem eru að kaupa á börnin sín. Verslunin er opin á virkum dög- um frá klukkan 10 til 16 eins og er en Arnbjörg leggur áherslu á það að ef þannig liggi við muni hún jafnvel reyna að hafa opið einn og einn laug- ardag. „Fólk getur fylgst með okkur á Facebook og ef eftirspurnin er mikil er aldrei að vita nema að ég hafi opið einhvern laugardaginn.“ Arnbjörg segir þetta verkefni svo- litla hugsjón þar sem hún borgi fyrir fötin sem inn í búðina koma og selji þau mjög ódýrt. „Ég er ekki að þessu til að græða peninga. Það liggja heil barnaföt í bunkum á háaloftinu hjá fólki og í geymslunni. Núna eru erf- iðir tímar og mjög dýrt að kaupa ný barnaföt og lít ég því á þetta sem kjör- ið tækifæri fyrir fólk að létta á plássinu heima, fá smá pening fyrir og barna- fólk að geta keypt ódýr barnaföt.“ Áður en fötin eru hengd fram í búð þvær Arnbjörg hverja einustu flík og straujar. „Ég fer líka gætilega í gegn- um allt sem ég kaupi og vel eingöngu vel með farin föt,“ segir Arnbjörg að lokum. Saman í vinnunni sonur arnbjargar unir sér vel í vinnunni með mömmu. Íslensk ull arnbjörg selur íslenskan ullarfatnað á vægu verði. Eins og nýtt Það er ekki að sjá að flíkurnar sem hanga uppi í versluninni séu notaðar. Töluvert til fjölbreytt úrval er í versluninni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.